Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Page 49

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Page 49
DV Helgarblað föstudagur 25. júlí 2008 49 Skáldsagan um Frankenstein naut óhemju vinsælda og stuttu eftir að hún kom fyrst út settu fjölmörg leikhús í Lundúnum sög- una á svið. Fyrsta kvikmyndin sem var byggð á henni var gerð árið 1910 og var 16 mínútur að lengd. Myndin frá 1931 er sígild. Boris Karloff var umbreytt fyrir tökur, skór hans og klæði þyngd svo að líkams- burðirnir voru stirðlegir og ófreskjulegir. Kvikmyndin er um margt nokkuð ólík bókinni eftir Mary Shell- ey. Leikstjórinn, Hames Whales, gerir Frankenstein að brjáluðum vísindamanni og illska ófreskjunnar er til komin vegna hjarta sem tekið var úr glæpamanni. Í sögu Mary Shelley er ófreskjunni vísað úr samfélagi mannanna vegna óhuggulegs útlitsins. Hún hefnir sín með því að drepa alla þá sem skipta skapara hennar, Frankenstein, einhverju máli. Ófreskja Karloffs varðaði veginn frankenstein er oftast algalinn vísindamaður í kvikmyndum. Hún skapaði Frankenstein- óFreskjuna sagan öll ur. En hugmyndin um að frelsa ungar og undirokaðar konur heill- aði skáldið unga. Eiginkonu sinni, Harriet, hafði hann rænt nokkrum árum áður. Þegar Mary og Percy fóru frá Englandi tóku þau stjúpsystur Mary með. Claire átti að búa með þeim í kommúnu. Eldri hálfsystir Mary, Fanney, var skilin eftir heima. Haustið 1816 sat Mary yfir skáldsögu sinni um Frankenstein en Fanney framdi sjálfsmorð. Það var þaggað niður og Mary fékk ekki að vera við jarð- arförina. Síðan rak hver harmur- inn annan í lífi Shelley-parsins. Frjálst líf bóhema á fyrri hluta 19. aldar kostaði sitt og fljótt gekk á sjóði menningarvitanna. Mik- ill tími fór í að afla fjár og Percy neyddist til að fara huldu höfðu vegna lánardrottna sinna. Oft var Mary hundleið á Claire, stjúpsyst- ur sinni, og hreint ekki örugg um samband hennar og Percys. Framhald á næstu síðu mary shelley draumur Mary um frjálst líf í fangi ástarinnar í lífi sínu, Percy Bysshe shelley, hlaut harmþrunginn endi. Vantar þig fjármálaráðgjöf? Þarftu að ná áttum í peningamálunum? lVið gerum heildar yfirlit yfir fjárhagsstöðuna lVið semjum við kröfuhafa um gjaldfallnar skuldir lVið aðstoðum þig við fasteignaviðskipti lVið gerum verðmat á fasteigninni þinni lVið bendum þér á hvar má spara og minnka útgjöld Hringdu núna! Það er auðveldara að taka á vandanum strax! GH Ráðgjöf Sóleyjargötu 17, 101 Reykjavík Sími 510-3500 og 615-1020 Guðrún Hulda Ólafsdóttir hdl Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali Geymdu þessa auglýsingu – Hún getur komið sér vel

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.