Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Blaðsíða 49
illinn var ósvífinn við mig. Hans ásetningur var að láta mig líta út fyrir að vera bitur, hefnigjörn og reið kona. Og honum tókst það. Þessi einstak- lingur sem tók þetta viðtal brást mér algjörlega, hann brást sem fjölmiðlamaður og hann brást þjóðinni. Enda var hann ráðinn sem PR-fulltrúi FL Group fljótlega eftir þetta,“ segir Jónína og á þarna við Kristján Kristjánsson. „Ég vildi ekki hafa hann sem spyril upphaf- lega af því að ég vissi um tengsl hans og þessi tengsl standa í rauninni enn í vegi fyrir að rétt- ar upplýsingar berist almenningi. Hann fór úr FL Group í Landsbankann og úr bankanum í Stjórn- arráðið. Ég bíð þess dags að við almenningur get- um sótt til saka þá PR-fulltrúa sem gera út á að verja spillinguna. Þetta er mjög alvarlegt.“ VERÐUR AÐ LÚTA PRINSIPPUM GUNNARS Að því sögðu snýr blaðamaður umræðunni að gleðilegri málum, brúðkaupinu nýafstaðna. Jón- ínu líst vel á það. „Athöfnin fór fram síðastliðið sunnudags- kvöld. Við hóuðum í krakkana okkar og giftum okkur bara heima hjá Gunnari í Kópavogi,“ segir hún og fær hamingjuglampann aftur í augun við að rifja upp þessa eftirminnilegu stund í lífi sínu. „María Ágústsdóttir, prestur í Hallgrímskirkju og frænka Gunnars, gaf okkur saman. Hún er trúað- ur prestur og yndisleg kona.“ Jónína er sem stendur í Þjóðkirkjunni en býst ekki við að verða það mikið lengur. „Það hugsa ég ekki. Mér finnst mjög gaman í Krossinum og hef kynnst þar yndislegu fólki og mun náttúrlega standa við hlið Gunnars í Krossinum.“ Varstu í hvítum kjól og með slör og allt sam- an? „Nei, nei, nei, ég var bara í gömlum kjól sem ég átti inni í skáp,“ segir hún. Og hlær. „Ég er nátt- úrlega sett í þá aðstöðu að ákveða hvort ég vilji þennan mann með hans trúarskoðanir og kenn- ingar eða ekki. Ég get ekki valið mér mann og ætlast til þess að hann standi og sitji eins og ég tel eðlilegt eða rétt heldur verð ég að lúta ákveðnum prinsippum. Og hans prinsipp eru þau að fólk búi ekki saman fyrir hjónaband. Ég stóð því frammi fyrir þessari spurningu, sem var alls ekki auðvelt, og hún hefur verið að gerjast í mér frá því að Gunnar bað mig um að giftast sér. Sjálf hefði ég verið til í að búa að- eins með manninum áður til að sjá hvort hann sé jafnyndislegur og ég upplifi hann. En það var ekkert í boði.“ „GUNNAR ER MAGNAÐUR MAÐUR“ Hvernig var þá samlífinu háttað fram að brúð- kaupi, fórst þú alltaf heim til þín á kvöldin að sofa eða hann heim til sín? „Við eigum það bara fyrir okkur hvernig við höfðum það. Gunnar er alla vega mjög trúaður maður, ég get sagt það. En þetta var ákvörðun sem ég varð að taka og sé ekki eftir því.“ Jónína vill ekki segja frá hvernig Gunnar bað hennar. „Við ætlum líka að eiga það fyrir okk- ur. Það er svo rosalega magnað að láta biðja sín. Þetta er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma. Gunnar er magnaður maður og hvernig hann gerði það er ótrúlegt,“ segir hún en vonbiðillinn, og nú eiginmaður, fór á skeljarnar í janúar. Brúðkaupsferð er á dagskránni í júní – til Dóminíska lýðveldisins þar sem sameiginlegur vinur hjónakornanna á hús sem þau fá lánað. En hugumstórt athafnafólk eins og Jónína og Gunn- ar slær ekki slöku við þótt í slíka ferð sé farið. Ætl- unin er að sitja við skriftir að minnsta kosti hluta tímans. „Sölvi Tryggvason [sjónvarpsmaður á Skjá einum] kemur með því við ætlum að klára að skrifa bókina,“ segir Jónína en eins og greint hef- ur verið frá hyggjast þau Sölvi senda frá sér bók um íslenska viðskiptaheiminn eins og Jónína hefur upplifað hann síðustu ár. Ýmsar bombur munu þar falla að sögn Jónínu en bókin er vænt- anleg í verslanir næsta haust. „Við þurfum að komast í ró og næði til að vinna betur að bókinni, það er aldrei neitt næði hér. Gunnar er líka að skrifa bók sem hann ætlar að klára í þessari ferð.“ Í lok sumars eða í haust verður svo stór brúð- kaupsveisla. „Þá giftum við okkur almennilega. Við erum bæði félagslynd og eigum fullt af vin- um, stóran ættbálk, og viljum bara bjóða þessu fólki sem við elskum í stóra og almennilega veislu.“ „ERUM MJÖG STERK SAMAN“ Ekki verður hjá því komist að spyrja Jónínu hvort hún sé mjög trúuð kona í ljósi starfa þess manns sem hún hefur nú valið sér til að eyða ævinni með. „Já, ég hef verið mjög trúuð frá því ég var barn. Án trúarinnar á hið góða er ég ekki viss um að ég væri á lífi í dag,“ segir hún en eins og áður segir er Jónína í dag skráð í Þjóðkirkjuna. Á því er þó að verða breyting. „Ég fer auðvitað með mínum manni þangað sem hann er að predika. Ég hef séð hann predika í Krossinum og sömuleiðis úti í Póllandi þegar hann hélt samkomur fyrir mig þar og ég held að ekki sé til betri predikari á Íslandi. Hann er ótrú- lega magnaður predikari og fyllir fólk heilögum anda sem er það sem trúað fólk leitar í. Fólk er oft í góðum málum líkamlega og sálarlega en vantar þriðja þáttinn sem er andinn. Ég tel að án andans nái maður aldrei að upplifa líf sitt sem fullkomn- að því að það vantar alltaf eitthvað. Andlaust samfélag er það samfélag sem við erum búin að þróa hér á landi síðustu ár. Við stöndum núna á tímamótum sem eru þess eðlis að Gunnar og ég þurfum að standa saman að því sem við trúum á og vinna í and- anum. Þarna náum við tengingu og erum mjög sterk saman og ég hlakka rosalega til að vinna með Gunnari í þessu.“ KROSSINN HEFUR BREYST Gunnar er þekktur fyrir að standa fastur á hverju því sem segir í Biblíunni. Ert þú jafn bókstafstrú- ar og hann? „Að mínu mati þekkir enginn Íslending- ur Biblíuna betur en Gunnar. Það sem hann kannski hefur gert og sagt í fjölmiðlum hefur ver- ið misskilið því að þótt þú segir einn hlut þýðir það ekki að hinn hluturinn sé rangur. En þú veist að það er svo erfitt að tala um trúarbrögð í fjöl- miðlum. Fjölmiðlar velja bara að segja frá setn- ingunni: „Kona, far þú heim og ver undirgefin manni þínum,“ en það stendur líka í Biblíunni að maðurinn eigi að vera undirgefinn konunni. Eins varðandi þær áherslur sem hafa verið í Krossinum. Ég er ekki sammála öllum áhersl- um sem þar hafa verið, en það hafa orðið breyt- ingar. Ég hefði til dæmis aldrei getað farið inn í Krossinn sem var með þær gömlu hugmyndir að konur ættu að vera í síðum pilsum með sítt hár. Ég hefði aldrei nokkurn tímann tekið þátt í því vegna þess að það hefði brotið gegn öllum mín- um prinsippum um konuna sem manneskju.“ KÆRLEIKAR MILLI GUNNARS OG FRIÐRIKS ÓMARS Gunnar er umdeildur maður, ekki síst fyrir orð sem hann hefur látið falla um samkynhneigð og samkynhneigða einstaklinga í gegnum tíðina. Blaðamaður spyr Jónínu hvernig skoðanir þeirra fari saman í þeim efnum, til dæmis varðandi vilja samkynhneigðra til að ganga í hjónaband frammi fyrir Guði. „Margt sem Gunnar hefur sagt í þá veru hef- ur verið rangtúlkað og honum hreinlega eign- uð orð sem hann hefur aldrei sagt. Að segja að Gunnar telji samkynhneigða ekki vera á Guðs vegum er til dæmis algjör afskræming. Gunnari finnst að hommar og lesbíur eigi ekki að fá að ganga í hjónaband. Hann telur að hjónaband sé á milli karls og konu, sem er alveg rétt, og ég er sammála honum í því. En hann hatar ekki sam- kynhneigða. Það búa til dæmis tveir hommar hjá mér núna og það eru miklir kærleikar á milli þeirra og Gunnars,“ segir Jónína. Sambýlismenn- irnir tveir sem hún vísar til eru söngvarinn vin- sæli Friðrik Ómar Hjörleifsson og kærasti hans, Ármann Skæringsson. „Þeir fá að búa hjá mér á meðan þeir eru að leita sér VIÐTAL 6. mars 2010 FÖSTUDAGUR 49 „Við leysum úr læðingi afl“ Það er rosalega fín lína á milli þess að vera í andanum, fullur af trú, og þess að fara yfir í „síkósu“ – að verða hálfbilaður. Þetta er lína sem ég ætla að virða. ERFIÐIR MÁNUÐIR Jónína segir það hafa verið erfitt fyrst um sinn að halda sambandi sínu við Gunnar leynilegu. Hún reyndi að stöðva framgöngu þess, en án árangurs. MYND RAKEL ÓSK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.