Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Blaðsíða 10
„Við erum hérna á okkar 14. starfsári
og þetta höfðum við aldrei séð,“ seg-
ir Heimir Harðarson, skipstjóri hjá
Norðursiglingu, en nokkrir háhyrn-
ingar drápu hrefnu beint fyrir fram-
an augun á rúmlega 100 ferðamönn-
um á Skjálfanda.
Fáir hafa séð slíkan verknað en
tveir bátar Norðursiglingar rákust á
háhyrningana við iðju sína. Fólkið
um borð ásamt áhöfn horfðu dol-
fallin á enda ekki á hverjum degi sem
náttúran sýnir mátt sinn og megin
nánast í beinni útsendingu.
Geta orðið 60 ára
Hrefnan, sem sögð er gríðarlega
gáfað dýr, kom upp að öðru skipi
Norðursiglingar, Náttfara, og bank-
aði hausnum í bátinn. Túlkuðu
ferðamennirnir um borð það þannig
að hún væri að biðja um hjálp í al-
gjörri örvæntingu.
Hrefna er næstminnsta tegund
skíðishvala og sú minnsta sem held-
ur sig á norðurhveli. Kvendýr og karl-
dýr eru að meðaltali 6,9 og 7,4 metra
löng við kynþroska sem verður þegar
dýrin ná 5 til 8 ára. Bæði kynin vega
venjulega 4 til 5 tonn við kynþroska
og hámarksþyngd getur verið 14
tonn. Hrefnur lifa venjulega í 30 til 50
ár en geta orðið 60 ára. Elsta hrefna
sem hefur verið aldursgreind við Ís-
land var 43 ára tarfur.
Allir hjálpast að
Stofn háhyrninga við Ísland hef-
ur hingað til verið talinn til fiskiætna.
Háhyrningar lifa í fjölskylduhópum,
oftast 10 til 15 dýr saman, og hjálpast
að við að veiða önnur dýr. Háhyrn-
ingavaða getur drepið stóra hvali en
það er þó afar sjaldgæft að slíkt ná-
ist á mynd. Háhyrningar eru algeng-
ir við Íslandsstrendur á sumrin og
haustin. Þeir elta oft síldar- og loðnu-
vöður inn í firði. Áætlaður fjöldi há-
hyrninga við Ísland er 6.000 til 7.000
dýr. Háhyrningar eru einu dýrin fyr-
ir utan manninn sem lifa á hrefnu.
Oft segja myndir meira en þúsund
orð og það á við í þessu tilfelli. Það er
því best að láta myndirnar tala sínu
máli.
föstudagur 25. júlí 200810 Fréttir DV
Háhyrningavaða get-
ur drepið stóra hvali
en það er þó afar sjald-
gæft að slíkt náist á
mynd.
Benedikt BóAs hinRiksson
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
hvalur í skolti háhyrnings
Háhyrningarnir voru mjög
skipulagðir í sínum aðgerðum.
Mynd; silke ahlborn
heimir skipstjóri Heimir
Harðarson hefur starfað lengi við
að sýna fólki hvali á skjálfanda.
Hann hefur aldrei séð annað eins.
knörrinn og Bjössi sör
Knörrinn var fyrsti bátur
Norðursiglingar.
Rúmlega eitt hundrað farþegum hvala-
skoðunarfyrirtækisins Norðursiglingar
á Húsavík brá heldur betur í brún þegar
nokkrir háhyrningar drápu hrefnu beint
fyrir framan þá. Ferðin hafði byrjað vel
og brátt sást til hrefnu en fljótt varð far-
þegum mjög brugðið þegar háhyrning-
arnir réðust á hrefnuna og átu hana.
átu hrefnu fyrir
augum ferðamanna