Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Side 69
fimmtudagur 25. september 2008 69Fréttir
Lét pilta hýða sjálfa sig til blóðs
Dómari í Manchester í Bretlandi
dæmdi Syed Mustafa Zaidi til
skilorðsbundinnar fangelsisvistar
Maður með Da Vinci lykilinn á heilanum réðst á prest:
Kaþólskur prestur á Ítalíu berst
nú fyrir lífi sínu eftir að vitstola mað-
ur, sem rannsóknarlögreglumenn í
Róm segja að sé með Da Vinci lyk-
ilinn á heilanum, lagði til hans með
hnífi. Presturinn, hinn 68 ára Canio
Canistri, er á meðal þeirra þriggja
sem hinn 25 ára Marco Luzi réðst á
í Santa Marcella-kirkjunni í Róm eft-
ir að hafa horft á kvikmyndina sem
byggð er á skáldsögu Dans Brown.
Lögreglan gerði húsleit hjá Luzi og
fann flennistóra mynd af síðustu
kvöldmáltíðinni eftir Leonardo Da
Vinci, sem spilar stórt hlutverk í
myndinni. Luzi viðurkenndi fyr-
ir lögreglumönnum að hafa horft á
myndina kvöldið áður.
Lögreglumaðurinn Luca Gori,
sem afvopnaði Luzi með miklum
hetjuskap eftir að hann hafði ráðist
til atlögu í kirkjunni, hlaut stungu-
sár í magann eftir að hafa tekist á við
árásarmanninn á kirkjugólfinu. Vitni
segja Luzi hafa ruðst inn í kirkjuna,
vopnaður tveimur hnífum og með
talnaband. Hann öskraði að hann
væri andkristur sjálfur og þuldi upp
staðreyndir úr Da Vinci lyklinum.
Á heimili hans fannst jafnframt
fjöldi bóka og skjala sem flest inni-
héldu einhvers konar heimsenda-,
samsæriskenninga- eða andkrists-
spádóma.
Da Vinci lykillinn olli miklu
fjaðrafoki þegar bókin kom út árið
2003 og þá sérstaklega meðal kaþól-
ikka. Hátt settir kaþólikkar kölluðu
eftir því að menn myndu sniðganga
bókina sem þeir sögðu lygasöguárás
á kirkjuna. Ljóst má vera að Marco
Luzi á yfir höfði sér fangelsisdóm
fyrir árásirnar.
mikael@dv.is
Stakk kaþólskan prest í Róm
InterpoL tIL varnar
fInnsku LögregLunnI
Sú spurning brennur á mörgum af
hverju finnska lögreglan gerði ekki
neitt í ljósi myndskeiðsins sem Matti
Saari setti á YouTube og hún hefur
verið sökuð um handvömm fyrir að
hafa ekki í það minnsta gert skotvopn
hans upptæk.
Það er gott að vera vitur eftir á og í
ljósi þeirra atburða sem skóku Kauha-
joki innan við sólarhring eftir að lög-
reglan yfirheyrði Saari vegna mynd-
brotsins segja margir að ákvörðun
lögreglunnar hafi verið afdrifarík.
Atburðunum í Kauhajoki svipar
óhugnanlega mikið til skotárásar í
Tuusula í Finnlandi fyrir um tíu mán-
uðum. Þá gekk Pekka-Eric Auvinen,
átján ára nemandi við skóla í Jokela,
berserksgang vopnaður skotvopnum
og þegar yfir lauk lágu níu manns í
valnum; átta voru myrt af Auvinen,
sem síðan beindi byssunni gegn sér.
Auvinen hafði, líkt og Saari, sett yfir-
lýsingu á YouTube þar sem ýjað var
að væntanlegum aðgerðum af hans
hálfu. Eftir á að hyggja er engu líkara
en Saari hafi horft til Auvinens með
útfærslu að skotárásinni. Báðir settu
myndskeið á YouTube, báðir gáfu
upp fæðingardag sinn og báðir voru
sjúklega hrifnir af fjölamorðunum
sem framin voru í Columbine-skól-
anum í Bandaríkjunum árið 1999.
Matti Juhani Saari og Pekka-Eric Au-
vinen höfðu gilt byssuleyfi.
Lögreglumenn ekki ófreskir
Nú hefur yfirmaður alþjóðalög-
reglunnar, Ronald Noble, stigið fram
fyrir skjöldu finnsku lögreglunni til
varnar, og að hans mati er létt að líta
til baka, en ómögulegt að segja til um
atburði sem ekki hafa gerst. „Það er
ósanngjarnt að ætla að lögreglan sé
ófresk líkt og í kvikmyndinni Minority
Report og að hún geti sagt af eða á um
hvort sá sem gerir myndband ætli sér
að framkvæma ódæði í anda mynd-
bandsins,“ sagði Noble. Kvikmyndin
sem Noble vísar til er frá 2002 og var
leikstýrt af Steven Spielberg og fjallar
um lögreglusveit sem getur séð fyrir
glæpi áður en þeir eru framdir.
„Fólk mun velta vöngum vegna
málsins. Vitandi að hann [Matti Sa-
ari] myrti þetta fólk, horfir fólk á
myndbandið – og það er enn óhugn-
anlegra. Og því spyr fólk: „Af hverju
sleppti hún [lögreglan] honum? Af
hverju tók hún hann ekki fastan? Af
hverju var hann ekki settur á geðdeild
til skoðunar í þrjá daga?““ sagði Ron-
ald Noble.
Vopnaleyfi afturkallað
Skotvopnaeign meðal borgara
í Finnlandi er með þeirri mestu í
heimi og skotvopnalög þar í landi
með þeim rýmstu sem þekkjast í Evr-
ópu. Fimmtán ára krakkar geta fengið
byssuleyfi og byssu til að æfa skotfimi
eða veiða. Áform ríkisstjórnarinnar
um að herða skotvopnalögin, í kjöl-
far fjölamorðanna sem áttu sér stað
í Jokela-framhaldsskólanum í Tuus-
ula í nóvember á síðasta ári, hafa enn
ekki orðið að veruleika. Ef þau áform
ganga eftir mun aldur til byssuleyfis
hækka úr fimmtán árum í átján.
Tarja Halonen, forseti Finnlands,
og forsætisráðherrann, Matti Van-
hanen, eru sammála um nauðsyn
hertra laga í ljósi fjöldamorða í tveim-
ur skólum á innan við einu ári. Van-
hanen viðraði í gær þá skoðun sína
að til álita kæmi að banna skamm-
byssur í einkaeign: „Hvað varðar
skammbyssur er það einfalt mál, við
verðum að íhuga hvort þær skuli vera
aðgengilegar almenningi. Mín skoð-
un er sú að þær tilheyri skotæfinga-
svæðum.“
Að mati Ronalds Noble gæti hluti
lausnarinnar falist í ákvæði sem
heimilaði lögreglunni að afturkalla
byssuleyfi þeirra sem sýndu einhver
merki þess að öðrum stafaði hætta
af þeim. Þá hefðu lyktir í Kauhajoki
orðið aðrar, sagði Noble, og lýsti at-
burðarásinni eins og hún hefði getað
orðið þegar Matti Saari var yfirheyrð-
ur af lögreglunni: „Þá getur lögregl-
an sagt: „Okei, við höfum ekki næga
ástæðu til að handtaka þig, en við
munum vissulega leggja hald á
skotvopn þín.““
Unnið undir ásökunum um
handvömm
Með skugga rannsóknar á
ákvörðunum sínum eftir yfir-
heyrsluna á Matti Saari vann
finnska lög-
reglan í gær við
að bera kennsl
á brunnin lík
fórn- arlamba
Saaris. Auk þess að vera vopn-
aður Walther P22-skammbyssu,
sem hann sýndi í myndskeið-
inu á YouTube, hafði hann í far-
teskinu bensínsprengjur sem hann
notaði til að kveikja í fórnarlömbum
sínum.
Annars staðar í Finnlandi var
fólk í áfalli og dagblöð endurspegl-
uðu þær spurningar sem brunnu
á fólki. Eitt helsta dagblað Finn-
lands, Helsingin Sanomat, skipti
út auglýsingu, sem á fastan
sess á forsíðunni, fyrir ljós-
mynd af konu sem kveikir
á kerti til minningar fyrir
framan skólann. Einnig
er mynd af Matti Saari
og fyrir ofan stendur
„Hví?“
Í leiðara blaðsins segir að ekki
sé hægt að skella skuldinni á netið,
en það sé réttmætt að spyrja að hve
miklu leyti netið næri dökkar hliðar
mannlegs eðlis.
Finnska þjóðin telur um fimm
milljónir íbúa, skráð skotvopn eru um
1,6 milljónir og almenn skotvopna-
eign er með þeirri mestu í heiminum.
„Finnland er norðlægt land og býr að
víðfeðmri náttúru og veiðar eru al-
gengt áhugamál, og að sjálfsögðu
eru þúsundir manna sem stunda þær
löglega. Því má reikna með að stór
hluti fólks eigi mörg skotvopn,“ sagði
Tarja Halonen. Þrátt fyrir mikið magn
skotvopna í einkaeign er glæpatíðni
tiltölulega lág í Finnlandi.
SkotVopn og FinnLand
n 1,6 milljónir skotvopna í einkaeign
n aðeins í bandaríkjunum og Jemen eru fleiri vopn í einkaeign
n allir skotvopnaeigendur verða að hafa byssuleyfi
n Lágmarksaldur til að kaupa byssu er fimmtán ár
n skotvopn tengjast um fjórtán prósent morða í finnlandi
SkotáráSir í SkóLUm
n kaUhajoki, FinnLand, September 2008
ellefu fórnarlömb, þar á meðal tilræðismaðurinn.
n tUUSULa, FinnLand, nóVember 2007
Níu fórnarlömb, þar á meðal tilræðismaðurinn.
n Virginia tech-SkóLinn, bandaríkin, apríL 2007
Þrjátíu og þrjú fórnarlömb, þar á meðal tilræðismaðurinn.
n erFUrt, ÞýSkaLand, apríL 2002
Átján fórnarlömb, þar á meðal tilræðismaðurinn.
n coLUmbine-SkóLinn, denVer, bandaríkin, apríL 1999
fimmtán fórnarlömb, þar á meðal tveir tilræðismenn.
n dUnbLane, SkotLand, marS 1996
sextán börn, einn kennari og tilræðismaðurinn.
matti juhani Saari Var
yfirheyrður af lögreglu sólarhring
áður en hann lét til skarar skríða.
mYnd aFp
Lögregla undirbýr inngöngu í
skólann gagnrýnd fyrir að hafa
ekki komið í veg fyrir morðin.
Veitti vitstola manni innblástur dan
brown skrifaði metsölubókina da Vinci
lykilinn.
fyrir að láta tvo pilta hýða sig með
hnífum að sið sjía-múslima. Hann
lét piltana tvo, sem eru þrettán og
fimmtán ára, berja sjálfa sig með
zanjeer-svipu, sem er með fimm
beitta hnífa bundna í reipið á
svipunni. Atvikið átti sér stað á As-
hura-hátíðinni í janúar. Dómarinn
dæmdi Zaidi til hálfs árs fangels-
isvistar en ákvað að skilorðsbinda
dóminn til eins árs. Hann bannaði
manninum líka að hvetja nokkurn
undir sextán ára aldri til að hýða
sig.