Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Blaðsíða 26
fimmtudagur 25. september 200826 Vesturland
Bjartsýnin var mikil fyrir tíma-bilið í Landsbankadeild karla á Akranesi, liðinu var spáð góðu gengi og sumir gengu
jafnvel svo langt að spá því meistara-
titlinum. Væntingar voru um að hægt
yrði að byggja á árangri tímabilsins í
fyrra þar sem þriðja sætið náðist, en
raunin varð önnur og væntingar urðu
að vonbrigðum þegar líða fór á.
„Það má kannski segja að allt fram
til vors leit þetta ágætlega út. Ég hafði
varað við of miklum væntingum á
heimasíðu ÍA því það þyrfti lítið að
ganga úr skaftinu til að sami árangur
og árið áður næðist. Hins vegar gerðu
hvorki ég né aðrir ráð fyrir því að þetta
færi með þeim hætti sem raun ber
vitni. Að knattspyrnulegt gjaldþrot
myndi blasa við,“ segir Gísli Gíslason,
formaður meistaraflokks ÍA í knatt-
spyrnu. Gísli gerir upp vonbrigða-
sumarið í knattspyrnunni á Skagan-
um.
Lykilleikmenn brugðust
Gísli segir fótboltann vera ein-
falda íþrótt en þess á milli sé mikið
af smáatriðum sem geri hana flókna.
Grunnþættir þurfi að ganga eftir til
að allt fari eins og til standi. Tímabil-
ið byrjaði erfiðlega og sjálfstraustið í
liðinu hvarf. „Þegar var komið fram
yfir mánaðamótin maí júní fór okkur
að hraka. Meginkjarninn í því byggist
á því að liðið hafði tapað sjálfstrausti,
því var erfitt að snúa í gang aftur. Að
auki verður ekki horft framhjá því að
lykilleikmenn spiluðu ekki eins vel
og árið áður. Það reyndist okkur dýr-
keypt,“ segir Gísli.
Guðjón látinn fara
Gengi liðsins skánaði lítið þegar
á leið og snemma voru uppi háværar
raddir um að skipta yrði um þjálfara.
Guðjón Þórðarson virtist ekki ná til
leikmanna með þeim hætti og hafði
reynst vel tímabilið áður. Gísli seg-
ir árangur liðsins hafa ráðið úrslitum
með þá ákvörðun.
„Þegar illa gengur
hriktir í ýmsu og
enginn
er
ánægður með það þegar gengið er
dapurt. Það átti við um leikmenn,
stjórn, þjálfara og stuðningsmenn.
Þegar líða fór á júlí sáu menn að þetta
var að verða óásættanleg frammi-
staða. Það fjölgaði alltaf í þeim hópi
sem vildi sjá breytingar ef svo má
segja. Hvað mig varðaði var engin
ákvörðun tekin um slíkt fyrr en eftir
leikinn gegn Breiðabliki sem
tapaðist 6-1. Þá varð
ekki lengur setið
án þess að taka á
málum,“ segir
Gísli og bend-
ir á að Guð-
jón hafi ver-
ið kominn
á endastöð
með liðið.
Hann segist
samt sem
áður hafa
mikla trú
á Guðjóni
Þórðar-
syni sem
þjálf-
ara,
enda
tali fer-
ill hans
fyrir sig.
Aðstæð-
ur hafi
hins veg-
ar komið
upp þar
sem best
var að leið-
ir skildu.
Bræðurnir
ráðnir
Gísli seg-
ir að það hafi átt
sér stuttan aðdrag-
anda að bræð-
urnir Arnar
og Bjarki
Gunn-
laugs-
Knattspyrnulegt gjaldþrot á sKaganum
Látinn fara guðjón Þórðarson var
kominn á endastöð með Ía og slakt
gengi liðsins kallaði á breytingar.
Vatnshrúturinn ehf
Ný pípulagnaþjónusta á skaganum
Nýlagnir & breytingar
Öll almenn pípulagnaþjónusta
Upplýsingar gefur Benni í síma 899 3464
Tek að mér að þvo og bóna bíla (djúp- og blettahreinsun)