Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Qupperneq 49
DV Helgarblað föstudagur 25. júlí 2008 49
Skáldsagan um Frankenstein naut óhemju vinsælda og stuttu
eftir að hún kom fyrst út settu fjölmörg leikhús í Lundúnum sög-
una á svið.
Fyrsta kvikmyndin sem var byggð á henni var gerð árið 1910 og
var 16 mínútur að lengd. Myndin frá 1931 er sígild. Boris Karloff
var umbreytt fyrir tökur, skór hans og klæði þyngd svo að líkams-
burðirnir voru stirðlegir og ófreskjulegir.
Kvikmyndin er um margt nokkuð ólík bókinni eftir Mary Shell-
ey. Leikstjórinn, Hames Whales, gerir Frankenstein að brjáluðum
vísindamanni og illska ófreskjunnar er til komin vegna hjarta sem
tekið var úr glæpamanni.
Í sögu Mary Shelley er ófreskjunni vísað úr samfélagi mannanna
vegna óhuggulegs útlitsins. Hún hefnir sín með því að drepa alla þá
sem skipta skapara hennar, Frankenstein, einhverju máli.
Ófreskja Karloffs
varðaði veginn
frankenstein er oftast
algalinn vísindamaður
í kvikmyndum.
Hún skapaði
Frankenstein-
óFreskjuna
sagan öll
ur. En hugmyndin um að frelsa
ungar og undirokaðar konur heill-
aði skáldið unga. Eiginkonu sinni,
Harriet, hafði hann rænt nokkrum
árum áður.
Þegar Mary og Percy fóru frá
Englandi tóku þau stjúpsystur
Mary með. Claire átti að búa með
þeim í kommúnu.
Eldri hálfsystir Mary, Fanney,
var skilin eftir heima. Haustið 1816
sat Mary yfir skáldsögu sinni um
Frankenstein en Fanney framdi
sjálfsmorð. Það var þaggað niður
og Mary fékk ekki að vera við jarð-
arförina. Síðan rak hver harmur-
inn annan í lífi Shelley-parsins.
Frjálst líf bóhema á fyrri hluta
19. aldar kostaði sitt og fljótt gekk
á sjóði menningarvitanna. Mik-
ill tími fór í að afla fjár og Percy
neyddist til að fara huldu höfðu
vegna lánardrottna sinna. Oft var
Mary hundleið á Claire, stjúpsyst-
ur sinni, og hreint ekki örugg um
samband hennar og Percys.
Framhald á
næstu síðu
mary shelley
draumur Mary um frjálst líf í fangi
ástarinnar í lífi sínu, Percy Bysshe
shelley, hlaut harmþrunginn endi.
Vantar þig fjármálaráðgjöf?
Þarftu að ná áttum í peningamálunum?
lVið gerum heildar yfirlit yfir fjárhagsstöðuna
lVið semjum við kröfuhafa um gjaldfallnar skuldir
lVið aðstoðum þig við fasteignaviðskipti
lVið gerum verðmat á fasteigninni þinni
lVið bendum þér á hvar má spara og minnka útgjöld
Hringdu núna!
Það er auðveldara að taka á vandanum strax!
GH Ráðgjöf
Sóleyjargötu 17, 101 Reykjavík Sími 510-3500 og 615-1020
Guðrún Hulda Ólafsdóttir hdl
Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali
Geymdu þessa auglýsingu – Hún getur komið sér vel