Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Side 50
föstudagur 25. júlí 200850 Helgarblað DV
Haldið til Ítalíu
Sagan af Frankenstein var
ekki fyrr komin í hillur bók-
salanna vorið 1818 en þre-
menningarnir héldu til Ítalíu.
William, sonur Mary og Percy,
var með í för og nýfædd dóttir
þeirra, Clara. Claire, stjúpsystir
Mary, hafði eignast dóttur með
Byron lávarði og fór hún líka
með. Þeim leið ekki vel heima á
Englandi og að auki þarfnaðist
Percy betra loftslags af heilsu-
farsástæðum.
Börnin voru hálflasin en
Percy, Mary og Claire litu ekki
við ítölsku sólhöttunum. Þau
voru stöðugt á höttunum eftir
nýrri lífsreynslu og nýju um-
hverfi. Mary hafði á tilfinning-
unni að í óefni stefndi en fékk
ekki hamið ferðafélaga sína.
Í sumarlok höfðu bæði börn
hennar látist. En ferðinni var
haldið áfram og næst numið
staðar í fiskibænum Lerici,
skammt frá La Spezia á vest-
urströndinni. Þaðan hélt Percy
í siglingu á seglbát og drukkn-
aði. Mary var þá rétt að ná sér
eftir fósturlát sem hafði næst-
um kostað hana lífið.
Eftir dauða Percys sneri
Mary heim til Englands og
reyndi að skrifa frá sér erfitt
lífið. En ekkert verka hennar
hlaut álíka viðtökur og sagan
um Frankenstein. Hún giftist
aldrei þótt ekki stæði á bónorð-
unum.
Mary lést árið 1851, næstum
þremur áratugum eftir að Per-
cy lést. Frelsið hafði hún keypt
dýru verði og komst eiginlega
aldrei yfir reynslu sína. Vel má
velta fyrir sér hvers vegna hún
valdi sér svo stórbrotið lífs-
mynstur. Sennilega gat hún
ekki annað. Lífsþyrst og skap-
andi konan gat ekki hugsað
sér innilokaða tilveruna á fyrri
hluta 19. aldar.
Úr fyrstu útgáfu Frankenstein Mynd
úr fyrstu útgáfunni af sögunni um
frankenstein frá 1818. Ófreskjan til vinstri
og frankenstein vísindamaður til hægri.
Vissir þú að ...
Boris Karloff, sem lék
ófreskju frankensteins í
þremur myndum, hét í raun
William Pratt og var sonur
háttsetts stjórnarerindreka
og konu hans.
Boris Karloff í hlutverki
ófreskjunnar í skáldsögu shelley
er ófreskjan greind og tilfinninga-
næm vera en í túlkun Borisar
Karloff er hún ill og full ofbeldis.
9 HOLU GOLFVÖLLUR
Opnunartími sumarið 2008
30. maí - 24. ágúst
Opið alla daga nema föstudaga og sunnudaga fra kl. 10.00 - 20.00
Föstudaga frá kl. 10.00 - 12.00 og 17.00 - 21.00
Sunnudaga frá kl. 10.00 - 17.00
AUK ÞESS ER Á SVÆÐINU FJÖLSKYLDUVÆNT HJÓLHÝSA
OG TJALDSTÆÐI
Byrjum að ráðstafa í ágúst nýjum leigulóðum, við Bakkavík og Hofsvík.