Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Page 10
fimmtudagur 25. september 200810 Neytendur Lof&Last n Lofið fær Halldór skósmiður í grímsbæ fyrir góða þjónustu. Kona fór þangað með stígvél og bað um að fá skipt um hæl og víkkað út í kálfunum. fyrir herlegheitin rukkaði hann konuna um 1.500 krónur. Konan átti varla til orð yfir verðinu og þjónustunni. annars staðar hefði viðgerðin kostað meira. n Lastið fær fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli. Kona sem átti leið þar um keypti guitar Hero ásamt gítar á 9.990 krónur. Hún keypti tvö sett. Þegar heim var komið þurfti hún að fara í elko og sá þar nákvæm- lega sama sett á sama verði og í fríhöfninni. Nokkrum dögum seinna fór settið á tilboð. fríhöfnin er engu ódýrari en aðrar verslanir. Trassaskapur á tilboðsvefsíðum: Gamlar oG úreltar upplýsinGar Mörg fyrirtæki bjóða upp á alls kyns fríðindi gegn notkun fríðinda- korta. Fólk fær þá kort í hendurnar og getur séð viðskiptaaðila á vefsíð- um hjá viðkomandi. Oftar en ekki eru upplýsingar á vefsíðunum ekki upp- færðar og því ekki hægt að reiða sig á þær. Slíkt getur valdið ama. Dæmi um slíkt er á vefsíðu fríð- indakortsins World for 2 en nokkur fyrirtæki á síðunni eru ekki lengur til. Í síðasta helgarblaði DV auglýsir Byr kreditkort hjá sér og World for 2- kort með. Með notkun kortsins getur maður fengið svokallaðan „tveir fyrir einn“ samning þar sem maður borgar fyrir einn skammt en fær tvo. Á sama tíma og auglýsingin birtist eru ekki fullnægjandi upplýsingar á heima- síðu kortsins. Arnar Arnarson framkvæmda- stjóri segir að reynt sé að uppfæra sem oftast en það sé erfitt. Hann seg- ir að að undanförnu hafi verið gríðar- lega mikið af eigendaskiptum og þeir fái ekki upplýsingar um þau strax. Upplýsingunum sé svo breytt um leið og hægt er. Þar fyrir utan er ný síða í vinnslu sem mun líta dagsins ljós á næstu mánuðum. Í ljósi þess er vonast til þess að flestir sem sjá um fríðindakortakerfi sjái sér fært að setja inn nýjar upp- lýsingar vegna þess að áreiðanleiki sikptir miklu máli til þess að fólk noti kortin. Ef kort virka ekki hættir fólk að nota þau. Klöpp 169,90 186,60 Bensín dísel Skeifunni 168,10 185,10 Bensín dísel Litlatúni 169,70 178,30 Bensín dísel Miklubraut 168,00 185,00 Bensín dísel Melabraut 166,10 183,10 Bensín dísel Salavegi 163,10 177,90 Bensín dísel Skógarseli 167,20 185,10 Bensín díselel d sn ey t i Oft eru sértilboð auglýst til að lokka fólk að. Sum tilboðanna standast þó ekki og reyn- ist verð þá hærra þegar borga á. Utanlandsferð frá Heimsferðum var nýlega auglýst á 89.990 krónur en raunverð í vefbókun er 97.750 á mann þegar upp er staðið. Slíkt brýt- ur gegn lögum og hefur Neytendastofa rétt á að beita sektum í þessum tilfellum. Rangt veRð auglýstÓdýrast í Comfortbrúnkusprautun er sívinsæl og betri kostur en að fara í ljósabekki. Hægt er að fá meðferð á flestum snyrtistofum landsins. Í léttri verðkönnun kom í ljós að ódýrasta brúnkumeðferðin er hjá Comfort snyrtistofu á 3.700 krónur. Auglýsingar geta oft verið villandi. Fólk er lokkað til að kaupa hina og þessa hluti á ákveðnu verði en þeg- ar allt kemur til alls kostar varan miklu meira en upp er gefið. Síkt brýtur í bága við lög frá Neytenda- stofu um auglýsingar. Heimsferðir auglýsa um þessar mundir frábært sértilboð sem er á vitlausu verði. Við netbókun er verðið hærra en upp var gefið. Vitlaust verð Heimsferðir auglýstu í Morgun- blaðinu þann 20. september sér- tilboð til Kanaríeyja 26. nóvember. Þar segir að verð sé frá 89.990 krón- um og er netverð á mann, miðað við 2 til 4 í íbúð eða smáhýsi sem í boði eru í 23 eða 24 nætur. Þeg- ar farið er á vefsíðu Heimsferða í bókunarferlið er hægt að velja um ýmsar dagsetningar. Valin er ferð til Las Palmas frá 26. nóvember til 19. desember á stað sem heit- ir Dorothea. Alveg eins og gefið er upp í auglýsingunni. Þegar ferða- tilhögunin kemur upp er fullt verð fyrir tvo samtals 195.500 krónur, eða 97.750 á mann. Verðið er 7.760 krónum hærra en gefið er upp í auglýsingunni. Bannað með lögum Í reglum Neytendastofu um auglýsingar kemur meðal annars fram að óheimilt sé að veita rangar, villandi eða ófullnægjandi upplýs- ingar. Auglýsingar sem innihalda ósannar fullyrðingar gefa neyt- endum rangar og villandi upplýs- ingar. Þegar auglýsandi getur ekki sýnt fram á að fullyrðingar séu rétt- ar brjóta auglýsingarnar í bága við ákvæði laganna og getur Neytenda- stofa lagt fyrir fyrirtæki að þau breyti auglýsingum, bannað birtingu aug- lýsinganna og sektað. Þess má geta að í 1. grein reglna um verðupplýs- ingar í auglýsingum segir að upp- gefið verð skuli vera endanlegt verð til kaupanda. Verður leiðrétt „Þetta er ekki rétt verð sem er í gangi og það þarf bara að leið- rétta þetta,“ segir Bjarni Ingólfsson, markaðsstjóri hjá Heimsferðum. Hann segir að tilboðið hafi síðast verið auglýst þann 30. ágúst og hafi bæði flugvallarskattar og eldsneyt- isverð hækkað síðan. Þessar hækk- anir hafa síðan farið inn á vefbók- unina á þá gististaði sem í boði eru. Bjarni segir að þetta verði leiðrétt og að lokaverð fyrir viðskiptavini eigi að vera það verð sem upp er gefið í auglýsingunni sjálfri. Hann bætir því við að þær bókanir sem þegar hafa verið gerðar hafi verið leiðréttar. BRÚNKUSPRAUTUN Comfort 3.700 airbrush & make up studio 3.900 snyrtihornið 3.900 snyrtistofan Fegurð 4.250 snyrtistofa Ágústu 4.700 BæTTU hádegiSVeRðiNN Í hádeginu getur oft verið erfitt að vanda valið á matnum ef mötuneytið er ekki upp á sitt besta. Hráefnið ekki nógu gott, alltaf sami salatbarinn eða súpurnar orðnar þreyttar. ef þú vilt ekki eyða peningum utan mötuneytisins er sniðugt ráð að taka með sér ýmislegt til að bæta máltíðina. Kjúkl- ingabaunir, spergilkál, blómkál eða sitthvað smá- legt geta gert úrvalið í salatbarnum áhugaverð- ara. Þá má vel nýta litla afganga frá kvöldinu áður.neytendur@dv.is umsjóN: ÁsdÍs björg jóHaNNesdóttir, asdisbjorg@dv.is Neyten ur „Þegar auglýsandi getur ekki sýnt fram á að fullyrðingar séu réttar brjóta auglýs- ingarnar í bága við ákvæði laganna.“ Auglýst verð Neytendur eiga rétt á að fá vöru og þjónustu á því verði sem auglýst er. áSdÍS BJÖRg JÓhANNeSdÓTTiR blaðamaður skrifar: asdisbjorg@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.