Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2008, Side 22
Svarthöfði er, þrátt fyrir þunga lund í kreppunni, eindreg-inn aðdáandi íslenska hand-boltalandsliðsins, og stefnir að
því að vera í fremstu röð á Arnarhvoli
þegar hetjur okkar verða heiðraðar.
Við tilhugsunina um væntanlegan
þjóðfund hríslast gleðistraumur niður
bakið. Silfurmenn Íslands á stalli og
þjóðin við fótskör þeirra. Það er þó
eitt sem veldur Svarthöfða undrun og
jafnvel hugarangri. Hermt er að helstu
ræðumenn verði Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, sitjandi forsætisráð-
herra, og jafnvel Hanna Birna Kristj-
ánsdóttir borgarstjóri í Reykjavík.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-seti Íslands, er væntanlega ekki á meðal þeirra sem ávarpa silfurhetjurnar. Það
er í sjálfu sér skiljanlegt að Sjálfstæð-
isflokkurinn leyfi honum ekki beinan
aðgang að þjóðinni. Davíð Oddsson,
seðlabankastjóri og forráðamaður
ríkisstjórnarinnar, lagði þá línu að
forsetinn ætti ekki að vera að þvælast
fyrir æðstu ráðamönnum Sjálfstæð-
isflokksins á tyllidögum. Þannig
var það líka við hina ýmsu atburði
heimastjórnarafmælisins. Forsetinn
var fjarri góðu gamni en Davíð æv-
inlega veislustjórinn. Þetta hlutverk
hefur hann haft með höndum síðan
hann tók á móti heimsmeisturunum
í bridds og drafaði svo eftirminni-
lega: Skál, Bermúdaskál. Þessi orð
eru fyrir löngu orðin sígild í sögunni.
Þá er þjóðinni minnisstætt hve erfitt
Davíð átti með það við þingsetningu
að hvetja til og hrópa ferfalt húrra fyrir
forsetanum. Í samræmi við stefnu
Davíðs verður Ólafi Ragnari
ekki hleypt að á Arnar-
hóli í dag. Þorgerður
Katrín mun af al-
þekktum þokka
sínu mæra
hetjur vorar
og koma fram
sem sameining-
artákn þjóðar
í sigurvímu. Þá
mun stíga á stokk
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
borgarstjóri. Svart-
höfði áttar sig að
vísu ekki á því
af
hverju borgarstjórinn ætti að koma
þarna inn í dagskránna. Var bæjar-
stjórinn í Kópavogi, ekki á lausu eða
sveitar-stjórinn í Bláfjallabyggð? Lík-
lega ekki.
Auðvitað heldur Sjálfstæð-isflokkurinn forsetanum frá hátíðinni í miðbænum. Þannig er hann trúr þeirri
stefnu sinni að gera forsetaemb-
ættið óþarft. Þess utan er auðvitað
óeðlilegt að forsetinn sé mikið á
almannafæri. Hann á að halda sig
á Bessastöðum fjarri þjóðinni og
hengja orður á hetjurnar í sem
mestum kyrrþey.
Stærsta spurningin er þó af hverju Davíð Odds-son fær ekki sinn sess á Arnarhvoli. Hefði ekki
verið eðlilegt að hann héldi
eina af sínum frá-
bæru ræðum.
Skál, Kína-
skál.
Miðvikudagur 27. Ágúst 200822 Umræða
Skál, kínaSkál
svarthöfði
jón trauSti reyniSSon ritStjóri Skrifar Það gagnast Íslandi mun betur að styrkja ímynd sína sem hlutlausrar og friðsamrar þjóðar.
Íslendingar í stríði
Leiðari
Sú nýlunda hefur orðið í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins að íslenska þjóðin hefur verið dregin inn í stríðsátök í fjar-lægum heimshlutum, án þess að nokk-
ur ástæða sé til.
Rannsókn Vals Ingimundarsonar sagnfræð-
ings bendir til þess að Davíð Oddsson og Hall-
dór Ásgrímsson hafi selt friðsemi þjóðarinnar
undir borðið og á útsölu, í von um að Banda-
ríkjamenn héldu hernaðarumsvifum sínum á
Íslandi. Þeir tóku þá ákvörðun fyrir hvern einn
og einasta borgara á Íslandi að gera okkur sam-
ábyrg fyrir afleiðingum Íraksstríðsins.
Komið er á daginn að ekki voru kjarnorkuvopn í Írak og því var
ráðist þangað inn á fölskum forsendum. Innrásin átti að vera lið-
ur í stríðinu gegn hryðjuverkum, en nú stöndum við frammi fyr-
ir því að innrásin hefur beinlínis fjölgað hryðjuverkum. Þótt það
sé engin réttlæting til fyrir fjöldamorðum á almennum borg-
urum verðum við að gangast við þeim raunveruleika að órétt-
mætt hernaðarbrölt Bandaríkjamanna í erlendum ríkjum knýr
hryðjuverkamenn áfram. Því fleiri múslimar sem deyja fyr-
ir hendi bandaríska hersins og bandamanna, þess auðveldara
verður fyrir hryðjuverkahópa að innlima unga múslima í sam-
tök sín og ýta þeim út í sjálfsmorðsárásir.
Í gær fékk utanríkisráðuneyti Davíðs Oddsson-
ar falleinkunn fyrir viðbrögð sín við sprengju-
árás á íslenska friðargæsluliða í Afganistan.
Viðbrögð ráðuneytisins gagnvart fórnarlömb-
um árásarinnar fólust fyrst og fremst í tilraun-
um til þess að hafa áhrif á hvað þau segðu við
fjölmiðla, fremur en að veita þeim hjálp. Það
eru í sjálfu sér viðbúin viðbrögð manna, sem
með leynd og án samráðs ýttu okkur út í stuðn-
ing við árásarstríð.
Íslendingar hafa uppskorið hlátur og reiði um-
heimsins við hernaðarbrölti sínu. Bandalags-
þjóðir okkar hlógu þegar íslenski friðargæsluliðinn yfirgaf Írak.
Það var líka hlegið þegar Íslendingar töldu sig hafa fundið sinn-
epsgas í Írak. Á móti er múslimaheimurinn reiður þeim sem þátt
tóku í innrásinni.
Við höfum hvorki burði né tilefni til að standa í hernaðarumsvif-
um erlendis. Það gagnast Íslandi mun betur að styrkja ímynd
sína sem hlutlausrar og friðsamrar þjóðar, eins og áður var.
Eftir stendur að Halldór og Davíð kunna að hafa gert okkur að
skotmörkum snargeggjaðra hryðjuverkamanna á fölskum for-
sendum og án samþykkis okkar.
spurningin
„Það er bara huglægt hjá hverjum og
einum. Það hefur aðeins kólnað og
orðið vindasam-
ara. Hins vegar er
enn von og veðrið
oft álíka gott í
septemberbyrjun
og í júlí,“ segir
Einar Svein-
björnsson
veðurfræðingur.
veðrið hefur held-
ur farið versnandi
undanfarna daga og margir farnir að
örvænta.
er Sumarið búið?
sandkorn
n Talsverð ólga hefur verið vegna
laxveiðiferða Björns Inga Hrafns-
sonar, Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar borgarfulltrúa og Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráð-
herra í Miðfjarðará í boði Hauks
Leóssonar,
fyrrverandi
stjórnar-
formanns
Orkuveit-
unnar. Allir
eiga þeir
sameigin-
legt að vera
höfuðpaurar
REI-klúðursins en raunar er það
heilbrigðisráðherrann sem er
guðfaðirinn. Þegar á daginn kom
að Baugur átti stangveiðileyfin
sóru ráðherra og borgarfulltrúar
að hafa ekki haft hugmynd um
það en töldu að sögn að Haukur
væri einn að baki.
n Laxveiðiferð stjórnmálamann-
anna er síður en svo einsdæmi.
Hermt er að Orkuveitan hafi
haldið úti hópferðum í Elliðaárn-
ar þar sem
stjórnmála-
menn á sult-
arlaunum
hafa getað
iðkað hið
dýra sport.
Jafnvel hafa
hrotið molar
af gnægtar-
borðum þeirra til aðstoðarmanna
og vina. Meðal þeirra sem veiddu
í Elliðaánum í sumar var Guð-
mundur Steingrímsson, fyrr-
verandi aðstoðarmaður Dags B.
Eggertssonar fyrrverandi borg-
arstjóra. Hermt er að hann hafi
hlaupið í skarðið fyrir Dag.
n Það vekur athygli að í blogg-
heimum virðist vera í gangi
skipulögð rógsherferð gegn
Jónasi Kristjánssyni, bloggara
og fyrrverandi ritstjóra. Nokkrir
illyrtir bloggarar hafa risið upp
og lýst Jónasi sem hinum versta
orðníðingi. Þar hefur riðið á
vaðið Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra með dylgjur um
Jónas. Lengst gengur markaðs-
stjóri Morgunblaðsins, Jón Axel
Ólafsson, sem lýsir Jónasi sem
„veikum“ og telur hann þjáðan af
þunglyndi. Jón Axel hefur sjálf-
ur gengið um dimma dali eftir
að hann fékk fangelsisdóm fyrir
fjármálamisferli en slapp með að
afplána í samfélagsþjónustu.
n Sveitarstjórinn knái Grímur
Atlason hefur nú að eigin sögn
snúið baki við tónleikahaldi
og ætlar að einbeita sér að
rekstri Dalabyggðar. Líklegt er
að Grímur hverfi frá tónleika-
haldinu með miklum stæl en
tónleikar Erics Clapton skiluðu
húsfylli í
Egilshöll og
örugglega
myljandi
hagnaði.
Þetta þyk-
ir gott hjá
Grími enda
eru margir
brenndir
eftir tónleikahald sumarsins.
Gamlar poppstjörnur trekkja
misvel eins og þeir þekkja sem
fluttu hingað Bob Dylan og
Paul Simon.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv Á netinu: dv.is
aðalnúMer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
ÁskriftarsíMi: 512 7080, auglýsingar: 512 70 40.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: Árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Komast á pall á
Ólympíuleikum,
skoða Kínamúr-
inn og feta í
fótspor Hallsteins afa og fá
fálkaorðuna.“
n Logi Geirsson handboltahetja um þau
persónulegu markmið sem hafa ræst hjá honum
á skömmum tíma. Hann segist ný og betri
persóna eftir Ólympíuleikana. - logigeirsson.de
„Við erum með
ákveðin mark-
mið með
hljómsveitinni
sem kallar á mikla
viðveru erlendis.“
n Valli sport, umboðsmaður Merzedes Club, um
brotthvarf söngkonunnar Rebekku Kolbeinsdótt-
ur. - Fréttablaðið
„Sophia hafði
mig fyrir rangri
sök.“
n Sigurður Pétur Harðarson
um það að sænsk rithandarrann-
sókn bendir eindregið til þess að Sophia Hansen
hafi sjálf skrifað undirskriftir sem hún kærði
Sigurð fyrir að falsa. - DV
„Það er nú íslenski hestur-
inn. Hestur guðanna.“
n Guðni Ágústsson spurður um
fallegasta dýr sem hann hafi
séð. - DV
„Ég held frekar
að ég helli mér
út í fasteigna-
braskið.“
n Ásdís Rán ætlar ekki að standa fyrir Hawaiian
Tropic-keppni í Búlgaríu í bráð. Frekar ætlar hún
að græða á fasteignabraski - DV
bókstafLega