Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Blaðsíða 27
inn kjarnann í leikhópnum. Gísli Örn
Garðarsson leikur Júníor en Rubert
er leikinn af þýska leikaranum Daniel
Brühl sem margir kannast við úr nýj-
ustu mynd Quentins Tarantino, Ing-
lourious Basterds. Hans aðkomu að
myndinni má rekja til þess að Nína
Dögg Filippusdóttir, sem einnig leik-
ur í Kóngavegi, kynntist Brühl á kvik-
myndahátíðinni í Berlín fyrir nokkr-
um árum þar sem þau voru saman í
prógrammi sem nefnist Shooting Star.
Síðan þá hefur alltaf verið stefnan hjá
þeim að vinna saman að einhverju
verkefni.
Valdís fer fögrum orðum um alla
þá sem komu að gerð myndarinn-
ar og segir aðspurð ekkert hafa verið
öðruvísi að vinna með Brühl en öðr-
um. „Það var nákvæmlega eins og
með hinum leikurunum. Þetta er allt
ljúfasta fólk og yndislegt að vinna með
þeim, öllum saman.“
Árið 2006 urðu ákveðin tímamót á
ferli Valdísar innan kvikmyndaheims-
ins en fram að því hafði hún fyrst og
fremst starfað sem klippari. Hún var
komin með nóg af þeirri vinnu en af-
rekaskrá Valdísar á því sviði var glæst
– þar er meðal annars að finna mynd-
irnar Festen, Mifunes sidste sang,
Finding Forrester og Eternal Sun shine
of the Spotless Mind en fyrir þá síðast-
nefndu fékk Valdís BAFTA-verðlaunin.
„Ég var búin að fá nóg. Mér fannst
ég vera að nota tímann minn illa í von-
lausar myndir og það var ekkert gam-
an lengur. Það verður hins vegar alltaf
að vera gaman í vinnunni og ég ákvað
því að hætta. En þar sem ég kann lít-
ið annað en kvikmyndagerð, og af því
að ég átti hugmyndina að Sveitabrúð-
kaupi í tölvunni, lagði ég af stað með
að athuga hvort ekki væri hægt að gera
eitthvað úr henni. Og það gekk upp.
Í rauninni fór ég af stað með Sveita-
brúðkaup bæði af því að ég kann ekk-
ert annað, og vegna þess að mig lang-
aði að vera úti, innan um skemmtilegt
fólk, að gera eitthvað nýtt sem ég
hafði ekki prófað áður. Það er ekkert
eins leiðinlegt og sjálfseyðandi og að
staðna.“
Sveitabrúðkaup var frumsýnd
sumarið 2008 og hlaut almennt mjög
góðar viðtökur bæði gagnrýnenda og
áhorfenda. Og nú, um einu og hálfu
ári seinna, frumsýnir Valdís sína aðra
mynd. „Ég er vinnualki,“ segir hún þeg-
ar blaðamaður spyr hvort þetta kallist
ekki góð afköst á kvikmyndasviðinu.
„Ég kann ekki að gera ekki neitt. Sem
er náttúrlega galli í persónugerðinni.“
Í ljósi þess hversu vel Valdísi hefur
líkað að vinna með Vesturportshópn-
um má líklega ætla að framhald verði
á samstarfinu, eða hvað?
„Við skulum vona það og við
skulum vona að það sé ekki endan-
lega búið að ganga frá íslenskri kvik-
myndagerð þannig að ekki verði
hægt að vinna neitt á næstunni. En
lífið er allavega fullt af hugmyndum.“
Hvað kvikmyndahátíðarrúnt með
Kóngaveginn varðar er ekki búið að
negla neitt niður með það. „Við erum
að frumsýna á morgun [föstudag] og
því er maður ekki að farinn að velta
því fyrir sér strax. Allt hefur sinn
tíma.“
kristjanh@dv.is
... The
Lovely
Bones
Draumkennt
yfirbragð í
ágætri mynd.
... leikritinu
Gauragangi
Guðjón
Davíð Karlsson á
stjörnuleik í fínu
verki.
... bókinni
Það sem
ég sá og
hvernig ég
laug
Einlæg, hreinskilin, áhugaverð,
spennandi og hugljúf.
... Legion
Satanískt vond mynd.
FÓKUS 26. mars 2010 FÖSTUDAGUR 27
FÖSTUDAGUR
n Friðrik Ómar er Presley
Tónleikar Friðriks Ómars Hjörleifssonar
þar sem hann syngur öll bestu lög Elvis
hafa heldur betur slegið í gegn. Þeir
halda áfram á föstudagskvöldið í Salnum
í Kópavogi en fleiri tónleikar eru yfir
helgina. Á föstudaginn hefjast herleg-
heitin klukkan 20.00 en hægt er að finna
upplýsingar um miða á midi.is.
n Trommur og bassi á Jacobsen
Það verður alvöru DrumNbase-session á
klúbbnum Jacobsen á föstudagskvöldið.
Þar getur fólk heldur betur hrist á sér
rassinn undir dyggri leiðsöng plötusnúð-
anna Sindra BM, Árna Skengs og Sigga B.
Partí allt kvöldið.
n Austur-Vestur á Spot
Austrið og vestrið mætast á brjáluðu
balli á Spot, Kópavogi, föstudaginn 26.
mars. Hljómsveitirnar Mono og Matti &
Draugabanarnir slá saman í heljarinnar
gleðiveislu með samfelldu margra
klukkustunda balli.
LAUGARDAGUR
n Fjölskyldupakki í Höllinni
Fjölskylduskemmtun Latabæjar verður
á laugardaginn en þá verður Laugar-
dalshöllin full af gleði. Allir sem kaupa
miða fá ókeypis í Laugardalslaugina og
Skautahöllina alla helgina og fá auk þess
2 fyrir 1 í Húsdýragarðinn. Hátíðin hefst
klukkan 15.00 og má finna upplýsingar á
midi.is. 3.900 kr kostar inn.
n Kristján á ferðinni
Kristján Jóhannsson heldur nú út á
land með frábæra tónleika sína. Hann
syngur meðal annars í Keflavík, Akureyri
og á Ísafirði. Á laugardaginn verður
stórsöngvarinn í Keflavík, nánar tiltekið í
Hljómahöllinni. 5.700 krónur kostar inn
en tónleikarnir hefjast klukkan 17.00.
n Söngleikjalög með Margréti
Margrét Eir verður með tónleika í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu á laugardaginn klukkan
20.00. Það kostar 2.000 krónur inn en
hún mun syngja lög úr söngleikjum á
boð við Les Misarables, Ragtime, The Life
og Jesus Christ Superstar.
n Dikta á NASA
Vinsælasta hljómsveit landsins, Dikta,
verður með tónleika á NASA um helgina
en þessir Garðbæingar hafa tröllriðið
öllu undanfarið og verða vinsælli með
hverri mínútunni. Tónleikarnir hefjast
klukkan 23:00 og ekki kostar nema 1.500
krónur inn. Ekki láta þessa mögnuðu
sveit fram hjá þér fara.
Hvað er að
GERAST?
... The Blind Side
Mynd sem lætur þér líða vel.
... tölvuleiknum
God of War 3
Vel
gert,
vel
unnið.
Bravó!
„Þetta er bara fyrst og fremst partí-
plata. Feit bít og feitir textar,“ seg-
ir rapparinn Diddi Fel sem var að
senda frá sér plötuna Hesthús-
ið. Diddi er meðlimur í hinni goð-
sagnakenndu íslensku rappsveit For-
gotten Lores en Hesthúsið er hans
fyrsta sólóplata. „Upprunalega var
hugmyndin að gera hálfgert spúff af
Doggystyle með Snoop Dogg. Nema
í stað hunda voru það hestar,“ segir
Diddi um plötuna en hún heitir eft-
ir stúdíóinu sem hún er tekin upp í.
Það er ár síðan Diddi kláraði plöt-
una en það tók sinn tíma að koma
henni út. „Maður er að gera þetta
allt einn þannig að þetta tók sinn
tíma. Að mastera og mixa alla plöt-
una, redda plötuumslaginu og gera
í raun bara allt sem þarf að gera.“
Diddi hefur þegar sent frá sér mynd-
band við lagið Sjúkur sem er að finna
á plötunni. Myndbandið hefur vak-
ið mikla lukku á myndbandavefnum
youtube.com en þar bregður meðal
annars fyrir grínistanum Steinda Jr.
Diddi hefur verið lengi í íslensku
rappsenunni en ferillinn byrjaði
1998 með Árbæjarsveitinni Bounce
Brothers sem rappaði þá á ensku.
Árið 2001 var svo hljómsveitin For-
gotten Lores stofnuð. Á Hesthús-
inu er að finna marga af færustu
röppurum og taktsmiðum landsins.
Til dæmis Class B, Emmsjé Gauti,
G.Maris, 7berg, Dóri DNA, Stjáni Mi-
skilinn og IntroBeats.
Aðspurður að lokum hvort Diddi
sé stóðhesturinn í hesthúsinu svar-
ar hann. „Það er rétt, graðfolinn í
hesthúsinu og þið getið séð mig á
Prikinu á laugardaginn.“
asgeir@dv.is
Diddi Fel sendir frá sér nýja plötu sem hann segir nauðsyn í öll samkvæmi:
Partíið er í hesthúsinu
Diddi Fel Er sjúkur maður, sjúklega
freðinn og sjúklega graður eins og segir
í texta hans.
KVIKMYNDIN
KÓNGAVEGUR
n Leikstjóri: Valdís Óskarsdóttir
n Framleiðendur: Árni Filipp-
usson, Davíð Óskar Ólafsson og
Hreinn Beck
n Leikarar: Björn Hlynur
Haraldsson, Daniel Brühl, Gísli Örn
Garðarsson, Hanna María Karlsdótt-
ir, Ingvar E. Sigurðsson, Kristbjörg
Kjeld, Margrét Vilhjálmsdóttir,
Nanna Kristín Magnúsdóttir, Nína
Dögg Filippusdóttir, Ólafur Darri
Ólafsson, Ólafur Egilsson, Rúnar
Freyr Gíslason, Sigurður Sigurjóns-
son og Þröstur Leó Gunnarsson.
HJÓLHÝSASPIL Kóngavegur er
stjörnum prýdd. Lengst til vinstri er þýski
leikarinn Daniel Bruhl sem lék í Tarantino-
myndinni Inglourious Basterds.
ALDREI MEÐ FYRIR FRAM HUGMYNDIR
Á TÖKUSTAÐ Ekki er langt
síðan Valdís hóf sinn leikstjórn-
arferil en hún hefur þegar skilað
af sér tveimur myndum.
NIÐURLÚTUR Hinn farsæli
leikari Ingvar E. Sigurðsson
er hluti af glæstum leikhópi
Kóngavegs.