Lögmannablaðið - 01.06.2003, Page 13
13L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð
að verða að sjá til þess að þjónustan sem greitt er
fyrir sé veitt. Það er fráleitt að aukinn málafjöldi
hjá sýslumannsembættum leiði til aukinna tekna
ríkissjóðs, en hann sjái ekki til þess að málunum
sé sinnt innan eðlilegs frests. Ég leyfi mér að full-
yrða að hugsun löggjafans hafi ekki verið sú að
gjöldin væru vaxtalaus lán til ríkissjóðs.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að skuld-
arar geta látið hjá líða að mæta við fjárnám í
Reykjavík, án þess að það varði þá nokkru í raun.
Sé fjárnámsboðun ekki sinnt er mál sent í lög-
regluboðun. Þar hefur verklag því miður verið
með þeim hætti að ekki er annað gert en senda
kvaðningu og hringja í menn. Þetta vita þeir sem
skuldseigastir eru og láta sér því fátt finnast um
slíkar kvaðningar. Lögreglan hefur ekki einungis
heimild að lögum til þess að handtaka menn og
færa þá til sýslumanns vegna aðfarar, henni ber að
gera það að boði sýslumanns. Þeirri skyldu hefur
hins vegar ekki verið sinnt, ótrúlegt sem það er og
óþolandi með öllu. Fulltrúar félagsins hafa rætt
þetta við sýslumanninn í Reykjavík og fulltrúa
dómsmálaráðuneytisins. Viðmælendur okkar voru
sammála okkur um að vandamálið yrði að leysa
og vonandi tekst það. Þá hefur Hæstiréttur einnig
lagst á sveif með þeim sem vandamálið vilja
leysa, en í nýlegum dómi (90/2003) undirstrikaði
hann skyldu lögreglu til þess verða við boði
sýslumanns um að færa menn, sem ekki sinntu
kvaðningu, fyrir sýslumann. Vonandi heyrir þetta
vandamál senn sögunni til.
Ég óska lögmönnum gleðilegs sumars og lækk-
andi forgjafar.
Meira
af
fótbolta…
Eins og fram kemur á bls 10
sigraði Reynsla og léttleiki
meistaramót LMFÍ í knattleik
innanhúss. Vegna þrábeiðni
liðanna sem lentu í öðru og
þriðja sæti eru hér með birtar af
þeim myndir.
Mörkin varð að sjá á eftir gullinu en
fékk silfrið. Liðið brosti engu að síður í
gegnum tárin til ljósmyndarans, enda
er málið að vera með!
Grínarafélaginu
fannst ekkert fyndið
við að verma þriðja sætið.