Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Síða 26
fimmtudagur 25. september 200826 Vesturland Bjartsýnin var mikil fyrir tíma-bilið í Landsbankadeild karla á Akranesi, liðinu var spáð góðu gengi og sumir gengu jafnvel svo langt að spá því meistara- titlinum. Væntingar voru um að hægt yrði að byggja á árangri tímabilsins í fyrra þar sem þriðja sætið náðist, en raunin varð önnur og væntingar urðu að vonbrigðum þegar líða fór á. „Það má kannski segja að allt fram til vors leit þetta ágætlega út. Ég hafði varað við of miklum væntingum á heimasíðu ÍA því það þyrfti lítið að ganga úr skaftinu til að sami árangur og árið áður næðist. Hins vegar gerðu hvorki ég né aðrir ráð fyrir því að þetta færi með þeim hætti sem raun ber vitni. Að knattspyrnulegt gjaldþrot myndi blasa við,“ segir Gísli Gíslason, formaður meistaraflokks ÍA í knatt- spyrnu. Gísli gerir upp vonbrigða- sumarið í knattspyrnunni á Skagan- um. Lykilleikmenn brugðust Gísli segir fótboltann vera ein- falda íþrótt en þess á milli sé mikið af smáatriðum sem geri hana flókna. Grunnþættir þurfi að ganga eftir til að allt fari eins og til standi. Tímabil- ið byrjaði erfiðlega og sjálfstraustið í liðinu hvarf. „Þegar var komið fram yfir mánaðamótin maí júní fór okkur að hraka. Meginkjarninn í því byggist á því að liðið hafði tapað sjálfstrausti, því var erfitt að snúa í gang aftur. Að auki verður ekki horft framhjá því að lykilleikmenn spiluðu ekki eins vel og árið áður. Það reyndist okkur dýr- keypt,“ segir Gísli. Guðjón látinn fara Gengi liðsins skánaði lítið þegar á leið og snemma voru uppi háværar raddir um að skipta yrði um þjálfara. Guðjón Þórðarson virtist ekki ná til leikmanna með þeim hætti og hafði reynst vel tímabilið áður. Gísli seg- ir árangur liðsins hafa ráðið úrslitum með þá ákvörðun. „Þegar illa gengur hriktir í ýmsu og enginn er ánægður með það þegar gengið er dapurt. Það átti við um leikmenn, stjórn, þjálfara og stuðningsmenn. Þegar líða fór á júlí sáu menn að þetta var að verða óásættanleg frammi- staða. Það fjölgaði alltaf í þeim hópi sem vildi sjá breytingar ef svo má segja. Hvað mig varðaði var engin ákvörðun tekin um slíkt fyrr en eftir leikinn gegn Breiðabliki sem tapaðist 6-1. Þá varð ekki lengur setið án þess að taka á málum,“ segir Gísli og bend- ir á að Guð- jón hafi ver- ið kominn á endastöð með liðið. Hann segist samt sem áður hafa mikla trú á Guðjóni Þórðar- syni sem þjálf- ara, enda tali fer- ill hans fyrir sig. Aðstæð- ur hafi hins veg- ar komið upp þar sem best var að leið- ir skildu. Bræðurnir ráðnir Gísli seg- ir að það hafi átt sér stuttan aðdrag- anda að bræð- urnir Arnar og Bjarki Gunn- laugs- Knattspyrnulegt gjaldþrot á sKaganum Látinn fara guðjón Þórðarson var kominn á endastöð með Ía og slakt gengi liðsins kallaði á breytingar. Vatnshrúturinn ehf Ný pípulagnaþjónusta á skaganum Nýlagnir & breytingar Öll almenn pípulagnaþjónusta Upplýsingar gefur Benni í síma 899 3464 Tek að mér að þvo og bóna bíla (djúp- og blettahreinsun)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.