Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 26. mars 2010 FRÉTTIR Þorsteinn BA, sem útgerðarfyr- irtækið Perlufiskur á Patreksfirði leigir, verður sviptur veiðiréttind- um í 12 vikur á mánudaginn fyr- ir löndun níu tonna, mestmegn- is steinbíts, framhjá vigt. Selma Dröfn BA, sem Perlufiskur gerir sjálft út, var í janúar svipt veiðileyfi fyrir löndun framhjá vigt, rúmu einu tonni af blönduðum afla, mest steinbít. Bæði brotin áttu sér stað síðastliðið sumar. Síðastlið- in tvö ár hefur Perlufiskur fengið úthlutað byggðakvóta til vinnslu í frystihúsinu á Bíldudal. Bæði framkvæmdavald og dómsvald Albert Már Eggertsson, eigandi Perlufisks ehf., vildi ekki ræða þetta mál þegar DV náði af honum tali, en benti á Harald Haraldsson, skipstjóra á Selmu Dröfn. Harald- ur neitar því að landað hafi verið framhjá vigt í hvorugu tilfellinu. „Það vill nú þannig til að Fiskistofa reynist bæði vera framkvæmda- valdið og dómsvaldið. Það er búið að kæra þennan úrskurð Selmu Drafnar til sjávarútvegsráðuneyt- isins og ráðuneytið er ekki enn búið að svara þrátt fyrir að þeir eigi að svara innan þriggja vikna – það er kominn einn og hálfur mánuð- ur síðan bréfið var sent.“ Haraldur segir að búið sé að kæra veiðileyfissviptinguna á Þor- steini BA til Fiskistofu. „Ef Fiski- stofa tekur ekki þau rök gild sem gefa skýringar á hlutunum verð- ur þetta kært til sjávarútvegsráðu- neytisins. Þá fer það bara eftir svari ráðuneytisins í hvaða farveg þetta fer.“ Vilja 148 tonn Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur óskað eftir því við sjávarútvegsráð- herra að 148 tonna byggðakvóta verði ráðstafað til vinnslu hjá Perlufiski ehf. á Bíldudal. Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vestur- byggðar, hafði ekki heyrt af löndun báta Perlufisks framhjá vigt. „Mér finnst full ástæða til þess að end- urskoða þessa úthlutun ef þetta er raunin. Eins og ég segi kem ég alveg af fjöllum með þetta,“ sagði Ragnar en hann er í fríi á Kanarí- eyjum. Úlfar B. Thoroddsen, for- seti bæjarstjórnar Vesturbyggð- ar, sagðist ekkert vita um málið. „Bæði mun ég fá upplýsingar frá Fiskistofu um hvað málið snýst og hins vegar leggja það fyrir þá sem hafa fengið aflaheimildirnar. Hins vegar er málið það að Perlufiskur er sá aðili sem er með fiskvinnsl- una á Bíldudal og því verður ekk- ert snúið við og sett í hendurnar á einhverjum öðrum. Sé þetta svona eins og þú ert að lýsa því er það bara klemma sem við verðum ein- hvern veginn að leysa.“ Skapar mikla vinnu Aðspurður hvort það komi til greina að svipta fyrirtækið byggðakvótanum segir hann nýj- an flöt kominn upp. „Það þýðir að ef þeir hætta erum við að fella niður atvinnu á Bíldudal. Ég get ekki svarað þessu fyrr en ég er bú- inn að skoða málið og horfa á all- ar hliðar þess og sjá hvaða mögu- leika við eigum í stöðunni. En því miður, ef þetta er rétt sem þú ert að segja mér, er það afar slæmt,“ segir Úlfar. Að sögn Úlfars var gerð- ur samningur við Perlufisk fyr- ir þremur árum um vinnslu á byggðakvóta á Bíldudal sem hann segir að hafi gengið vel. „Bílddæl- ingar eru ánægðir og þetta fyrir- tæki hefur skapað nóga vinnu og jafnvel meiri vinnu en leit út fyrir í upphafi. Það voru því allir mjög ánægðir að hafa fengið þessa dug- andi stráka í þetta. Bestu mönn- um getur nú orðið á og fái menn sinn dóm hljóta menn að eiga aft- urkvæmt. Þótt ég yrði tekinn full- ur undir stýri og dæmdur fengi ég ökuleyfið aftur eftir eitt ár.“ Á sama tíma og bæjarstjórn Vesturbyggðar vill að sjávarútvegsfyrirtækið Perlufiskur fái byggðakvóta upp á 148 tonn er bátur sem fyrirtækið leigir að missa veiðileyfið vegna ólöglegrar framhjálöndunar. Annar bátur sem fyrirtækið gerir út missti veiðileyfið í þrjár vikur í janúar vegna ólöglegrar framhjá- löndunar. Hvorki bæjarstjóri né forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar vissu af veiðileyfissviptingunum. FÁI BYGGÐAKVÓTA ÞRÁTT FYRIR SVINDL JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is Bæjarstjórinn Vissi ekki um veiðileyf- issviptinguna. Vill endurskoða úthutun byggðakvótans. Bíldudalur Perlufiskur ehf. rekur fiskvinnslu á staðnum. Mér finnst full ástæða til þess að endurskoða þessa úthlutun ef þetta er raunin. Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanni Samfylkingar og varaformanni sjáv- arútvegsnefndar Alþingis, líst illa á að oddviti Tálknafjarðarhrepps, Eyrún I. Sigfúsdóttir, leigi út byggðakvóta með báti sínum. Hún telur það fullkom- lega óeðlilegt og segir þetta enn eina brotalömina í kvótakerfinu íslenska. Eyrún, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, hefur síðustu ár leigt út bát sinn og kvóta, þar á meðal byggða- kvóta sem báturinn Sæli UU-333 hefur fengið úthlutað. Hún segir út- leiguna tilkomna af illri nauðsyn og leggur áherslu á að kvótinn helst með þessu innan byggðarlagsins. Þá hafn- ar hún því að hún sé að hagnast á út- leigunni því með henni nái hún að- eins að mæta afborgunum. Ólínu finnst skrítið að byggðakvóta sé úthlutað til útgerðarmanna, sem augljóslega ætli ekki að veiða hann sjálfir. Hún telur að auka þurfi eftir- lit með úthlutun og veiðum byggða- kvóta. „Að byggðakvóta sé úthlutað til útgerðarmanna, sem augljóslega ætla ekki að veiða hann heldur hagnast á því að leigja hann út, er mjög óeðli- legt. Ég furða mig á því hvers vegna svo sé og velti fyrir mér eftirlitinu með þessu. Þetta er fullkomlega óeðlilegt,“ segir Ólína. „Þetta er ein af þeim brotalömum í kvótakerfinu sem byggist á því að út- gerðarmenn maka krókinn á því að leigja öðrum útgerðarmönnum. Þetta er leiguliðakerfi Það gerir það kannski skárra að í þessu tilviki er kvótanum haldið inn- an byggðarlagsins en mér finnst hún eigi ekki að fá úthlutað ef hún veiðir ekki sjálf.“ trausti@dv.is Ólína Þorvarðardóttir er óánægð með að útgerðarmenn ákveði að leigja út byggðakvóta: „Þetta er fullkomlega óeðlilegt“ Maka krókinn Ólína segir kvótakerfið vera leiguliðakerfi þar sem útgerðarmenn hagnast á því að leigja út kvóta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.