Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2008, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2008, Qupperneq 10
Miðvikudagur 27. Ágúst 200810 Fréttir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir ekkert standa í vegi fyrir að íslenskir fjárfestar stofni álfyrirtæki. Álverð hefur hækkað um 80 prósent á síðustu þremur árum og Össur telur rík tækifæri í íslensku orkuútrásinni. „Ég hef alltaf verið þeirrar skoðun- ar að við hefðum átt að eiga álfyrir- tæki fyrst við vorum að reisa þau á annað borð,“ segir Össur Skarphéð- insson. Alcoa og Alcan eiga álverin hér á landi en Íslendingar eiga lít- inn hlut í Norðuráli. „Ef ég væri fjár- festir í dag myndi ég verja peningun- um í íslenska útrás á sviði orkumála. Reynsla okkar í gegnum árin skilar þekkingu sem er einstök. Áliðnaður- inn hér er vistvænni en annars stað- ar í heiminum og við höfum mikla þekkingu að miðla til landa sem hafa möguleika á vistvænni orku en nýta sér þá ekki,“ segir hann. Sóknarfæri fyrir íslenska fjárfesta Alcoa hefur gefið sér 15 mánuði til að ákveða hvort fyrirtækið ætli að ráðast í álver á Bakka við Húsavík og þangað til standa samningarnir lausir. „Ef íslenskir fjárfestar hefðu áhuga á að hasla sér völl í þessum iðnaði hefðu þeir í sjálfu sér tæki- færi á að bjóða í orkuna og stofna sitt eigið álfyrirtæki. Á endanum er það markaðurinn sem ræður og þeir sem greiða mest fyrir orkuna fá hana,“ segir Össur. Álverin bjarga atvinnulífinu Álverð hefur hækkað um 80 prósent frá árinu 2005 svo það er upppgangur í iðnaðinum. Ef Íslend- ingar færu út í áliðnað gæti það skil- að þjóðarbúinu mjög miklu þó við vitum í sjálfu sér ekki hversu mik- ið álfyrirtækin græða hér á landi. „Við eigum þessa orku og ef lífeyris- sjóðirnir eða aðrir fjárfestar myndu stofna fyrirtæki og verksmiðju á Bakka ættum við að sjálfsögðu að ganga fyrir erlendum stórfyrirtækj- um. Að sumu leyti skil ég ekki af hverju menn leggja stein í götu þess- arar starfsemi vegna þess að þetta er gott atvinnutækifæri. Það er alls stað- ar bullandi samdráttur í fiskvinnslu og ég veit ekki hvernig ástandið væri hjá okkur ef við hefðum ekki álverið hér á Grundartanga,“ segir Vilhjálm- ur Birgisson, formaður Verkalýðsfé- lags Akraness. Nýta þekkinguna erlendis Þó að möguleikar á íslensku ál- fyrirtæki séu fyrir hendi vill Össur meina að orkuútrás okkar Íslend- inga myndi fyrst og fremst felast í að kynna okkar þekkingu erlendis. Víða um heim er mikill jarðhiti sem er ekki notaður til orkuframleiðslu. „Í Kamtsjatka í Rússlandi eru til að mynda mörg öflug háhitasvæði og þar væri kjörið að nýta orkuna og reisa álver. Það myndi létta á um- hverfi annars staðar, því sá málmur yrði þá ekki framleiddur í krafti olíu og kola eins og víðast hvar í heim- inum. Hérlendis höfum við fleiri möguleika en álverin og má þar nefna kísilflöguiðnað sem mundi nýtast til að búa til málm sem er notaður í sólariðnaði erlendis. Það eru miklir möguleikar á þessu sviði og um að gera að fara að nýta okkur þá,“ segir hann. lilja guðmuNdSdóttir blaðamaður skrifar lilja@dv.is Íslenskt álver á Bakka möguleiki „Ef ég væri fjárfestir í dag myndi ég verja peningunum í íslenska útrás á sviði orkumála.“ iðnaðarráðherra Össur skarphéðins- son segir Íslendinga geta kennt öðrum þjóðum að framleiða vistvæna orku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.