Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Page 34
F Ö S T U DAG U R 26 . M AR S 201034
Við vorum bæði utan þjóð-kirkjunnar og þegar mað-ur er ekki í trúfélagi er ekki margt í boði. Við erum
kannski gamaldags en okkur fannst
rökrétt að gifta okkur því við viljum
eyða ævinni saman en við vildum
ekki gera það í kirkju eða hjá sýslu-
manni. Því ákváðum við að ganga í
Ásatrúarfélagið enda á félagið mjög
vel við okkur og okkar lífsskoðanir,“
segir Margrét Urður Snædal en hún
og eiginmaður hennar Ragnar Elías
Ólafsson létu pússa sig saman 8. ág-
úst 2008 að hætti ásatrúarmanna.
Einföld og falleg athöfn
Jónína K. Berg goði gaf hjónakorn-
in saman en athöfnin fór fram við
félagsheimilið Freyvang í Eyjafirði.
„Ásatrúarhjónavígslur fara yfirleitt
fram úti undir berum himni nema
það reynist ómögulegt vegna veðurs.
Við vorum heppin og fengum afar
indælt veður og athöfnin var stutt
og falleg,“ segir Urður og bætir við að
þau hafi valið að skiptast á hringum.
„Goði sagði það okkur í sjálfsvald sett
hvort við myndum skiptast á ein-
hverju öðru og við völdum að nota
trúlofunarhringana okkar. Hún helg-
aði blóthring fyrir athöfnina og við
völdum að standa þar saman í stað
þess að láta föður minn eða einhvern
annan leiða mig til hans því við vild-
um hefja okkar hjónaband sem jafn-
ingjar,“ segir hún og bætir við að í at-
höfninni hafi þau verið minnt á þær
skyldur og ábyrgð sem fylgi hjóna-
bandi. „Svo var heitið á Frigg, Freyju
og Þór, drukkið af horni og við lýst
hjón. Mjög einfalt og fallegt,“ segir
hún brosandi.
Þola ekki væmni
Urður segir að eftir athöfnina hafi
verið boðið upp á kleinur, flatbrauð
og kaffi en um kvöldið hafi ver-
ið slegið upp heljarinnar grillpartíi.
„Við þolum ekki væmni og fórum
inn í þetta með það að leiðarljósi
að forðast öll formlegheit. Dagurinn
var svolítið í anda gamaldags sveita-
brúðkaupa nema veislan stóð ekki
í marga daga. Við buðum upp á 16
grilluð lambalæri sem höfðu mallað í
holu í jörðinni yfir daginn og höfðum
matinn einfaldan líkt og allt annað
og vorum hvorki með marga rétti né
röðuðum fólki niður á borð. Við buð-
um líka bara skemmtilegu fólki og
treystum á að það gæti skemmt sér.“
Spútnik og skotapils
Brúðarkjóllinn var einnig með
óhefðbundnu sniði en Urður fann
kjólinn í versluninni Spútnik. „Þetta
var ljósgrænn og gullfallegur kjóll
sem ég borgaði 1500 krónur fyrir.
Fötin hans Ragnars voru mun dýr-
ari en hann var í skotapilsi og tilheyr-
andi.“ Aðspurð segir hún fjölskyldur
þeirra og vini hafa brugðist vel við
þegar þau tilkynntu að þau ætluðu
að gifta sig að ásatrúarhætti. „Fólk-
ið okkar þekkir okkur vel og vita að
við erum ekki þau venjulegustu á
svæðinu. Sumir héldu að við yrðum
að fara einnig til sýslmanns en okkur
tókst að sannfæra þá um að ásatrúar-
brúðkaup eru lögleg og gild. Ásatrú-
arfélagið er löggilt trúfélag og hjón
sem eru gefin saman innan félags-
ins eru jafngild þeim sem fara hefð-
bundnu leiðina.“
Brúðarvals undir Megasi
Urður segir daginn hafa verið ein-
faldlega ógleymanlegan. „Þetta var
alveg dásamlegt og margir gest-
anna sögðust aldrei hafa verið í
eins skemmtilegri brúðkaupsveislu.
Flestir fögnuðu skorti á tilstandi og
fannst þægilegt að geta mætt í galla-
buxum og ullarpeysu en við höfð-
um skrifað á boðskortin að form-
legur klæðnaður væri óæskilegur.
Pabbi minn var allavega afskaplega
hamingjusamur með að þurfa ekki
að mæta í jakkafötum,“ segir hún og
bætir við að þau Ragnar hafi stigið
brúðarvalsinn við lagið María María
í stíl Megasar. „Þetta var bara alveg
bráðskemmtilegt og ballið stóð langt
fram á rauða nótt.“ indiana@dv.is
Margrét Urður Snædal og Ragnar Elías Ólafsson létu pússa sig saman að hætti ásatrúarmanna. Urður og
Ragnar voru utan trúfélaga en vildu ekki gifta sig hjá sýslumanni og fundu sig best hjá Ásatrúarfélaginu.
Þau eru alsæl með ákvörðunina og segja daginn ógleymanlegan en þau fóru inn í daginn með það að leiðar-
ljósi að forðast öll formlegheit.
Hófum hjónabandið
sem jafningjar
„Fólkið okkar
þekkir okkur
vel og veit að
við erum ekki
þau venjuleg-
ustu á svæðinu.“
Í skotapilsi Ragnar valdi sér að klæðast
skotapilsi og tilheyrandi á brúðkaups-
daginn. Hér fer hann með heitin sín og
drekkur af horninu.
Ásatrú Goðinn helgar stað og stund.
Brúðkaupskossinn Urður og Ragnar
voru utan trúfélaga og fundu sig vel innan
Ásatrúarfélagsins. Þau þola ekki væmni og
vildu hafa brúðkaupið einfalt, fallegt og
skemmtilegt. MYNDIR HELGI STEINAR HALLDÓRSSON
Nýgift Urður og Ragnar
formlega vígð saman.