Lögmannablaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 10

Lögmannablaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 10
10 Hið æsispennandi meistaramót LMFÍ í knatt-leik innanhúss var haldið þann 9. maí sl og tóku átta lið þátt í keppninni. Óhætt er að segja að mikil spenna hafi verið fyrir mótið þar sem sumir voru þeirrar skoðunar að Mörkin myndi þurfa að horfa á eftir titlinum. Svo voru aðrir að vonast eftir að bleika liðið, sem setti svo litríkan svip á síðasta mót, myndi mæta aftur til leiks og festa sig í sessi. Eins og gefur að skilja þurfa strangar reglur að gilda þegar lögmenn kljást, hvort sem það er innan eða utan vallar, innan eða utan dómssalar. Eða eins og máltækið segir: „Sjaldan er gott að skilja starfið eftir heima.“ Aga- og íþróttanefnd LMFÍ hefur sett ákveðnar reglur sem birtast nú í fyrsta sinn opinberlega á prenti. Alls átta lið kepptu að þessu sinni og mun það vera metþátttaka að teknu tilliti til Alþingiskosn- inga næsta dag þar sem margir lögmenn voru einnig að reyna að ná boltanum (og tókst þó nokkrum...). Mótið tókst í alla staði mjög vel, keppendur sýndu mótherjum sínum fyllstu kurteisi í hví- vetna, enginn fór meiddur af velli, enginn var sár og enginn var reiður. Keppt var í tveimur riðlum og fór svo sem forspáir menn höfðu sagt; Mörkin vann ekki í þetta sinn og þær bleiku birtust ekki að nýju sem voru vonbrigði. Úrslit urðu eftirfarandi: 1. sæti Reynsla og léttleiki 2. sæti Mörkin 3. sæti Grínarafélagið Endanleg niðurstaða í riðlakeppninni: A riðill: 1. Grínarafélagið 2 1 0 5:2 7 2. Mörkin 2 0 1 7:4 6 3. KF Þruman 1 1 1 3:3 4 4. LA Law 0 0 3 1:7 0 B riðill: 1. Eldingin 2 1 0 9:4 7 2. RogL 2 0 1 10:8 6 3. Logos 0 2 1 1:5 2 4. Íslandsbanki 0 1 2 2:5 1 Undanúrslit: Eldingin – Mörkin 1-2 Grínarafélagið – RogL 2-3 Leikið um 3. sætið: Grínarafélagið – Eldingin 3-2 Úrslitaleikur: RogL – Mörkin 2-0 2 / 2 0 0 3 MEISTARAMÓT í knattleik innanhúss Hið sigursæla lið, Reynsla og léttleiki, hampar hér glaðlega bikarnum. Námskeið Ég tek að mér að kenna knattspyrnu. M.a. yrði tekið fyrir hvernig á að rífast við dómarann, sparka í andstæðinginn án þess að vera rekinn útaf, leikræn tjáning ef brotið er á leikmanni, val búninga ofl., myndi henta vel fyrir næsta fótboltamót. Smári Hilmarsson hdl

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.