Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Page 23
föstudagur 25. júlí 2008 23Umræða
Við vorum skírðar saman frænk-
urnar, hún Vigdís Einars en ég Gríms.
Við fengum nafn sívinsællar föður-
ömmunnar og vorum stoltar af því.
Við áttum báðar heima við sömu göt-
una um tíma, áttum saman leyndar-
mál; falleg, léttvæg en gjörsamlega
ódauðleg. Við lékum okkur líka sam-
an, vorum í sama skóla, hjá sömu
kennurum, lásum sömu bækurn-
ar, hlustuðum saman á Jean Birk-
in syngja Je t´ aime – en Viddu (hún
var alltaf kölluð Vidda) hafði tek-
ist að næla sér í þessa harðbönnuðu
voðaplötu – og þarna lágum við stöll-
urnar heima hjá henni, hlustuðum,
héldumst í hendur og lofuðum hvor
annarri endalausri vináttu.
Nema hvað, tíminn leið og við
hittumst æ sjaldnar. En þegar það
gerðist – sem var ævinlega við at-
hafnir einsog jarðarfarir – var gam-
an jafnvel þótt tilefnið væri ónota-
legt; enda fáum eins létt að líða vel
með og Viddu sem var með allra
skemmtilegustu manneskjum. Við
kvöddumst svo alltaf með sömu orð-
unum – að við þyrftum endilega að
hittast oftar og við öðruvísi tækifæri,
bara hittast og kjafta, bara hittast og
vera almennilegar frænkur.
En einhvern veginn gerðist það
ekki; við hittumst ekki þegar við fund-
um ástina, ekki þegar við eignuðumst
krakkana, ekki þegar þegar stórir hlut-
ir gerðust í lífi okkar og ekki litlir. En
þegar amma dó, sú sem við elskuð-
um báðar uppúr skónum, ákváðum
við að drífa í málunum – þetta gengi
ekki lengur.
En við gerðum það sem sé ekki;
asnar sem við vorum.
Ég veit að við hugsuðum samt allt-
af hvor til annarrar; ég hugsaði um
Sólveigu og hetjuskap hennar, hún
var dóttir Viddu og veiktist mikið og
mamma hennar vakti með henni dag
og nótt; ég hugsaði til Huldu elstu
dóttur hennar sem var svo falleg og
skemmtileg og alveg hreint ótrúleg
einsog Vidda sagði; ég hugsaði og ég
lét mér það nægja og það gerðum við
reyndar báðar.
Stundum bjuggum við nálægt hvor
annarri, það var ekki vegalengdin sem
tafði samskiptin, það voru heldur ekki
orðin og ekki löngunin. Allt þetta var
til staðar og við áttum báðar tímann;
tímann til að hittast seinna, tímann til
að hlæja saman seinna, tímann til að
drekka kaffið seinna.
En við áttum auðvitað ekki tím-
ann. Hann stakk af og gaf okkur langt
nef.
Vidda dó fyrir tæpum tveim-
ur árum og við hittumst aldrei til
að spjalla um þetta lítilfjörlega og
skemmtilega og mikilvæga. Eftir sit
ég og sakna augnanna hennar, orð-
heppninnar, húmorsins og gáfnanna.
Ég sakna líka þessara stunda sem
aldrei urðu. Og það er vont.
Ég skrifa um þetta ef ske kynni að
einhver sem les sé í sömu sporum. Ef
svo er ætti sá hinn sami að hitta sína
Viddu og deila með henni tíma.
Það er nefnilega ekkert sjálfsagt og
allra síst tíminn.
Að lokum legg ég til að samið verði
sem fyrst við ljósmæður.
Sandkassinn
Býflugu er Boðið í nokkur brúð-
kaup í sumar en það er ein uppá-
haldsafþreying hennar. Undir-
búningurinn með vinkonunum
er þó eiginlega skemmtilegri og
hér mælir býfluga með brúð-
kaupsvænum bókum og bíó-
myndum:
The Worst-
Case Scenario
Survival Hand-
book: Wedd-
ings. Fyndin
bók sem lumar
á nytsamlegum
bjargráðum í
vandræðaleg-
um brúðkaupum, eins og hvað
skuli taka til bragðs ef hljóm-
sveitin mætir ekki í veisluna.
It‘s Her Wedding but I‘ll Cry If
I Want to. Þetta er Bókin fyrir
mæður brúðanna. Höfundurinn,
Leslie Milk, veit að allar mæður
verðandi brúða haga sér eins og
orðulagðir herforingjar. Pabb-
ar, og aðrir undirmenn, geta líka
skemmt sér yfir lesningunni.
My Big fat greek Wedding Litla
myndin sem sló óvænt í gegn og
mokaði inn peningum. Stúlka af
grískum ættum fellur fyrir manni
sem er ekki þóknanlegur stjórn-
sömum föður hennar – því eigin-
mannsefnið á ekki rætur að rekja
til Grikklands.
Muriel‘s Wedding Hin ástralska
Toni Colette fer á kostum í
þessari perlu kvikmyndanna
sem brúðkaupssjúka unga
konan Muriel
Heslop. Hún
er feitlaginn og
freknóttur nörd
og eina gleði
hennar í lífinu
er að hlusta á
Abba og láta
sig dreyma um
bjútífúl brúð-
kaup. Líf hennar er vægast sagt
kostulegt og tekur óvænta stefnu
þegar hún grennist og stæltur
sundkappi biður hennar.
four Weddings and a funeral
Klaufski hjartaknúsarinn Hugh
Grant og Andie MacDowell fara
með aðalhlutverkin í þessari
meinfyndnu mynd. Þar segir frá
Charles og vinum hans sem velta
því fyrir sér hvort þeir finni nokk-
urn tíma hina sönnu ást og gangi
í hnapphelduna. Charles telur sig
hafa fundið draumaprinsessuna
sína, Carrie, en er hún sú rétta?
Býflugan er í brúðkaupsskapi
Eigum öll okkar Viddu
Evrópa siglir Mikill fjöldi skemmtiferðaskipa heimsækir ísland á ári hverju. Þeirra á meðal er Europa sem siglir undir fána Bahamaeyja og lá við
reykjavíkurhöfn í gær. skipið er rúm 78 þúsund tonn og rúmar um 450 farþega. DV-MYND Ásgeirmyndin
P
lús
eð
a m
ínu
s
Spurningin
„Nei, eiginlega ekki, við gerðum það
oft í gamla daga en við erum orðnir
svo ólíkir nú á seinni árum,“ segir arnar
gunnlaugsson. Þeir bræðurnir eru
nýbúnir að taka við starfi þjálfara
skagamanna í fótbolta.
Þykist Þið bræður
vera hvor annar?
Tónlistarmaðurinn Mugison fær plúsinn
en hann lét allt flakka nýlega í viðtali
við tónlistarvefsíðuna Backstage Pass.
Þar sagðist hann hljóma eins og fíll
þegar hann fær fullnægingu og er
vonandi að þessi Íslandskynning
Mugison verði öllum til góða.
vigdís
grímsdóttir
rithöfundur skrifar
„Ég sakna líka þessara
stunda sem aldrei urðu.
Og það er vont.“
Býflugan
-hvað er að frétta?