Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Blaðsíða 40
F Ö S T U DAG U R 26 . M AR S 201040
Regína Valbjörg Reynisdóttir og Hermann Marinó Maggýjarson
giftu sig í Ólafsvík 9. ágúst 2008 á sólríkum degi og héldu veislu
sem rennur þeim seint úr minni.
Slökkviliðsbíll
beið fyrir utan
kirkjuna
Brúðarbíllinn Regína og
Hermann fyrir framan heldur
óvenjulegan brúðarbíl.
Brúðhjónin
í fjörunni
Veðrið lék við
parið nýgifta.
Bræðurnir sprella Hermann og bróðir hans skelltu
sér í búninga og komu gestum veislunnar á óvart.
Mömmurnar komu á óvart Mæður
Regínu og Hermanns komu þeim á
óvart með Abba-dansatriði.
Þetta var geggjað. Veðr-ið var frábært, mat-urinn góður, sviðið i félagsheimilinu var
vel nýtt, skemmtiatriðin voru
mörg, bæði plönuð og óvænt
og allt í sambandi við veisluna
heppnaðist svakalega vel,“
segir Regína en fjölskylda og
vinir lögðu hönd á plóg til að
gera veisluna sem ánægjuleg-
asta.
Kirkjugestum brá heldur
betur í brún þegar þeir stigu
út úr kirkjunni og venjulegur
skreyttur bíll beið ekki brúð-
hjónanna. Í staðinn var for-
láta slökkviliðsbíll, Reo Stu-
debaker M 45 árgerð 1953,
sem Slökkviliðið í Ólafsvík
lánaði þeim. „Bílnum var
stillt upp fyrir framan kirkj-
una þegar allir voru komn-
ir inn í hana. Við sátum svo
aftan á honum niður í fjöru
þar sem teknar voru nokkrar
myndir. Svo lá leiðin í félags-
heimilið þar sem biðu okkar allir gestirnir með
freyðivín við hönd.
Slökkviliðið kom ekki bara við sögu með
bílnum heldur var það meira og minna þem-
að í gegnum allt brúðkaupið. Ástæðan fyrir því
er að Hermann er slökkviliðsmaður í Reykja-
vík og var vaktin hans meira og minna kom-
in til Ólafsvíkur til að vera viðstödd auk þess
sem hljómsveitin var mynduð úr meðlimum
Slökkviliðsins.
Eins og áður kom fram voru veislustjórar
veislunnar kynntir til leiks með látum. „Veislu-
stjórarnir voru vinkona mín og bróðir Her-
manns. Þegar allir voru sestir fylltum við sal-
inn af reyk með reykvél. Það var ákveðið að hafa
dimmt í salnum sem fólki þótti skrýtið. Lag-
ið Holding out for a hero
með Bonnie Tyler var sett
á fóninn og ljós sett í gang.
Vinkona mín lá „hjálpar-
vana“ á sviðinu og bróðir
Hermanns ráfaði um svið-
ið í reykköfunarbúningn-
um hans Hermanns til að
bjarga henni,“ segir Reg-
ína. „Fólk vissi ekki alveg
hvað var að gerast en það
áttaði sig fljótt á því. Ég
held að fólk hafi þá vitað
að þetta yrði skemmtilegt
kvöld.“
Þetta var ekki eina atriðið sem
kom á óvart í veislunni því mæð-
ur hjónanna tóku sig til, klæddu sig
upp í flottan diskóbúning og tóku
Abba-lag. „Það vissi enginn af þessu
atriði. Kjálkinn á pabba fór alveg
niður í gólf,“ segir Regína.
Brúðguminn sjálfur klæddi sig
úr sparifötunum og tók dansatriði
með bróður sínum sem kom gestum
einnig á óvart. „Þeir höfðu æft dans-
atriði fyrir fimmtugsafmæli mömmu
sinnar og það sló svona líka í gegn að
þeir ákváðu að krydda aðeins gamla
atriðið og sýna í brúðkaupinu. Svo
tóku líka vinkonur mínar Allt fyr-
ir ástina eftir Pál Óskar en hann er
í miklu uppáhaldi hjá mér. Það má
eiginlega segja að veislan hafi verið
skemmtiatriði út í gegn,“ segir hún.
„Svo var dansað fram eftir nóttu.“
Regína og Hermann,
sem bæði eru frá Ólafs-
vík, kynntust sumarið 1999
og hafa því verið saman
í ellefu ár. Bónorðið fékk
Regína í júlí 2007 á hótel-
herbergi í New York. „Við
vorum í Bandaríkjunum
í ferð til Boston og New
York. Bónorðið var mjög
óvænt. Ég á afmæli 29.
júlí og daginn áður eða
28. júlí vorum við uppi á
hótelherbergi og hann gaf
mér afmælisgjöfina þá.
Bónorðið kom í kjölfarið.
Hann gat eiginlega ekki
beðið eftir afmælisdegin-
um fyrst hann var kom-
inn með hringinn í hend-
urnar. Við giftum okkur
svo ári seinna,“ segir hún.
Regína og Hermann eiga
engin börn en eiga tvö
dýr, hundinn Mugg og
köttinn Kalla.
Hjónin hugsa með hlýju til veisl-
unnar góðu og eru þakklát vinum og
ættingjum sem lögðu hönd á plóg
við matinn, hljóðkerfi, myndatöku,
hljómsveit og ekki síst þeim sem
lögðu leið sína til Ólafsvíkur í brúð-
kaupið. „ Allt gistipláss var uppbók-
að og tjaldstæðið mikið notað. Fólk
er enn að minnast á þessa veislu í
dag og manni þykir rosalega vænt um
það,“ segir Regína. asdisbjorg@dv.is
Í hugum flestra er brúðkaupsdagurinn einn
eftirminnilegasti dagur lífs þeirra. Við sjáum um að
glæsileiki, stíll og frábær upplifun sé í hávegum,
hvort sem það á áð vera látlaust eða veigamikið,
þá höfum við lausnina.
veislur@simnet.iswww.menu4u.is
Er brúðkaup í vændum?
Vörur á verði fyrir þig
Kringlunni - Sími: 568 9955 - www.tk.is
RÚMFÖT - GLÖS - KRISTALL - KARÖFLUR - STELL
HNÍFAPARATÖSKUR - SKARTGRIPIR - TERTUDISKAR
ÍSLENSKAR HÖNNUNARVÖRUR - ÍSLENSK MYNDLIST
FURSTYNJAN
Söfnunarstell 13 teg. á lager - Pöntum inn í enn fleiri stell
www. tk . i s
Tilvonandi brúðhjón velkomin
að skrá óskalistann ykkar
Brúðhjónin fá fallega gjöf
40
ára
BrúðhjónaGjafir