Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Síða 15
DV Helgarblað Föstudagur 25. júlí 2008 15
„Þar sem þenslan er mest verður
skellurinn auðvitað harðastur,“ segir
Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður
Verkalýðsfélags Vestfirðinga, og líkir
samdrætti efnahagslífsins á höfuð-
borgarsvæðinu við fall fram af Horn-
bjargi.
Aðalsteinn Baldursson, formað-
ur verkalýðsfélagsins á Húsavík, tek-
ur í sama streng: „Kreppan hefur lít-
il áhrif á okkar svæði því hún virðist
mest vera bundin við höfuðborg-
ina. Við skynjum ekki mikinn sam-
drátt en það er alltaf sú hætta fyr-
ir hendi að bylgjan sé bara lengur á
leiðinni hingað,“ segir hann og skil-
ur ekki hægagang ríkisstjórnarinn-
ar í efnahagsmálunum. „Ég bíð eftir
því að ríkisstjórnin taki ástandið al-
varlega því það á bara eftir að versna
þegar líður á veturinn. Fyrirtækin
taka fyrsta skellinn en á endanum
verða það heimilin sem fara verst út
úr þessu því þau eru ekkert annað
en smáfyrirtæki sem reiða sig á lán
bankanna,“ segir Aðalsteinn og vill
sjá aðgerðir sem fyrst.
Bylgjan er farin af stað
Talsmaður Eflingar í Reykjavík,
hagfræðingurinn Harpa Ólafsdóttir,
staðfesti þessa staðbundnu kreppu:
„Við stöndum í ströngu við að sinna
þeim málum sem koma upp á borð-
ið. Yfirleitt er þetta rólegur tími en
það er eitthvað allt annað uppi á ten-
ingnum núna,“ segir hún en það er
erfitt að segja til um hve mikil raun-
verulega aukningin er því það hefur
orðið veruleg fjölgun í félaginu á síð-
ustu mánuðum, og þá sérstaklega í
byggingariðnaðinum. Árið 2000 voru
þúsund manns starfandi í byggingar-
geiranum hjá stéttarfélaginu Eflingu
en nú er talan nærri 3.500 manns.
„Það er alveg ljóst að það er ákveð-
in bylgja farin af stað sem við sjáum
ekki alveg fyrir endann á. Þetta hófst
í byrjun árs og eykst smám saman
eftir því sem líður á árið. Við megum
því búast við aukningu á hvers kyns
vanskilum á næstunni,“ segir hún.
Þyrfti að kafa ofan í þessi mál
Útlendingar skipa stóran sess
innan byggingargeirans og eru rúm
60 prósent í dag. Þeir eiga erfið-
ara með að leita réttar síns og liggja
því betur við höggi: „Það er erfitt að
segja til um hvort hlutfall útlendinga
sem fá ekki launagreiðslur sé meira
en annarra, en þó finnst mér það lík-
legt. Það þyrfti virkilega að kafa ofan
í þessi mál og skoða þá þróun sem
er að verða á þessum markaði. Ég sé
líka ákveðna fjölgun í tilkynningum
um vanskil í hótel- og veitingageir-
anum en hann er alltaf drjúgur. Þar
er mikið hringl á kennitölum og þó
nokkuð um kvartanir,“ segir Harpa.
Jákvæð áhrif á landsbyggðina
Talsmenn verkalýðsfélaganna eru
sammála um að það megi búast við
auknum gjaldþrotum með haustinu
því fyrirtæki geti ekki lengur reitt sig
á lán frá bönkunum. Aðalsteinn tel-
ur að þessi áhrif kreppunnar geti haft
áhrif á búsetu á landsbygðinni: „Ég
gæti alveg trúað að það verði fjölgun
á landsbyggðinni í kjölfar kreppunn-
ar, sem er svo sem bara jákvætt. Það
geta ekki allir staðið undir því að búa
í Reykjavík eins og ástandið er í dag,“
segir hann.
Formenn verkalýðsfélaganna á landsbyggð-
inni eru sammála um að áhrif kreppunnar
séu lítil fyrir utan höfuðborgarsvæðið.
Talsmaður Eflingar í Reykjavík segir útlit-
ið svart og spáir aukningu á vanskilum fyr-
irtækja á næstu mánuðum.
LiLJa Guðmundsdóttir
blaðamaður skrifar liljag@dv.is
,,Fyrirtækin taka fyrsta
skellinn en á endanum
verða það heimilin sem
fara verst út úr þessu
því þau eru ekkert ann-
að en smáfyrirtæki sem
reiða sig á lán bank-
anna.“
óttast
kreppuna
Erfiðleikar í byggingariðn-
aðinum Mikið um kennitölu-
hringl og vanskil.
VH ehf · Heiðarbraut 3 · 250 Garður · Sími 864-2400
Vel valið fyrir húsið þitt
NÝ GESTAHÚS
OG GARÐHÚS
Völundarhús.is hafa til sölu glæsileg ný gesta- og garðhús sem eru enn
sterkbyggðari en áður. Nýju húsin eru bjálkahús frá 34 mm að þykkt og
koma með tvöfaldri vatnslæsingu. Okkar vinsælu barnahús eru komin
aftur. Öll gestahús og garðhús eru til á lager.
Ei
nb
ýl
is
hú
s
Su
m
ar
hú
s
Pa
rh
ús
Ra
ðh
ús
G
ar
ðh
ýs
i
08
-0
10
7
H
en
na
r h
át
ig
n
45 mm bjálki
45 mm bjálki
34 mm bjálki
28 mm bjálki
www.volundarhus.is
GESTAHÚS 10 m²
BARNAHÚS 2,1m²
GESTAHÚS 21m² GARÐHÚS 4,7-9,7m²