Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2008, Page 10
fimmtudagur 6. nóvember 200810 Neytendur
Dísilolía
el
d
sn
ey
t
i Gullinbrú verð á lítra 154,7 kr. verð á lítra 176,4 kr.
Skeifunni verð á lítra 153,2 kr. verð á lítra 174,9 kr.
Skógarhlíð verð á lítra 154,5 kr. verð á lítra 176,6 kr.
bensín
við Kænuna verð á lítra 149,1 kr. verð á lítra 170,8 kr.
Bæjarlind verð á lítra 149,2 kr. verð á lítra 170,9 kr.
Fellsmúla verð á lítra 153,2 kr. verð á lítra 174,9 kr.
Skógarseli verð á lítra 153,2 kr. verð á lítra 174,9 kr.
umsjón: baldur guðmundsson, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
Sigurður Ingvar Steinþórsson, verkefnastjóri Olíudreifingar hf., segir að það geti
verið mjög dýrt að dæla röngu eldsneyti á bíla. Kostnaðurinn geti hlaupið á tugum
þúsunda. Kostnaðurinn við útkallið sé 14.400 krónur en þeir sem fylla bíla sína af
röngu eldsneyti þurfa þá í raun að borga fyrir bensín á tvo tanka, ætli þeir að fylla
bílinn á nýjan leik eftir að dælubíllinn hefur lokið sér af. Sigurður segir að svona til-
fellum hafi fækkað í kreppunni.
Dýrt að Dæla
vitlaust
Fjárvit ehf. vill auka fjármálalæsi yngra fólks. Fyrsta heimsókn er ókeypis:
Bjóða ráðGjöF í Fjármálum
„Yfirlýst stefna okkar er að auka
fjármálalæsi yngri einstaklinga á
Íslandi,“ segir Örvar Jens Arnars-
son, viðskiptafræðingur og einn
stofnenda Fjárvits ehf. Fyrirtækið
var stofnað nú í haust en stofnend-
ur þess bjóða einstaklingum upp
á ráðgjafarþjónustu í fjármálum.
Þeir hófu undirbúninginn undir
lok sumarsins, áður en fjármála-
kreppan skall á með fullum þunga.
„Með tilkomu þessara miklu breyt-
inga sem urðu á samfélaginu nú í
haust fundum við að þörfin var enn
brýnni en áður. Við höfum verið í
sambandi við fjölmarga opinbera
aðila og fjármálastofnanir sem
hafa tekið okkur opnum örmum,“
segir Örvar.
Markhópur Fjárvits er ungt fólk
en Örvari finnst fræðslu um fjár-
mál í grunn- og menntaskólum
verulega ábótavant. „Eina fræðslan
sem ungt fólk fær er helst á vegum
bankanna sjálfra,“ segir hann og
bætir við að hann hafi sjálfur rek-
ið sig á hindranir í fjármálum þeg-
ar hann var yngri. Honum hafi ein-
faldlega verið rétt kreditkort og fyrr
en varði hafi öll sumarhýran farið í
að greiða af kortinu.
Fyrsta viðtalið hjá Fjárviti er
ókeypis. „Í fyrstu heimsókn för-
um við yfir fjármál viðkomandi og
fáum að kynnast því hverju við-
skiptavinurinn ætlast til af okkur.
Við setjum fjármálin upp og fáum
umboð til þess að afla allra gagn hjá
lánastofnunum. Eftir það hittumst
við aftur og leggjum til ákveðnar
sparnaðarleiðir. Það er sú þjónusta
sem við rukkum fyrir 8.900 krónur,“
segir Örvar en bendir á að fólk geti
metið það eftir fyrsta fund hvort
það vilji kaupa þjónustuna.
Hann segir að þeir hafi fengið
mjög góðar viðtökur. „Mörgum höf-
um við hjálpað mjög mikið, sam-
ið við bankana og aðra mögulega
kröfuhafa. Við erum í góðu sam-
bandi við Íbúðalánasjóð, bankana
og önnur fjármálafyrirtæki,“ segir
hann að lokum en Fjárvit er til húsa
í Skeifunni 7. baldur@dv.is
Tryggið
ykkur sæti
Veitingahúsin eru nú í óða önn
að taka niður pantanir vegna
jólahlaðborða. Hafið í huga að
plássin eru fljót að fyllast og
nauðsynlegt að tryggja sér sæti í
tíma. Rétt eins og smákökubakst-
urinn er jólahlaðborð ómissandi
liður í aðdraganda jólanna. Gerið
verðsamanburð, leitið tilboða ef
þið eruð mörg og skoðið hvað er í
boði. Ekki stökkva á fyrsta kost.
Við mælum með ...
... heimabakstri. Það er fátt nota-
legra í aðdraganda jólanna en
að hittast heima hjá einhverjum
í vinahópnum og baka saman.
Hver getur lagt til eina eða tvær
uppskriftir og komið með hrá-
efni í stóra uppskrift. Setjið ljúfa
tónlist á fóninn og hafið heitt á
könnunni. Úr verður eftirminni-
leg kvöldstund auk þess sem þú
ferð heim með fjölmargar fram-
andi og bragðgóðar smáköku-
sortir.
„Alla jafna fáum við á bilinu 8 til 10
útköll á viku þar sem fólk hefur dælt
röngu eldsneyti á bílana sína. Í 99 af
100 skiptum hefur það sett bensín á
bíl sem er með dísilvél. Stútarnir á
dísilbíla eru sverari en á bensíninu
og það er því nánast ómögulegt að
setja dísilolíu á bensínbíl,“ segir Sig-
urður Ingvar Steinþórsson, verkefna-
stjóri Olíudreifingar hf.
Fyrirtækið, sem er í eigu Olíu-
félags Íslands og N1, hefur á sínum
snærum dælubíl og áhöfn sem sér-
hæfir sig í því að dæla „röngu“ elds-
neyti af bílum. Slík þjónusta kostar
berstrípuð 14.400 krónur.
Endurvinna olíuna
Sigurður segir að fyrirtækið hafi
lítið sem ekkert upp úr þessari þjón-
ustu. Þó áhöfnin sé þrautþjálfuð og
fljót að dæla af bílunum, sé þar með
ekki öll sagan sögð. Eftir það þurfi
þeir að fara með olíuna í endur-
vinnslu þar sem hún er endurunn-
in að hluta. Það sem eftir stendur er
sent til frekari vinnslu út fyrir land-
steinana. Sigurður varar fólk við að
reyna sjálft að dæla af bílum sínum,
þetta sé ekki eins auðvelt og það
kann að virðast þegar menn með
mikla reynslu og góðan útbúnað
dæli af bílunum.
Dýrt að dæla vitlaust
Sigurður bendir einnig á að
kostnaður þeirra sem dæla röngu
eldsneyti á bíla sína geti verið mun
meiri en sem nemur þeir upphæð
sem Olíudreifing tekur fyrir viðvikið.
„Stundum er búið að fylla 50 eða 70
lítra dísiltank með bensíni. Það kost-
ar auðvitað töluvert. Að dælingu lok-
inni þarf viðskiptavinurinn auðvitað
að fylla tankinn á nýjan leik og borga
fyrir báðar áfyllingar. Það getur þess
vegna verið há upphæðin sem fólk
borgar fyrir mistökin, hún get-
ur hlaupið á tugum þúsunda,“ seg-
ir hann og brýnir fyrir fólki að hafa
hugann við það sem það er að gera.
„Í níu af hverjum tíu tilvikum er fólk
að tala í símann þegar þetta gerist,“
segir hann.
Minna stress en áður
Að mati Sigurðar hefur tilfellum
sem þessum fækkað nokkuð upp á
síðkastið. Hann segir að fólk sé ekki
að flýta sér jafn mikið og áður. „Ég er
auðvitað mikið á flakki inni á bens-
ínstöðvunum og ég hef tekið eftir
breytingu. Ég gekk inn eina verslun-
ina um daginn og veitti því athygli
að enginn af þeim fimm kúnnum
sem voru að versla var að tala í sím-
ann,“ segir hann og bendir á að það
hafi verið fátítt fyrir fáeinum mánuð-
um. Fólk sé nú meðvitaðra og meira
vakandi fyrir því sem það er að gera
hverju sinni.
Sigurður segir að þrátt fyrir að
ekki sé hægt að koma stútnum af
olíudælu ofan í gatið á bensíntanki
hafi þó komið fyrir að fólk hafi dælt
dísilolíu á bensínbíl. „Fyrir hálfu
öðru ári heyrði ég af konu sem fór
inn á stöð og fékk lánaða trekt til að
bjarga sér,“ segir hann léttur í bragði
en bætir við að slíkt heyri auðvitað til
undantekninga.
Vélin gæti skemmst
Sumir hafa þann leiða sið að láta
bíla sína ganga þegar þeir dæla elds-
neyti á bílinn. Sigurður segir að ef
bílar séu gangsettir með rangt elds-
neyti innanborðs geti það verið afar
kostnaðarsamt. Stundum þurfi að
hreinsa síur og dælur sem getur ver-
ið dýrt. „Á sumum nýjum bílum eru
skilaboð frá framleiðendum þar sem
fullyrt er að vélin geti jafnvel eyði-
lagst ef dælt er vitlaust. Nýrri bílar
eru vissulega viðkvæmari fyrir röngu
eldsneyti en ég man ekki eftir því
að vél hafi skemmst þau 12 ár sem
við höfum gert þetta,“ segir hann og
bætir við: „Einhverjir hafa haldið því
fram og olíufélögin hafa í fáein skipti
borgað eitthvað smáræði til að koma
í veg fyrir meira umstang.“
Sigurður segir að ástæðan fyrir
þessum fjölda tilfella sé sú að áður
hafi nánast eingöngu stórir bílar og
vinnuvélar verið með dísilvélar en nú
séu dísilvélar orðnar mjög algengar í
fólksbílum. Í dag sé engin sjáanlegur
munur á dísil- og bensínbílum.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Dælubíllinn sem notaður er til að
dæla eldsneyti upp úr tönkum
Á myndinni er Þorvaldur eiríksson en
hann er einn þeirra sem sinnir útköllum.
Fjárvit ehf. stofnendur og
starfsmenn fyrirtækisins.
n lastið fær skyndibita-
staðurinn Quiznos í olís í
norðlingaholti fyrir
subbulegan stað og afar
ógirnilegan mat. Kona
pantaði sér hunangssinneps
kjúklingasalat. Þegar salatið
kom á borðið var það á hvítum
diski og svo ógirnilegt að
konunni ofbauð. skammturinn var
lítill og sósu var sullað yfir allt saman.
allt í kring voru sóðaleg óþrifin borð.
sama kona lofaði Quiznos-staðinn í
Holtagörðum fyrir vel útilátið og
girnilegt kjúklingasalat. Þrátt fyrir að
vera take-away staður var
salatið vel gert og skammtur-
inn drjúgur. Kjúklingur, ferskir
sveppir og ostur var grillaður
og settur ofan á kál og
tómata. sósa fylgdi
svo með í boxi. máltíð
sem var ljúffeng, leit
vel út og var
peninganna virði.
„Í níu af hverj-
um tíu tilvik-
um er fólk að
tala í símann
þegar þetta
gerist.“