Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2008, Qupperneq 8
Miðvikudagur 27. Ágúst 20088 Fréttir
Ber harm sinn í
hljóði fyrir Börnin
Þriggja barna móðir á þrítugsaldri, sem hefur kært mann á sjötugsaldri fyrir nauðgun á Skagaströnd, seg-
ist reyna að bera harm sinn í hljóði vegna barna sinna. Maðurinn á að hafa lokkað hana heim til sín og
nauðgað henni þar. Hann var handtekinn í kjölfarið og hnepptur í gæsluvarðhald. Núna er hann frjáls á
meðan lögreglan rannsakar málið.
„Til að byrja með var
ég dofin en núna er ég
orðin rosalega reið.“
Fórnarlamb Þriggja barna móðir á
þrítugsaldri segist reyna að halda
andliti fyrir börnin. Myndin tengist
ekki efni greinarinnar beint.
„Þetta er búið að vera rosalega erf-
itt,“ segir kona á þrítugsaldri sem
hefur kært mann á sjötugsaldri
fyrir nauðgun. Nauðgunin á að
hafa átt sér stað á heimili manns-
ins á Skagaströnd um miðjan ág-
úst en maðurinn tengist konunni í
gegnum hlutastarf sem hún vinnur
ásamt aðalvinnu sinni. Maðurinn
á að hafa lokkað konuna heim til
sín gegn loforði um vinnu, en svik-
ið það. Sjálf segist hún hafa treyst
honum. Hingað til hafi hann reynst
henni vel. Hún segir hann hafa
brugðist því trausti gróflega þeg-
ar hann nauðgaði henni á heimili
hans. Konan, sem er móðir þriggja
barna, segist reyna að bera harm
sinn í hljóði fyrir börn sín.
Verst ekki eigin hugsunum
„Þetta hefur legið þungt á sál-
inni. Til að byrja með var ég dofin
en núna er ég orðin rosalega reið,“
segir konan. Hún reynir að halda
heimili á sama tíma og hún tekst á
við eftirköst nauðgunar.
Konan segir atvikið hafa haft
djúpstæð áhrif á hegðan hennar og
líðan. Aðspurð hvernig það lýsir sér
segir hún reiðina bitna á unnustan-
um og börnum. Þráðurinn sé stutt-
ur og tilfinningar sveiflast á milli
geðshræringar og dofa. Hún reynir
að hugsa sem minnst um atvikið.
„En þegar ég er ein, þá get ég stund-
um ekki varist hugsunum mínum,“
segir konan með brostinni röddu.
Lokkaði hana heim til sín
Atvikið átti sér stað á Skaga-
strönd fyrir tveimur vikum. Mað-
urinn hringdi í konuna og sagði
henni að vinnu væri að hafa. Þegar
konan kom sagði maðurinn henni
að frestun hafði orðið á verkinu en
hún gæti beðið með sér heima hjá
honum. Konan treysti honum. Hún
lýsir honum sem ágætismanni sem
hún grunaði ekki um græsku. Þeg-
ar heim til hans var komið á hann
að hafa farið að drekka nokkuð stíft.
Að lokum á hann að hafa neytt kon-
una til kynferðismaka. Hún streitt-
ist ekki gegn manninum heldur
lamaðist hún af hræðslu. Að lokum
náði hún hins vegar að rífa sig lausa
og komast út úr húsinu. Þá hélt
hún strax til unnusta síns og skýrði
honum frá hvað hafði gerst. Þaðan
fóru þau til lögreglunnar og kærðu
nauðgun. Maðurinn var handtek-
inn og hnepptur í gæsluvarðhald.
Þremur dögum síðar var hann lát-
inn laus.
Hálfgerður afi
„Ég leit á þennan mann sem al-
mennilegan náunga, hann var eins
og hálfgerður afi sem klappar manni
á öxlina,“ segir konan um upplifun
sína af nauðgaranum. Hún segist
rosalega reið yfir því að maðurinn
hafi verið látinn laus úr gæsluvarð-
haldi. Samfélagið á Skagaströnd er
lítið og nándin við nágranna mik-
il. Sjálf segir konan sárast að sjá að
maðurinn gangi nú frjáls um göt-
urnar eins og ekkert hafi gerst.
„Ég veit ekki hvað ég á að segja,
þetta er bara fáránlegt,“ bætir hún
við og brestur í grát.
Reynir að vera sterk
Konan segist reyna að vera sterk
á erfiðum tímum. Unnusti henn-
ar hafi veitt henni gríðarlega mik-
ilvægan stuðning en það breyti þó
ekki því að henni líði ömurlega eins
og hún orðar það sjálf.
„Maður reynir að halda andliti
út af börnunum. Þau hafa séð mig
gráta en ég reyni að gera það ekki,“
segir hún og bætir við að hún átti
sig ekki á því hversu mikið börnin
skynja af hennar sársauka. Hún seg-
ist ekki hafa sagt þeim frá nauðgun-
inni. Hún vill ekki að þau viti um
hana.
Sviðsett atvik
Þegar maðurinn var spurður
út í hans hlið á málinu sagði hann
einfaldlega: „Þetta var sviðsetn-
ing.“ Hann vildi ekki svara því hvað
hann ætti við með því að atvikið
hefði verið sviðsett, sagði aðeins að
hann neitaði sakargiftum. Hann var
hnepptur í gæsluvarðhald eftir að
konan kærði málið en síðar krafð-
ist hann fyrir Hæstarétti að fá að sjá
framburðarskýrslu konunnar. Hon-
um var synjað um aðgang að skýrsl-
unni en fær engu að síður að sjá
hana á fimmtudaginn. Lögreglan á
Akureyri rannsakar málið.
VaLuR gRettiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Skagaströnd Lögreglan
rannsakar meinta nauðgun.