Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Page 6
fimmtudagur 25. september 20086 Fréttir „Fyrir fjórum árum átti ég jörð, íbúð og var að selja verk, þá leit allt þokkalega út. En svo skrifaði ég und- ir þennan samning og verkum mín- um var hreinlega stolið af mér með svikum og fölskum pappírum. Hann gerði mig að öreiga maðurinn,“ seg- ir listamaðurinn Sverrir Ólafsson við DV. Hann hefur misst allt sitt og býr nú í gömlum húsbíl á höfuðborgar- svæðinu. Hann segir gamlan vin hafa látið sig skrifa undir pappíra á fylliríi sem leiddi til þess að hann missti öll sín verk í hendurnar á honum og hluta af landnámsjörð sinni Esju- bergi á Kjalarnesi. Hann lítur svört- um augum til vetrarins en segist eiga góða vini sem aðstoði hann. Sverrir hefur selt verk sín úti um allan heim, eins og til Ítalíu, Frakklands, Þýska- lands, Hollands, Kúbu, Mexíkó, Bandaríkjanna og fleiri landa. Svikinn um 23 milljónir „Ég skrifaði undir þessa pappíra þar sem ég var dauðadrukkinn og ég man ekki einu sinni eftir að hafa séð þá,“ segir Sverrir. Það var fyrir þremur árum sem vinurinn, sem Sverrir segist hafa tekið upp á sína arma, nýtti sér drykkjuskap hans, en Sverrir er óvirkur alkóhólisti en var virkur á þeim tíma. „Þessi maður, sem átti að heita besti vinur minn, nýtti sér þetta auma ástand mitt til þess að láta mig skrifa undir papp- íra og hirti af mér 40 stór listaverk. Hann notaði síðan sömu aðferð til þess að láta mig skrifa upp á annan pappír þar sem hann stal átta millj- ónum til viðbótar út úr sölunni á jörðinni minni,“ segir Sverrir. Hann segist gróflega reikn- að hafa tapað um 23 milljónum á þessum svikum félagans. Í kjölfarið hvarf vinurinn sem hefur ekkert vilj- að ræða við hann eftir þetta. Sverr- ir hefur lengi einbeitt sér að listinni og hefur unnið í meira en fimmtíu löndum að eigin sögn. Hann hefur unnið í Bandaríkjunum, á Kúbu og mikið í Mexíkó en þangað fór hann einmitt með vin sinn á árum áður og kynnti hann fyrir ráðherrum og öðru fólki þar. Vinur í raun „Það sem þú sérð er það sem ég hef,“ segir Sverrir þar sem hann sit- ur gegnt blaðamanni á litlu rúminu inni í bílnum. Hann segist ekki geta leigt eða keypt í því ástandi sem rík- ir í þjóðfélaginu í dag. Hann lenti í bílslysi á sínum tíma og hefur verið öryrki síðan en segir þær 100 þús- und krónur á mánuði sem hann fái í örorkubætur engan veginn duga fyrir lífsnauðsynjum. Hann segist engin önnur úrræði hafa en að sofa í húsbílnum. „Við erum tveir heimilislausir fé- lagar og við horfum nú ekkert sér- lega björtum augum fram á vetur- inn,“ segir Sverrir en tekur fram að þeir vinirnir deili öllu, súru jafnt sem sætu. Að sögn Sverris hittust þeir í skógarrjóðri þar sem vinur hans var búinn að hýrast lengi í sínum bíl sem var rafmagnslaus. Sverrir segist hafa rambað inn í þetta sama kjarr með gamla skrjóðinn og hann hafi að sjálfsögðu boðið vini sínum í bílinn sinn þar sem hann gæti fengið rúm og einhverja velgju. Sverrir segir gamla og góða AA-félaga færa þeim mat annað slagið og segir séra Gunn- þór Ingason, prest í Hafnarfirði, og konu hans Þórhildi hafa reynst þeim félögum sérstaklega vel. Kúba var betri „Þetta er svolítið mikil breyting frá því 1991 þegar ég var í einkap- artíi í húsi úti á Kúbu með Fíd- el Kastró og drakk romm fram á rauðamorgun. Og vera núna allt í einu orðinn útigangur,“ segir Sverr- ir en tekur fram að hann telji marga vera í verri stöðu en hann sjálfur. „Ég hef þó allavega skjól.“ Sverrir segist ekki hafa minnstu hugmynd um hvar verk hans séu niðurkomin en hann telur þetta hafa verið heila tvo flutningabílsfarma. Sverrir segir gamla vin sinn nú eiga fínt einbýlishús sem hann hafi keypt nokkru eftir að hann hirti verkin af honum. En hann segir sjálfan sig aftur á móti sjá litla fram- tíð. „Ég bara sé enga framtíð. Þetta er bara mikið heilsuleysi á mér, og ég hef enga peninga og ekki neitt.“ Verst þykir honum þó að geta ekki hitt son sinn í Þýskalandi sem á fimm ára afmæli í næstu viku. Fyrr- verandi besti vinur Sverris vildi ekk- ert tjá sig um málið þegar DV náði tali af honum. Sverrir Ólafsson hefur misst allt sitt og býr nú í gömlum húsbíl á tjaldstæði á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir framtíðina svarta en góðir vinir aðstoði hann. Sverrir segir besta vin sinn hafa nýtt sér drykkjuskap hans og látið hann skrifa undir samning sem leiddi til þess að hann missti meira og minna allt. Hann segir lífið í húsbílnum vera öðruvísi en einkapartíið með Fídel Kastró sem hann fór í árið 1991. JÓn bJarKi magnúSSon blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is Missti aleiguna og býr í húsbíl „Þessi maður, sem átti að heita besti vinur minn, nýtti sér þetta auma ástand mitt til þess að láta mig skrifa undir pappíra og hirti af mér 40 stór listaverk.“ Kvíðir vetrinum Það var vinda- og vætusamt þegar blaðamaður dV heimsótti sverri í húsbílinn en hann telur að veturinn verði sér erfiður. DV-mynd gunnar gunnarsson Þröngt mega sáttir sitja Lista- maðurinn sverrir Ólafsson hefur misst allt sitt og býr nú í húsbílnum sínum á tjaldstæði á höfuðborgarsvæðinu. Jóhann R. Benediktsson lög- reglu- og tollstjóri á Suðurnesjum tilkynnti um afsögn sína á tilfinn- ingaþrungnum starfsmannafundi embættisins síðdegis í gær. Afsögn- in kemur í kjölfar þess að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra til- kynnti að staða Jóhanns yrði aug- lýst. Sú ákvörðun er talin jafngilda uppsögn þó dómsmálaráðherra hafi sagt Jóhanni að honum væri frjálst að sækja um starfið aftur. Áður hafði ýmislegt gengið á en ákveðin kaflaskipti urðu í mars á þesu ári þegar dómsmálaráðherra hugðist skipta embættinu upp, án samráðs við Jóhann. Eftir að Jóhann hafði rakið sam- skipti sín við dómsmálaráðuneyt- ið stigu þeir Eyjólfur Kristjánsson, staðgengill Jóhanns, Guðni Geir Jónsson, fjármálastjóri embættis- ins, og Ásgeir J. Ásgeirsson starfs- mannastjóri í pontu og tilkynntu að þeir myndu sýna stuðning við Jó- hann með því að víkja einnig. Það var tilfinningaþrungin stund þegar Jóhann lauk máli á fundinum í dag. Á annað hundrað starfsmenn embættisins sem mættir voru risu úr sætum og hylltu lögreglustjórann með dynjandi lófataki. Af viðbrögð- um Jóhanns mátti ráða að honum þykir þessi ákvörðun afar þungbær. Þegar þeir Eyjólfur, Guðni Geir og Ásgeir höfðu sagt hug sinn steig Jó- hann grátklökkur í pontu og óskaði samstarfsfélögum sínum í lögreglu- og tollgæslunni alls hins besta. Hann sagðist enga von eiga heitari en að embættinu farnist vel á kom- andi árum. baldur@dv.is Þrír yfirmenn lögreglunnar á Suðurnesjum hætta auk Jóhanns r: Lögreglustjórinn kvaddi klökkur DV mynd: gunnar Jóhann við upphaf fundar í gær Þar tilkynnti hann um afsögn sína. Hið sama gerðu þrír yfirmenn lögregluemb- ættisins. Lokar á eftir sér Jóhann óskar félögum sínum alls hins besta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.