Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2008, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2008, Síða 29
fimmtudagur 6. nóvember 2008 29Fréttir Verðandi forseti Bandaríkjanna, Bar- ack Obama, getur vænst harkalegrar stefnu frá rússneskum starfsbróður sínum, Dmitry Medvedev. Í sínu fyrsta ávarpi til rússnesku þjóðarinnar, síðan hann tók við for- setaembættinu af Vladimír Pútín, hót- aði Medvedev að sett yrði upp Iskand- er-eldflaugakerfi í Kalíningrad, sem liggur við Eystrasaltið, á milli tveggja Natóþjóða, Litháens og Póllands. Hlutverk flugskeytanna væri að mynda mótvægi við það eldflaugavarnakerfi sem Bandaríkjamenn hyggjast setja upp í Póllandi og Tékklandi. Að sögn Medvedevs yrði eldflauga- varnarveggur Bandaríkjanna í Pól- landi og Tékklandi bein ógn við ör- yggi Rússlands og hefur hann meðal annars fallið frá hugmyndum um að leggja niður herdeildir á skotpallaher- stöðvum. Rússar virðast gefa lítið fyr- ir útskýringar Bandaríkamanna um að fyrirhuguð eldflaugakerfi í Póllandi og Tékklandi séu hugsuð sem vörn gegn „óútreiknanlegum“ þjóðum á borð við Íran og Norður-Kóreu. Í ávarpi sínu í gær gagnrýndi Med- vedev Bandaríkin einnig fyrir að hafa átt afgerandi þátt í því stutta stríði sem geisaði á milli Rússa og Georgíumanna í ágústmánuði, og segir ábyrgðina liggja hjá „sjálfsbirgingslegri“ banda- rískri ríkisstjórn. Medvedev sagði að Rússar myndu aldrei gefa eftir á Kák- asussvæðinu. Dmitry Medvedev sagði einnig að Bandaríkin bæru ábyrgð á efnahagskreppunni, en að Rússar myndu standast þá raun. Margir telja að hlutverk Medved- evs sé aðeins að vera staðgengill fyr- ir Pútín, þar til Pútín getur sest aftur í forsetastól. Medvedev hefur tjáð rúss- neskum þingmönnum að hann vilji lengja kjörtímabil forseta landsins úr fjórum árum í sex ár. Ljóst er að verðandi forseti Bandaríkjanna tekur ekki við góðu búi: rússlandsforseti hótar bandaríkjunum „Ef enn fyrirfinnst einhver, sem efast um að Bandaríkin séu staður þar sem allt er mögulegt, sem enn veltir fyrir sér hvort draumur stofnenda okkar sé enn á lífi, sem enn ber brigður á styrk lýðræðis okkar, þá er kvöldið í kvöld svarið. Það er svar ungra og aldinna, ríkra og fátækra, demókrata og repúblik- ana, þeldökkra, hvítra, spænskætt- aðra, asískra, frumbyggja, samkyn- hneigðra, gagnkynhneigðra, fatlaðra og ófatlaðra, Bandaríkjamanna sem hafa sent umheiminum þau skilaboð að við höfum aldrei verið eingöngu samsafn einstaklinga eða safn rauðra og blárra ríkja. Við erum, og munum ávallt vera, Bandaríki Norður-Ameríku. McCain öldungadeildarþingmað- ur barðist lengi og vel í þessum slag. Og hann hefur barist lengur og bet- ur fyrir þjóðina sem hann elskar. Fórn hans fyrir Bandaríkin er meiri en flest okkar geta ímyndað sér. Sak- ir þjónustu þessa hugrakka og ósér- hlífna leiðtoga erum við betur sett. Ég óska honum til hamingju; ég óska Palin ríkisstjóra til hamingju vegna þess sem þau hafa áorkað. Og ég hlakka til að starfa með þeim á kom- andi mánuðum að því að endurnýja fyrirheit þessarar þjóðar. Barátta okkar hófst ekki í sölum Washingtonborgar. Hún hófst í bak- görðum Des Moines og stofum í Con- cord og á veröndum í Charleston. Hún byggðist á vinnandi körlum og konum sem gáfu af takmörkuðu sparifé sínu til málstaðarins, 5 og 10 og 20 [dollara]. Hún fékk styrk frá ungu fólki sem hafnaði goðsögninni um áhugaleysi kynslóðar sinnar, og yfirgaf heimili sitt og fjölskyldu vegna verkefna sem buðu upp á lág laun og lítinn svefn. Hún fékk styrk frá ekki svo ungu fólki sem bauð birginn brunagaddi og brennandi hita, við að banka á hurð- ir hjá ókunnugu fólki, og frá milljón- um Bandaríkjamanna sem buðu sig fram og skipulögðu og færðu sönnur á að eftir tvær aldir var enn að finna ríkisstjórn fólksins, skipaða af fólki og fyrir fólkið. Sigurinn er ykkar. Og mér er vel kunnugt að tilgang- urinn var ekki eingöngu að vinna kosningarnar. Og ég veit að þið gerð- uð þetta ekki fyrir mig. Þið gerðuð þetta því þið skiljið umfang þess verkefnis sem framund- an er. Því þrátt fyrir að við fögnum í kvöld vitum við að áskoranir morg- undagsins er þær stærstu á okkar tímum – tvö stríð, pláneta í háska, versta efnahagskreppa aldarinnar. Framundan er löng leið. Það er á brattann að sækja. Við náum kannski ekki á áfangastað á einu ári, jafnvel ekki einu kjörtímabili. En, Banda- ríkjamenn, ég hef aldrei verið eins bjartsýnn og í kvöld á að við kom- umst þangað. Ég lofa ykkur, við sem þjóð kom- umst þangað. Það verða hindranir og mistök. Margir munu ekki vera samþykkir öllum ákvörðunum sem ég tek sem forseti. Og við vitum að ríkisstjórn- in getur ekki leyst öll vandamál. En ég verð ávallt ærlegur gagnvart ykk- ur hvað varðar þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Ég mun hlusta á ykkur, sérstaklega þegar okkur greinir á. Og, umfram allt, mun ég biðja ykkur að sameinast í því verki að endurbyggja þjóðina, á þann eina máta sem það hefur verið gert í 221 ár – með einum klossa í einu, einum múrsteini í einu, handlönguðum af sigggrónum höndum. Í þessu landi stöndum við eða föllum sem þjóð, sem einn. Föllum ekki í þá freistni að hverfa til gamalla flokkadrátta og smámunasemi og vanþroska sem litað hafa stjórnmál okkar í langan tíma. Gleymum ekki að það var maður úr þessu fylki sem fyrstur manna bar fána Repúblikanaflokksins í Hvíta húsið, flokks sem byggður er á gild- um sjálfstrausts og frelsi einstakl- ingsins og einingu þjóðarinnar. Öll deilum við þessum gildum. Og þrátt fyrir að Demókrataflokkur- inn hafi unnið frækinn sigur í kvöld, þá gerum við það með auðmýkt og ákveðni í að brúa það bil sem haml- að hefur árangri okkar. Eins og Lincoln sagði við þjóð sem var mun sundraðri en við, við erum ekki óvinir heldur vinir. Þó þær séu teygðar vegna ástríðna mega taugar kærleiksþels okkar ekki rofna.“ „Sigurinn er ykkar“ Í gærkvöldi lýsti Barack Obama því yfir að „breytingar væru komnar til Bandaríkjanna“, þegar ljóst var hver yrðu úrslit óvenjulegustu kosninga Bandaríkjanna og að hann yrði fyrsti þeldökki forseti þjóðarinnar. Um tvö hundruð þúsund manns höfðu safnast saman í, og við, Grant-garðinn í Chicago, heimaborg Baracks Obama, og allt ætlaði um koll að keyra í fagn- aðarlátunum þegar ljóst var að hann fengi það verkefni að binda endi á tímabil Bush í Hvíta húsinu. Á miðnætti á staðartíma steig hinn fjörutíu og sjö ára öldungadeildar- þingmaður frá Illinois, sonur ken- ísks föður og móður frá Kansas, á svið ásamt eiginkonu sinni, Michelle, og dætrum þeirra, Maliu og Söshu, und- ir taktföstu klappi og lofaði heiminum að „dögun nýrrar bandarískrar forystu væri runnin upp“. Kynþáttamúrarnir féllu Stuðnings- menn Obama brustu í grát þegar þeir heyrðu fyrstu spár um að þeldökkur maður væri fast að því búinn að tryggja sér forsetastólinn. Fögnuður í Frakklandi Það var víðar en í bandaríkjunum sem sigri Obama var fagnað. tilfinningarnar leyna sér ekki hjá þessari konu í París. Sorgartár á hvarmi Þau voru ekki öll gleðitár, tárin sem vættu hvarma þegar úrslit kosninganna lágu ljós fyrir. Hér tárast stuðningskona Johns mcCain þegar hann viðurkennir ósigur sinn. Tilfinningaþrunginn léttir eftir tuttugu og eins mánaðar óvissu eru málalyktir ljósar og sumir varpa öndinni léttar en aðrir ekki. John McCain játar sig sigraðan Það er mat margra að ræða mcCains, þegar hann viðurkenndi ósigur sinn og óskaði barack Obama til hamingju, hafi verið ein sú besta sem hann hefur flutt á meðan kosningaslagurinn stóð yfir. Í Washington DC barack Obama hefur brotið blað í sögu bandaríkj- anna. Hér fagna stuðningsmenn hans í Washington úrslitum sem víða um heim voru álitin óhugsandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.