Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Blaðsíða 60
KOMIÐ ÚT
60 FÖSTUDAGUR 26. mars 2010
NAFN OG ALDUR?
„Unnur Eggertsdóttir, 17 ára.“
ATVINNA?
„Solla stirða.“
HJÚSKAPARSTAÐA?
„Einhleyp.“
FJÖLDI BARNA?
„Engin sem ég veit af.“
HEFUR ÞÚ ÁTT GÆLUDÝR?
„Ég hef átt kínverskan bardagafisk, skjaldböku,
labrador-hund og núna síðast bættist við golden
retriever-hvolpur í fjölskylduna, hún Ugla.“
HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST?
„Mig minnir að það hafi verið Hjaltalín og
Hjálmar sem var eintóm snilld.“
HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN?
„Nei, ég er ekki alveg nógu svöl“.
HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN?
„Herðaslá úr Júníform sem ég fékk í fyrra.“
HEFUR ÞÚ FARIÐ Í MEGRUN?
„Ég hef ekki nógu mikinn aga í svoleiðis.“
HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM
MÓTMÆLUM?
„Nei.“
TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF?
„Já, maður heldur í vonina um að það sé eitt-
hvað sem bíði manns.“
HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ
HAFA HALDIÐ UPP Á?
„Þau eru svo mörg! Ég var alveg hræðileg á tíma-
bili.“
HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR?
„Seven Years með Hjaltalín kemur okkur vin-
konunum alltaf í gang.“
HVERS HLAKKARÐU MEST TIL?
„Latabæjarhátíðarinnar á laugardaginn!“
HVAÐA MYND GETUR ÞÚ HORFT Á AFTUR OG
AFTUR?
„Forrest Gump, hún er bara einfaldlega besta
mynd í heimi.“
AFREK VIKUNNAR?
„Að hafa mætt á réttum tíma í skólann í
morgun.“
HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR?
„Nei, en það var samt sígauni á Spáni sem bauð
mér það. Kennarinn minn var ekki lengi að reka
hana í burtu.“
SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI?
„Ekki vel, ég læt litla bróður minn sjá um
það.“
VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPUSAMBANDIÐ?
„Ég veit ekki nógu mikið um þetta til að mynda
mér alvöru skoðun. Mig langar heldur eiginlega
ekkert til þess.“
HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU?
„Að hafa alltaf eitthvað til að brosa og hlæja yfir.“
HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MUNDIR ÞÚ VILJA
HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ?
„Það væri ekki leiðinlegt að djamma með
forsetahjónunum. Fá kannski lánaðan pels
hjá Dorrit?“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING MYNDIR ÞÚ HELST
VILJA HITTA OG AF HVERJU?
„Hefði viljað hitta Michael Jackson og bjarga
honum frá dauðanum.“
HEFUR ÞÚ ORT LJÓÐ?
„Já, þau eru samt ekki upp á marga fiska.“
NÝLEGT PRAKKARASTRIK?
„Bekkurinn stal gullfisk frá öðrum bekk um
daginn. Þá var mikið hlegið.“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLINGI LÍKIST ÞÚ
MEST?
„Pabba, hann er samt ekki enn þá orðinn
frægur.“
ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNDA HÆFILEIKA?
„Ég get bakkað í stæði. Samt bara þegar enginn
er að horfa.“
Á AÐ LEYFA ÖNNUR VÍMUEFNI EN ÁFENGI?
„Alls ekki.“
HVER ER UPPÁHALDSSTAÐURINN ÞINN?
„Sumarbústaðurinn hjá ömmu og afa á góðum
sumardegi.“
HVAÐ ER ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ GERIR ÁÐUR
EN ÞÚ FERÐ AÐ SOFA?
„Tel hvað ég næ að sofa í marga tíma.“
HVER ER LEIÐ ÍSLANDS ÚT ÚR KREPPUNNI?
„Bara að leyfa mér og vinkonum mínum að sjá
um þetta.“
Unnur Eggertsdóttir hreppti á dögunum hlutverk
Sollu stirðu í Latabæ. Hún mun þreyta frumraun sína
á sviði á Latabæjarhátíðinni á laugardaginn.
VILDI BJARGA LÍFI
MICHAELS JACKSON
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. 11–16, sunnud. 14–16
Listmunauppboð á næstunni
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma
551-0400, 896-6511 (Tryggvi),
845-0450 (Jóhann)
Erum að taka á móti verkum núna í
Galleríi Fold við Rauðarárstíg
– VERKIN TALA
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200
www.velfang.is • velfang@velfang.is
Fr
um
Nýtt og traust umboð
fyrir á Íslandi
varahlutir
þjónusta
verkstæði
vélar
KOMIÐ ÚT