Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1957, Blaðsíða 16
14*
Búnaðarskýrslur 1954
Dalatanga 0,4°, og á Stórhöfða 0,4° meiri en í meðallagi. Meðalúrkoma á Suður-
landi var talsvert mildu minni en í meðallagi, en á Norðurlandi nokkru meiri en
í meðallagi.
Veðurfar árið 1953. Sunnanátt var ráðandi frá áramótum fram til 25. marz,
veður óvenjulega hlý, en úrkoma talsvert mikil. Hlýjast var í marz, og varð
jörð klakalaus í lágsveitum og jafnvel langt upp til dala. En 25. marz gekk til
skarprar norðanáttar með mikilli snjókomu um allt norðanvert landið, en mestri
á austanverðu Norðurlandi. Þessi norðanátt hélzt sleitulaust til loka aprílmánaðar,
og varð snjóbreiðan nyrðra mjög þykk, en hlífði jörð vel gegn frosti, því að eigi
bleytti teljandi í snjónum, og veður eigi stórmikil, svo að snjórinn varð óvenju-
lega jafnfallinn. Sunnan lands var liins vegar víða snjólaust að kalla, og komst
þar talsverður klaki í jörð, er fjær dró sjó, því að frost voru þar langstæð, þó að
aldrei yrðu þau stórmikil. Meðalhiti í Rvík var í janúarmánuði 1,2° meiri en í
meðallagi, í febrúarmánuði 2,0° meiri, í marz 2,2° meiri, en í apríl 2,5° minni.
Á Akureyri var meðalhiti í janúarmánuði 2,1° meiri en í meðallagi, í febrúarmánuði
2,8° meiri, í marzmánuði 3,7° meiri, en í aprílmánuði 2,9° minni en í meðallagi.
Úrkorna var meiri en í meðallagi sunnan lands þrjá fyrstu mánuði ársins, og í
febrúar og marz var úrkomumagnið 100% yfir meðallag, en í apríl í minna lagi.
Á Akureyri var úrkoma talsvert minni en í meðallagi í janúarmánuði, en í febrúar
40% meiri en í meðallagi, í marz 300% meiri en í meðallagi og í apríl 180% meiri
en í meðallagi.
Vorið kom með maímánuði. Maí var 0,5° hlýrri en í meðallagi í Rvík og 1,4°
hlýrri en í meðallagi ú Akureyri, og veður oftast stillt og mild. Svalast var um
miðjan mánuðinn og þá víðast næturfrost, er nokkuð dró frá sjó. Snjór tafði fyrir
vorkomunni norðan lands, en jarðklaki sunnan lands, og var gróðri því ekki lengra
komið en í meðallagi í lok mánaðarins. En veðráttan í júní var að þessu sinni enn
liagstæðari en í maí. Meðalhiti mánaðarins var 0,5° meiri en í meðallagi í Rvík
og 2,4° meiri á Akureyri. TJrkoma var að vísu helzt til lítil, en norðan lands kom
slíkt lítt að sök, vegna þess að mikill raki var í jörð eftir vetrarsnjóinn og leys-
ingarnar. Mest voru hlýindin seint í mánuðinum, og spratt þá öll jörð hratt og
mikið.
Meðalhiti í júlímánuði var rétt við meðallag á Akureyri, en í Rvík og Vest-
mannaeyjum um 0,6° yfir meðallag. Meðalhiti í ágústmánuði var í Rvík 0,9° yfir
meðallag, en á Akureyri 1,5°. Meðalhiti í september var í Rvík 1,9° meiri en í
meðallagi, á Akureyri 2,4° meiri en í meðallagi. Alla þessa sumarmánuði var veðr-
áttan einnig hagstæð að öðru leyti, þegar á allt er litið, en þó voru þurrkleysur
til nokkurra óþæginda á Suðurlandi í septembermánuði.
Hinn 12. októbcr 1953 gerði skyndilega aftaka norðanveður með mikilli fann-
komu á Norðurlandi en kulda og veðurofsa sunnan lands. Rylur þessi lék afar hart
allan fénað, er úti var norðan lands, en hann stóð ekki lengi. Bæði fyrir og eftir
byl þennan var veðrátta hlý og hagstæð þrjá síðustu mánuði ársins. Meðalhiti í
október var í Rvík 0,1° minni en í meðallagi, en á Akureyri 1,4° meiri. í nóvember
var meðalhiti 0,6° meiri en í meðallagi í Rvík, en 3,3° meiri en í meðallagi á Akur-
eyri. í desember var meðalhiti í Rvík 2,5° og á Akureyri 2,2° meiri en í meðallagi.
í heild var árið 1953 um allt land eitthvert hið veðurbezta, er komið hefur
um langt áraskeið. Meðalliiti þess var í Rvík 0,8° meiri en í meðallagi, og á
Akureyri 1,7° meiri en í meðallagi. Miklir snjóar komu norðan lands síðast í
marz og í apríl, en það var meira til skjóls fyrir jörðina en skaðanum nam að
öðru leyti.