Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Side 4
Varðskipið Ægir mun að öllum líkind- um fara í víking til Dakar í Senegal í næsta mánuði til að taka þátt í sam- starfsverkefni með Evrópusamband- inu og sinna landamæragæslu milli Vestur-Afríku og Kanaríeyja. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæsl- unnar, segir verkefnið unnið í sam- starfi við landamærastofnun Evrópu- sambandsins, Frontex, sem Ísland er aðili að í gegnum Schengen-sam- starfið. Bjargar störfum „Þetta verkefni mun taka sjö mánuði og gerir það að verkum að við mun- um ekki þurfa að segja upp fullt af fólki sem við hefðum annars þurft að segja upp. Að auki þýðir þetta að við getum ráðið aftur eitthvað af því fólki sem þegar hefur þurft að segja upp sökum þrenginga,“ segir Georg og bætir við að ef ekki væri fyrir þetta verkefni hefði varðskipið legið bund- ið við bryggju, ómannað. Aðspurð- ur hvort verkefninu fylgi peningar í kassann segir Georg að það sé fyrst og fremst samstarfsverkefni sem fylgi þjálfun á mannskap og endurbætur á búnaði sem ella hefði ekki verið ráðist í. Þá standi vonir til að afgangur verði af sem nýttur verði til að efla starfsem- ina hér á landi. TF-SIF til grísku eyjanna Auk varðskipsins Ægis mun flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, fara niður í gríska Eyjahafið og sinna þar landamæravörslu. Það verkefni verð- ur í það heila þrír mánuðir en mánuð- ur í senn og vélin verður hér heima á milli, að sögn Georgs. „Það verkefni gerir okkur sömu- leiðis kleift að endurráða eitthvað af því fólki sem við urðum að segja upp í flugdeild og þjálfa flugmenn sem við höfum ekki náð að þjálfa sökum þrenginga í íslensku efnahagslífi,“ segir Georg. Georg segir undirbúning að þessu hafa staðið yfir í rúmt ár og eins og nú ári sé heppilegt fyrir Landhelgisgæsl- una að fá verkefnið. „Annars væru bæði flugvélin og skipið ekki nýtt á þessum tíma og við myndum missa mjög verðmætt starfsfólk sem hefur kostað mikla peninga að þjálfa upp. Ef allt væri í góðu standi væri ekki eðlilegt að fara með tækin þarna niður eftir en eins og núna er myndu þau bara liggja þarna ónotuð og ómönnuð.“ 4 FÖSTUDAGUR 26. mars 2010 FRÉTTIR RÉTTLÆTI DÓMARANS n Benedikt Bogason, dómari í Hér- aðsdómi Vesturlands, sendir skýr skilaboð til sam- félagsins með dómi sínum á hendur Guðríði Haraldsdóttur, ritstjóra Vik- unnar, sem er gert að greiða 2,1 milljón króna vegna meið- yrða sem eiga rót sína í ummælum ömmu sem sagði að barnabarn sitt væri sem Öskubuska á heimili föður síns. Greinilegt er að „glæpurinn“ er alvarlegur þar sem blaðamaðurinn er dæmdur til að greiða 8 mánaða út- borguð laun sín vegna málsins. LÉTTVÆGT NEFBROT n Dómarinn Benedikt Bogason þykir vera misharður í dómum sín- um. 29. maí 2009 dæmdi hann ofbeldismann til að greiða 200 þúsund krónur í miskabætur. Hinn seki hafði nefbrotið mann á veitingastaðn- um Vinaminni án sérstaks tilefnis að því er fram kom í vitnaleiðslum. Í dómi Benedikts var sérstaklega tekið fram, að dómþolinn hefði tvívegis áður verið sakfelldur fyrir ofbeldisbrot og í síðara skipt- ið fyrir stórfellda líkamsárás. Það er því að mati Benedikts tíu sinnum alvarlegra, að kalla barnabarnið sitt „Öskubusku“ auk annarra ávirðinga gegn fyrrverandi tengdasyni, heldur en að nefbrjóta mann að tilefnis- lausu.    BJÖRGVIN RITSTJÓRI n Björgvin Guðmundsson tók í gær formlega við ritstjórn Viðskiptablaðs- ins af Sigurði Má Jónssyni sem lét umsvifalaust af störfum. Það hefur reyndar legið í loftinu að Björgvin, sem er einn eigenda, myndi taka við keflinu. Nýi ritstjórinn á að baki ágætan feril, meðal annars sem rit- stjóri DV á erfiðum tímum í kjölfar Ísafjarðarmálsins. Þá var hann um tíma viðskiptaritstjóri Fréttablaðsins og seinna Moggans þaðan sem hann flúði þegar Davíð Oddsson var settur þangað inn sem ritstjóri. VIÐKVÆMUR EIÐUR n Eiður Smári Guðjohnsen knatt- spyrnukappi er kominn í gírinnn með Tottenham og hefur meira að segja skorað mörk. Eiður hafði legið lágt og ekki náð sér á strik. Þá hefur hann verið viðkvæmur fyrir umfjöllun um fjármál sín eins og sjá má af lögsókn hans á hendur DV þar sem þess er krafist að ekki verði fjallað um fjármál hans og þau lán sem hann fékk frá Glitni. Pressan gerir upprisu Eiðs að umfjöllunar- efni og einnig þá íþróttafréttamenn sem hafa hæðst að honum. Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport, hefur farið háðulegum orðum um Eið Smára og Henrý Birg- ir Gunnarsson á Fréttablaðinu sem hraunaði yfir hann í pistli. Gárungar telja hugsanlegt er að Eiður fari í mál við þá báða. SANDKORN Ákveðið hefur verið að opna fyrir um- ferð almennings um Fimmvörðuháls að gosstöðvum við Eyjafjallajökul, að því er fram kemur í tilkynningu frá Al- mannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Þar með hefur verið aflétt hættusvæð- inu sem var skilgreint sem fimm kíló- metra radíus í kringum eldstöðvarnar. Almannavarnir ítreka að Þórsmörk og Eyjafjallajökull eru ennþá skilgreind sem hættusvæði. Búist er við því að fjöldi fólks leggi leið sína að gosstöðvunum um helg- ina. Þegar hefur fjöldi fólks lagt leið sína að Fljótsdal, sem er innsti bærinn í Flljótshlíð. Þaðan sést vel til eldgoss- ins í góðu skyggni. Slysavarnafélagið Landsbjörg vill koma þeim skilaboðum til fólks sem ætlar að ganga á Fimmvörðuháls að nauðsynlegt sé að fara eftir veður- spá, gera ferðaáætlun og kynna sér vel svæðið sem á að ferðast um. Ferða- langar verði auk þess að vera mjög vel búnir, með góðan fjarskiptabúnað, VHF-talstöð eða NMT-sími geta skipt sköpum. Þá er þeim tilmælum beint til fólks að það hafi GPS-staðsetning- artæki og áttavita með í för, auk svefn- poka, einangrunardýna og vatnshelds utanyfirpoka eða tjalds. Fólki er enn- fremur ráðlagt að snúa við í tíma held- ur en að koma sér í ógöngur, ef aðstæð- ur á gönguleiðinni breytast. Veðurspá fyrir svæðið um helgina er þó þokka- leg, léttskýjað og hiti um frostmark. valgeir@dv.is Almannavarnir brýna fyrir fólki að fara varlega á göngu um helgina: Fjöldi manns á Fimmvörðuhálsi Eldgos á Fimmvörðuhálsi Fólki er ráðlagt að búa sig mjög vel áður en haldið er á Fimmvörðuháls um helgina. MYND FJÖLNIR FREYR HARALDSSON Ef allt væri í góðu standi væri ekki eðlilegt að fara með tæk- in þarna niður eftir en eins og núna er myndu þau bara liggja þarna ónotuð og ómönnuð. Ægir, varðskip Landhelgisgæslunnar, mun fá nýtt hlutverk í næsta mánuði. Varðskip- ið verður sent til að sinna landamæragæslu milli Vestur-Afríku og Kanaríeyja. Skipið hefði annars legið bundið við bryggju. Verkefnið mun bjarga fjölda starfa sem annars hefði þurft að skera niður. Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF mun sömuleiðs halda út í heim og sinna landamæragæslu í gríska Eyjahafinu. ÆGIR Í ÚTRÁS TIL AFRÍKU KANARÍ-EYJAR SENEGAL GRIKKLAND FERÐALAGIÐ SEM BJARGAR STÖRFUM Varðskipið Ægir og TF-Sif verða gerð út til V-Afríku og grísku eyjanna í næsta mánuði. SIGURÐUR MIKAEL JÓNSSON blaðamaður skrifar: mikael@dv.is Georg Lárusson Forstjóri Land- helgisgæslunnar sendir varðskipið Ægi og TF-SIF í víking. Bjargar mörgum störfum og skapar ný.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.