Lögmannablaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 27

Lögmannablaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 27
27 félagsins 5 tíma skráða sem endurmenntun á ári fyrir störf sín í þessum nefndum. Þeir sem ljúka fleiri tímum en 80 á fimm ára tímabilinu geta tekið umfram tímana yfir á næsta tímabil. Hægt er að veita undanþágur frá lágmarskröfum um endurmenntun í tilteknum tilvikum, t.d. ef hlutað- eigandi er fjarverandi vegna langvarandi veik- inda. Hafi lögmaður ekki lokið tilskyldum tíma- fjölda á tímabilinu, þarf hann að greiða NOK 3.000 gegn því að fá send tiltekin námskeiðs- gögn. Einnig þarf viðkomandi að greiða norska lögmannafélaginu sekt, sem ræðst af fjölda tíma sem vantar upp á að 80 tíma skyldunni sé full- nægt, en sektarfjárhæðin er á bilinu NOK. 2.000 til 22.000 allt eftir því hve mörgum tímum er ólokið. Það er á ábyrgð sjálfstætt starfandi lögmanna að fulltrúar þeirra ljúki tilskyldum tímafjölda og geta þeir orðið greiðsluskyldir gagnvart norska lögmannafélaginu, hafi fulltrúar þeirra ekki lokið þeim tímafjölda og ekki greitt sektina. Sé full- nægjandi tímafjölda ekki skilað eða sekt greidd, er hægt að grípa til róttækari ráðstafana á grund- velli samþykkta norska lögmannafélagins. Reglur um skylduendurmenntun lögmanna í Belgíu (Flandri) er með svipuðu sniði og í Nor- egi. Þeir lögmenn sem reglurnar ná til þurfa að ljúka að lágmarki 16 endurmenntunarstundum á ári, þar af a.m.k. 8 stundum í hreinni lögfræði og allt að 8 stundum í „practical matters“. Inneign, þ.e. tímasókn umfram skyldu má færa á milli ára. Einingar eru gefnar fyrir kennslu eða mætingu á námskeið eða seminör, framsögu eða mætingu á ráðstefnur, greinaskrif á sviði lögfræði og umfangsmeiri fræðistörf, þ.e. ritun fræðibóka. Sem dæmi um einingafjölda má nefna að mæting á námskeið gefur 1 einingu fyrir hvern setinn tíma, kennsla veitir 2 einingar fyrir hverja kennda stund, ritun fræðigreinar gefur 3 einingar og ritun fræðirits 16 einingar. Sérstök nefnd, sem sam- anstendur af fjórum lögmönnum og þremur laga- prófessorum metur hvaða framlag gefur einingar og hvað margar einingar hvert framlag veitir. Innan samtaka evrópskra lögmannafélaga (CCBE), sem Lögmannafélagið er aðili að, starfar sérstök nefnd sem vinnur að tillögu um skylduendurmenntun lögmannna í aðildarfé- lögum þess. Markmið CCBE með upptöku slíkrar skyldu er m.a. að viðhalda og bæta þekkingu lög- manna sem sérfræðinga á sviði lögfræði og jafn- framt beitingu þekkingarinnar. Með því er leitast við að tryggja tilvist stéttarinnar, auka gæði lög- mannsþjónustu, að vernda þá sem kaupa lög- mannsþjónustu og að tryggja nægt framboð end- urmenntunarnámskeiða á sviði lögfræði. Þegar liggja fyrir drög CCBE að grunnreglum um skyldu endurmenntun lögmanna, sem svipar mjög til þess sem tekið hefur verið upp í Noregi og Belgíu. Hins vegar er ekki ljóst hvenær þessar reglur verða lagðar fyrir í endanlegu formi né hvenær þær kunna að verða samþykktar. Með því að taka upp endurmenntunarskyldu telur stjórn Lögmannafélagsins að hægt verði að efla þekkingu lögmanna, hæfni þeirra og vellíðan í starfi. Með því verði lögmenn færari til að takast á við og leysa sífellt fjölbreyttari og flókn- ari verkefni sem þeir fá til úrlausnar og sem sam- ræmist þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma. Í þeim löndum sem endurmenntun- arskylda hefur verið tekin upp hefur þetta fyrir- komulag einnig aukið stéttarvitund og samheldni lögmanna auk þess að hafa í för með sér jákvæð ímyndaráhrif út á við. Sama er að segja um reynslu annarra starfsstétta hérlendis og erlendis, sem tekið hafa upp endurmenntunarskyldu en slíkar reglur hafa t.d. gilt um félagsmenn FLE, félags löggiltra endurskoðenda, um árbil, saman- ber reglurgerð nr. 673/1998 og gefist vel. L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð Skil fjárvörsluyfirlýsinga vegna ársins 2002 Félagið minnir sjálfstætt starfandi lög- menn á að skila inn yfirlýsingum vegna fjárvörslureikninga og verðbréfaskrár fyrir árið 2002, en skilafrestur rennur út 1. september n.k. Eyðublöð hafa verið send lögmönnum, en eyðublaðið má einnig finna á heima- síðu félagins, en slóðin er: www.lmfi.is/documents/eydublad _fjarvorslur.pdf

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.