Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Síða 76

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Síða 76
fimmtudagur 25. september 200876 Fókus Spennusagnahöfundar er margir hverjir hver öðrum líkir. Einn þeirra höfunda sem notið hafa þess heið- urs að vera þýddir á okkar ylhýra er James Patterson. Fyrstu kynni mín af honum voru spennusögur sem skrifaðar voru um kvennaklúbb sem leysti morðgátur, og var í flestu snjallari en rannsóknarlögreglan í heild sinni. Reyndar var ein kvenn- anna rannsóknarlögreglumaður, en hvað um það. Bók Pattersons, Sjortarinn, er sú bóka hans sem síðast var gefin út á íslensku. Hún á það sammerkt með seinni tíma bókum Pattersons að vera skrifuð af honum í félagi við einhvern ann- an penna. Í hnotskurn er söguþráðurinn á þá leið að Lauren Stillwell kemst að því að eiginmaður hennar heldur framhjá henni og þar sem hefnd- in virðist yfirleitt sæt ákveður hún að borga í sömu mynt. En margt fer öðruvísi en lagt er upp með og Lauren verður vitni að glæp sem leiðir til dauða. Gerandinn er eiginmaður henn- ar og Lauren verður að velja þá stigu sem hún vill fara í kjölfarið. Ef horft er framhjá því augljósa, sem er að allar söguhetjur Pattersons eru yfirmáta fallegt og laglegt fólk, karlmenn- irnir herðabreiðir með sixpakk og konurnar vel samansettar og með þvílíka útgeislun að það hálfa væri nóg, verður að segjast eins og er að Sjort- arinn er meira en þokkalegur reyf- ari. Hvort Patterson á heiðurinn af því eða leigupenninn Michael Led- widge skal ósagt látið. Plottið er ágætt, með óvæntum hliðargötum og hringtorgum sem leiða lesand- ann, sem telur sig hafa lausnina í hendi sér, inn í ókunnug hverfi þar sem ekkert er sem sýnist. Það kemur það snemma í ljós hver starfi Lauren er að ég er ekki að ljóstra upp neinu merkilegu þegar ég segi að staða hennar er ekki einföld. Hennar hlutskipti verð- ur að rannsaka morðmál sem hún tengist á per- sónulegri hátt en gott get- ur talist og Patterson, eða hinn, lýsir þeirri togstreitu ágæt- lega þó vissulega sé um enga heimsbókmenntaút- færslu að ræða. En sá sem les bækur Pattersons er sennilega ekki að leita eftir sömu hughrifum og fengj- ust við lestur Ástin á tímum kólerunnar. Í hnotskurn má segja að um fína spennusögu sé að ræða og engar ýkjur að það sé gott að hafa ekkert annað á dagskránni þegar lestur Sjortarans hefst, en á móti kemur að hún er fljótlesin. Svartnætti Annar spennusagnahöfundur sem hefur átt vinsældum að fagna er Michael Connelly. Það kann að vera vitleysa í mér en engu að síður held ég að ekki hafi margar af hans bókum verið þýddar á íslensku. Clint Eastwood lék aðalhlutverk- ið í kvikmynd sem byggð var á einni bóka Connellys, Bloodwork. Í þeirri bók var McCaleb kynntur til sögunnar í fyrsta skipti, en fyrir hafði Harry Bosch verið aðalsögu- hetja Connellys. Hið sama er uppi á teningnum í bókinni Svartnætti. Í Svartnætti er Harry Bosch far- inn að reskjast og uppi eru efa- semdir um dómgreind hans og siðferði og hann verður grunað- ur um morðið á smáglæpamann- inum Edward Gunn, sem hann hafði eytt mörgum árum í að eltast við. McCaleb er aftur á móti sest- ur í helgan stein, en ákveður að að- stoða lögregluna í rannsókn máls- ins, eftir að til hans er leitað um liðsinni. Ég hef orðið þeirrar ánægju að- njótandi að lesa nokkrar bækur eftir Michael Connelly og í mínum huga kemst Patterson ekki með tærnar þar sem Connelly hefur hælana. Sögur Connellys eru drungalegar, staðhættir virðast raunsannir, jafn- vel þeim sem ekkert til þekkir. Sögupersónurnar eru ekki óað- finnanlegt glæsifólk, McCaleb fékk nýtt hjarta í Bloodwork, og er farinn að kröftum og þarf að úða í sig ótal pillum til að hverfa ekki yfir móð- una miklu. Harry Bosch er gamall í hettunni, búinn að upplifa nóg af því versta sem býr í mannfólkinu og mannlegur að því leyti að hann sér ekkert athugavert við það að skíthælar hljóti ill örlög. Það ríkir ekki birta í sinni Bosch. En hjá McCaleb er ennþá að finna hugmyndafræði laga og rétt- ar og því verður þess ekki langt að bíða að reyni á vináttu McCalebs og Bosch. Ekki aðeins framreiðir Conn- elly skemmtilegri plott en starfsfé- lagi hans Patterson, heldur er hann betri í að baða frásögnina hreinum óhugnaði. Ein vinkona mín hugðist lesa Svartnætti, en lagði hana fljót- lega frá sér; hún var of mikið svart- nætti. Andstætt Sjortara Pattersons og Ledwidges þarf að hafa hugann aðeins við lesturinn þegar um bók Connellys er að ræða. Þeir sem hafa gaman af drunga- legum spennusögum, þar sem jafn- vel er kafað í dimmustu skúmaskot mannskepnunnar, geta gert margt verra en að taka sér Svartnætti í hönd og lesa fram á nótt. Kolbeinn Þorsteinsson á f i m m t u d e g i Hvað Heitir lagið? „Ég er sársaukinn sem þú bragðaðir á, vel eitraður.“ Sjortarinn í SvartnættinuDansklúbba-kvöld á akureyri Ný dansklúbbakvöld eru að fara í gang norðan heiða undir nafninu Domus Technika. Fyrsta kvöldið verður haldið á Dátanum á Akureyri núna á laugardagskvöldið. Þar ætlar nýjasta tæknótromp Reykjavíkur, tví- eykið Glutemus Maximus, að troða upp en það er skipað pródúserun- um og plötusnúðunum Jack Schidt (DJ Margeir) og President Bongo úr Gus Gus. Af þeim sem einnig munu skemmta á þessum kvöldum má nefna Sexy Lazer og DJ Casanova en það er viðburðafyrirtækið Jón Jónsson ehf. sem stendur fyrir þeim, hið sama og flutti inn Eurovision-stjörnuna Se- bastien Tellier og hinn danska Trent- emöller. Næsta dansklúbbakvöld er fyrirhugað í desember. aBBa-æðið heldur áfram Hin geysivinsæla sýning The Music of ABBA með sænsku hljómsveitinni Arrival verður sett upp í fyrsta skipti hér á landi í Vodafonehöllinni 8. nóvember. Arrival hefur ferðast með ABBA-sýninguna í þrettán ár, sem er lengur en ABBA starfaði, og sýnt í yfir tuttugu löndum. Sýningin nýtur gríðarlegra vinsælda og hafa ABBA- aðdáendaklúbbar víða um heim kosið hana bestu ABBA-sýningu allra tíma. Miðasala hefst á midi.is klukkan tíu í fyrramálið. Við þetta má bæta að Arrival vinnur náið með höfuðpaurum ABBA, þeim Björn og Benny, og er þessa dagana að gefa út áður óútgefið ABBA-lag sem ber heitið Just a Notion. Miðasala á blokkarfólkið Miðasala á söngleikinn Fólkið í blokkinni hófst í gær en hann verður frumsýndur á Stóra sviði Borgarleikhússins 10. október. Söngleiknum er lýst sem hjart- næmri sögu af skrautlegu lífi fólks í blokk í Reykjavík sem ákveður að setja upp söngleik þar sem efniviðurinn er það sjálft. Höf- undur er Ólafur Haukur Símon- arson, leikstjóri er Unnur Ösp Stefánsdóttir og á meðal leik- ara eru Guðjón Davíð Karls- son, Halldór Gylfason, Halldóra Geirharðsdóttir, Jóhann Sigurðs- son, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Jóhannes Haukur Jóhannesson og Margrét Helga Jóhannsdóttir. Tónlistarstjóri er Jón Ólafsson en tónlist verksins er flutt af hljóm- sveitinni Geirfuglunum. Ég skellti mér á Steak and Play fyrir skemmstu og hafði gaman af. Það er óhætt að segja að Stake and Play eigi nákvæmlega ekkert skylt við dónabúlluna Bohem sem þar var fyrir. Það er gjörsamlega búið að rífa allt í burtu sem hægt var að rífa og breyta súlustaðnum, sem var fullur af krókum og kimum, í opinn og flottan sportbar. Stake and Play er alvörusport- bar. Staðurinn er hrár og flottur með eins konar götustíl. Það sem er þó mikilvægast við góðan sport- bar er til staðar. Risastórir barir og allt troðfullt af skjávörpum og flat- skjám. En útlit er ekki allt og ég var ekki alveg nógu sáttur með ferð mína á staðinn en ég hafði gert mér þó nokkrar væntingar. Þegar við komum nokkrir félagar höfðu þrír okkar komið fyrr og voru bún- ir að panta forrétt sem var að koma á borðið þegar við hinir settumst. Okkur hinum voru þó ekki boðn- ir matseðlar eða að panta fyrr en við stóðum upp og báðum um það eftir dágóða stund. Þeim sem fyrir voru var því heldur ekki boðið að panta aðalrétt sem þeir áttu eftir að gera. Ég pantaði mér steikarsamlok- una sem mér fannst heldur í dýrari kantinum, 1.890 krónur. Ég verð að segja að ég var ekki nægilega sátt- ur. Steikarsamlokan sjálf bragðað- ist vel en hún var of lítil fyrir mann af minni stærð. Þá var bernaise- sósan svo þykk sem fylgdi með að þegar ég dífði franskri kartöflu ofan í hana mótaðist hún bara eftir kartöflunni en festist ekki við. Var sem sagt meira eins og smjör eða frauð heldur en sósa. Steikarsam- loka á Adesso í Smáralind kostaði til dæmis 1.590 síðast þegar ég fór þangað og var töluvert stærri. Ég hef þó ekki gefist upp á Steak and Play og verð að gefa þeim séns á að það var Meistaradeildarkvöld og mikið að gera. Hins vegar á það aldrei að bitna á viðskiptavininum heldur á veitingastaður að undir- búa sig eftir eftirspurn. Ásgeir Jónsson ÁSgeir jónSSon fór á Steak and Play á Grensásvegi Hraði: HHHHH VeiTingar: HHHHH ViðmóT: HHHHH UmHVerfi: HHHHH Verð: HHHHH Dónabúlla verður alvöru sportbar í skyndi Svar: firestarter með Prodigy michael Connelly rithöfundur patterson kemst ekki með tærnar þar sem Connelly hefur hælana að mati gagnrýnanda. bækur Svartnætti Höfundur: michael Connelly Útgefandi: mál og menning bækur Sjortarinn Höfundur: James patterson & michael Ledwidge Útgefandi: JpV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.