Lögmannablaðið - 01.06.2003, Page 6
6
liðum sem tóku miklum breytingum eða kölluðu
að öðru leyti á sérstaka umfjöllun, þar sem hann
upplýsti m.a. að útistandandi árgjöld félagsins
hefðu lækkað um 1,2 milljónir króna, sem aðal-
lega mætti rekja til róttækra innheimtuaðgerða
gagnvart skuldurunum.
Tillaga stjórnar um hækkun árgjalds til
Lögmannafélags Íslands
Á aðalfundinum var samþykkt tillaga stjórnar
um hækkun árgjalds til skyldubundna hlutans úr
kr. 34.000 í kr. 37.000. Í greinargerð formanns
með tilögunni benti hann á að félagið ætti að vera
rekið réttu megin við núllið og taldi hæpið að
óbreytt árgjald tryggði það. Fyrir lægi að kostn-
aður vegna fasteignar og forsætisfundar norrænu
lögmannafélaganna yrði talsverður á árinu, og að
sú 3000 króna hækkun sem tillaga væri gerð um
svaraði aðeins til tæplega helmings af vísitölu-
hækkun þess tíma sem liðinn væri síðan árgjaldið
var síðast hækkað.
Kosningar.
Gunnar Jónsson, hrl. gaf kost á sér til endur-
kjörs til embættis formanns félagsins og var hann
sjálfkjörinn í embættið. Auk Gunnars voru kjörnir
í aðalstjórn til næstu tveggja ára, þau Ólafur
Rafnsson, hdl. og Ragnheiður Bragadóttir, hdl., en
auk þeirra sitja áfram í stjórn þeir Aðalsteinn Jón-
asson, hrl., og Jóhannes Karl Sveinsson, hrl. Í
þriggja manna varastjórn voru kjörin Gunnar
Sturluson, hrl., Margrét Vala Kristjánsdóttir, hdl.
og Jóhannes Albert Sævarsson, hrl. Gústaf Þór
Tryggvason hrl. og Othar Örn Petersen hrl. voru
kjörnir endurskoðendur og Þorbjörg I. Jónsdóttir,
hdl., til vara. Í laganefnd voru kjörin Erlendur
Gíslason, hrl., Ólafur Haraldsson, hrl., Jóhannes
Rúnar Jóhannsson, hrl., Sif Konráðsdóttir, hrl. og
Oddný Mjöll Arnardóttir, hdl. Í stjórn Námssjóðs,
sem jafnframt gegnir störfum bókasafnsnefndar
félagsins, voru þau Erla S. Árnadóttir, hrl., Jóhann
Níelsson, hrl. og Eyvindur Gunnarsson, hdl., kos-
inn til þriggja ára.
Tillaga um breytingar á samþykktum
félagsins
Samþykkt var breyting á 10. gr. samþykkta
félagsins með því að bæta nýjum málslið við 2.
mgr. 10. gr. þeirra, sem er svohljóðandi: „Þeir sem
hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins
eða varastjórn skulu tilkynna það til stjórnar ekki
síðar en 7 dögum fyrir aðalfund“.
Önnur mál
Undir liðnum önnur mál var eftirfarandi
ályktun lögð fyrir fundinn og samþykkt: „Aðal-
fundur Lögmannafélags Íslands, haldinn á Radis-
son SAS Hótel Sögu, föstudaginn 21. mars 2003,
felur stjórn félagsins að vinna tillögur að reglum
um endurmenntunarskyldu lögmanna. Höfð verði
hliðsjón af sambærilegum reglum nágrannaþjóða
þar um og starfi CCBE að endurmenntunar-
málum. Slíkar tillögur verði kynntar félags-
mönnum á almennum félagsfundi og síðan bornar
upp til samþykktar eða synjunar.“
Í máli formanns félagsins kom hann inn á að
CCBE – samtök evrópskra lögmannafélaga –
ynnu að samræmdum reglum um menntun og
2 / 2 0 0 3
Fundarmenn á aðalfundi 2003.