Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2008, Blaðsíða 3
fimmtudagur 6. nóvember 2008 3Fréttir
VERKALÝÐSLEIÐTOGI
BJARGAÐI AUÐMÖNNUM
banka sumarið 2004. Hann segist
hafa greitt með reiðufé og því hafi
ekki komið til tals að persónulegri
ábyrgð yrði létt af lánum hans, þar
sem hann skuldsetti sig ekki fyr-
ir kaupunum. Eiginkona hans, Ásta
Pálsdóttir, átti einnig í bankanum,
þar sem hún reyndar var meðal lykil-
starfsmanna. Samanlagt áttu þau um
8 milljónir króna þegar bankinn féll.
Skelfilegar afleiðingar
Gunnar Páll segir í yfirlýsingu
sinni á vef VR, sem birtist í gær-
kvöldi, að það hafi reynst hættu-
legt að tengja hagsmuni bankans
við hagsmuni starfsmanna. „Ég tel
að þessa stöðu bankans, varðandi
hlutabréfakaup starfsmanna, megi
rekja til þess að farið var of geyst í
að tengja hagsmuni bankans við
hagsmuni starfsmanna. Sú leið að
„árangurstengja laun“ er hugsan-
lega góð á uppgangstímum en sýn-
ir sig nú að geta haft skelfilegar af-
leiðingar.“
„Ég kalla þetta
verðmöndl og
auðvitað eru
þetta innherja-
viðskipti.“
Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbank-
ans, tapaði öllum sínum fjárfestingum í bankanum þegar ríkið
tók hann yfir. Hann kvartar ekki undan þessu og segist hafa
átt fyrir sínum bréfum. Hann hefur notað tímann eftir að hann
hætti í bankanum til að rifja upp það sem á undan er gengið og
taka niður minnispunkta. Hann útilokar ekki að hann muni
síðar taka minningar sínar saman í bók.
GENGUR fRá
hREINU BORÐI
Halldór J. Kristjánsson, fyrrver-
andi bankastjóri Landsbankans,
segist hafa tapað miklu á hruni
Landsbankans en hann hafi fjár-
fest víðar og sé því ekki á vonar-
völ þótt tap hans sé mikið. „Ég
deili þeim örlögum með mörgum
því miður, og þykir mér það mjög
leitt, að hafa tapað af fjárfesting-
um í hlutabréfum,“ segir Halldór.
Hann starfaði hjá bankanum í
tíu ár og átti hlutabréf sem urðu
verðlaus daginn sem ríkið yfirtók
bankann. Halldór segist ekkert
skipta sér af rekstri bankans leng-
ur. Hann hafi undanfarið fundað
með erlendum aðilum en tekur
fram að það tengist Landsbank-
anum ekki neitt.
Hefur aldrei skuldað
Halldór segir upphæðirnar
sem hann tapaði ekki hafa ver-
ið svimandi háar en þó fjármun-
ir sem hann hafði í gegnum tíð-
ina lagt í bréf í bankanum. Hann
vill þó ekki tjá sig um það hversu
háar þessar fjárhæðir voru, því
kjósi hann að halda fyrir sig. „Ég
hef aldrei tekið lán til hlutabréfa-
kaupa, ég hafði einfaldlega safn-
að þessu saman með því að nýta
mér kauprétti og átti það skuld-
laust,“ segir Halldór og bætir því
við að hann hafi ekki lent í mikl-
um erfiðleikum sökum þessa.
„Ég kvarta ekki undan minni
stöðu en hef fulla samúð með
þeim sem skuldsettu sig vegna
slíkra kaupa og sitja nú uppi með
skuldir á móti eignum sem hafa
fallið í verði. Þá er það bara tap-
að, það er ekkert öðruvísi,“ seg-
ir Halldór. Hann tekur fram að
hann hafi í gegnum tíðina einn-
ig fjárfest í fasteignum og jörð-
um. Hann segist ávallt hafa tam-
ið sér það í gegnum lífið að vera
skuldlaus. Hann sé af þeirri kyn-
slóð sem gat eignast hlutina hægt
og bítandi.
Aðstoðar skilanefndina
Halldór segist ekki hafa stofn-
að neitt einkahlutafélag í kringum
hlutina sína og því hafi þetta allt
verið á hans nafni. Þar sem hann
hafi engin lán tekið fyrir kaupun-
um skuldi hann bankanum ekki
neitt í dag. Halldór tekur fram að
þau tíu ár sem hann starfaði hjá
bankanum hafi hann aldrei selt
hlutabréf sín. „Ég geng algjörlega
frá hreinu borði í þessum efnum,
eins og ég vil gera,“ segir hann.
Í dag einbeitir Halldór sér að
nýjum hlutum ásamt því að að-
stoða skilanefndina við að upp-
lýsa mál óski hún þess. „Ef ég
hef verið beðinn um það, þá hef
ég aðstoðað skilanefndina við að
upplýsa mál og koma með hug-
myndir um varðveislu verðmæta
og slíkt,“ segir Halldór. Hann segist
undanfarið hafa rifjað upp farinn
veg og punktað hjá sér svo hann
geti gert sér grein fyrir því hvað á
undan er gengið. Hann þvertekur
þó fyrir að vera byrjaður að skrifa
ævisöguna en segir það vel geta
gerst einhvern tímann, þetta séu
viðburðaríkir tímar.
Jón bJArKi mAgnúSSon
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
„Ég hef aldrei tekið
lán til hlutabréfa-
kaupa, ég hafði ein-
faldlega safnað þessu
saman með því að
nýta mér kauprétti og
átti það skuldlaust.“
Tapaði öllum bréfunum
Halldór J. Kristjánsson,
annar fyrrverandi
bankastjóra Landsbankans,
tapaði öllu því fé sem hann
hafði lagt í hlutabréf í
Landsbankanum. Hann
hefur fulla samúð með
þeim sem sitja uppi með
skuldir á móti eignum sem
hafa verðfallið.
Högg fyrir marga fjöldi fólks tapaði miklu
á hruni Landsbankans. Starfsmenn fengu
aftur á móti ekki lán til að fjárfesta í eigin
banka, líkt og í Kaupþingi.
Hreiðar már Sigurðsson Ákvað að
losa sjálfan sig og aðra starfsmenn
undan skuldum vegna hlutabréfakaupa.