Lögmannablaðið - 01.06.2003, Síða 5

Lögmannablaðið - 01.06.2003, Síða 5
5 AÐALFUNDUR Lögmannafélags Íslands2003 var haldinn föstudaginn 21. mars s.l. Á dagskrá fundarins voru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Fundarstjóri var Ásgeir Thoroddsen, hrl. og fundarritari Katrín Helga Hallgrímsdóttir, hdl. Skýrsla stjórnar og ársreikningur. Formaður félagsins, Gunnar Jónsson, hrl., flutti skýrslu stjórnar og vísaði m.a. í prentaða ársskýrslu sem send var félagsmönnum fyrir fund- inn. Gunnar lýsti ánægju sinni með afkomu félagsins sem var jákvæð en það er aðeins í annað skiptið á undanförnum áratug sem ekki hefur orðið tap á rekstrinum. Formaðurinn vék því næst að umræðum sem urðu á síðasta aðalfundi um endurmenntunarskyldu lögmanna, sem hann upp- lýsti að stjórn félagsins hefði haft til umræðu á starfsárinu og viðað að sér upplýsingum málið. Kannað hefði verið hvernig þessu væri háttað annars staðar og reifuð rök með og á móti. Þá vék formaðurinn að hugmyndum frá síðasta aðalfundi um nauðsyn þess að víkka út heimildir til gjaf- sóknar með möguleikum til gjafsóknar annars staðar en fyrir dómstólum, aðallega innan stjórnsýslunnar. Hefði stjórn félagsins haft málið til skoðunar og væri eðlilegt að félagið ynni áfram að framgöngu slíkra hugmynda. Í því sambandi vísaði formaðurinn til þess að hagsmunagæsla fyrir ýmsum stjórnvöldum væri orðin flókin og erfið og hinn almenni borgari réði oft ekki við slíkt án lögfræðilegrar aðstoðar. Lögmenn hefðu hlutverki að gegna við að sjá til þess að menn gætu leitað réttar síns. Formaðurinn gerði að umtalsefni slaka þátttöku félagsmanna í við- burðum á vegum félagsins og benti m.a. á að á aðalfund félagsins mættu einungis um 5% félags- manna, þrátt fyrir þá staðreynd að félagið væri skylduaðildarfélag. Taldi formaðurinn það vera verk stjórnarinnar að bæta úr þessu og leita leiða til að efla áhuga félagsmanna á störfum félagsins, enda nauðsynlegt að vera í góðum tengslum við félagsmenn til þess að ná að reka félagið í sam- ræmi við tilgang þess. Formaðurinn þakkaði sam- starfsmönnum sínum og sérstaklega þeim Láru V. Júlíusdóttur hrl. og Helga Jóhannessyni hrl., sem hurfu úr stjórn, fyrir samstarfið. Einnig þakkaði hann starfsmönnum félagsins fyrir samstarfið. Að loknu ávarpi formannsins, gerði Ingimar Ingason, framkvæmdastjóri félagsins, grein fyrir ársreikningi þess og Námssjóðs fyrir árið 2002, en reikningurinn fylgdi prentaðri skýrslu stjórnar. Fjallaði framkvæmdastjórinn um sameiginlega niðurstöðu reikninga hins lögbundna hluta félags- ins og félagsdeildar þess. Fram kom í máli fram- kvæmdastjóra að niðurstaða af rekstri félagsins í heild hafi verið jákvæð og tekjur umfram gjöld numið rúmri 1,4 milljón á rekstrarárinu. Væri tæp 1 milljón af þessum afkomubata tilkomin vegna breyttra uppgjörsreglna, en reiknuð gjöld vegna verðbreytinga væru ekki lengur reiknuð inn í fjár- magnsliði í rekstrarreikningi. Að teknu tilliti til fjármagnsliða hafi hagnaður skyldubundna hlut- ans numið 1445 þúsund krónum en tap félags- deildar rúmum 22 þúsund krónum. Framkvæmda- stjórinn beindi síðan máli sínu að helstu breyt- ingum á tekju- og gjaldaliðum og þeim rekstrar- L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð AÐALFUNDUR LÖGMANNAFÉLAGS ÍSLANDS Gunnar Jónsson formaður LMFÍ í ræðustól.

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.