Lögmannablaðið - 01.06.2003, Page 19

Lögmannablaðið - 01.06.2003, Page 19
19L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð Miðvikudaginn 2.apríl sl. stóðu Lög- mannafélag Íslands og Lögfræðinga- félag Íslands fyrir hádegisverðarfundi þar sem Oddný Mjóll Arnardóttir fjallaði um doktorsrannsókn sína „Equality and Nondiscrimination in the European Convention on Human Rights; Towards a Substantive Approach“, sem hún varði í maí 2002. Í DOKTORSRITGERÐINNI fjallar Oddný um jafnræðisreglur 14. gr. Mannréttindasáttmála Evr- ópu og 1. gr. viðauka nr. 12 við sáttmálann sem ekki hefur enn tekið gildi. Sett er fram módel þriggja þátta sem hafa áhrif á það hversu strangt jafnræðisreglu 14. gr. sáttmálans er beitt í dóma- framkvæmd. Þessir þættir eru tegund mismun- unar, grundvöllur mismununar og þeir hagsmunir sem í húfi eru. Undir þeim áhrifaþætti sem nefn- ist tegund mismununar er sett fram nýtt hugtak, „passive discrimination“ eða óvirk mismunun, sem ætlað er að ná yfir jákvæðar skyldur ríkja. Það hefur verið viðtekið viðhorf að dómafram- kvæmd á grundvelli 14. gr. sáttmálans sé óskýr og ósamstæð. Það módel áhrifaþátta sem þróað er í rannsókninni skýrir þessa dómaframkvæmd og felur í sér nálgun sem er hæf til að takast á við hinn nýja viðauka nr. 12 við sáttmálann. Það er einnig niðurstaða rannsóknarinnar að áhrifaþætt- irnir skýri það hvenær sönnunarbyrði í máli flyst frá einstaklingi yfir á ríki sem og það hvenær 14. gr. sáttmálans er tekin til skoðunar í máli. Grein- ing áhrifaþátta í rannsókninni styður þá ályktun að nálgun Mannréttindasáttmálans sé í auknum mæli að færast frá því að vera formleg yfir í að vera efnisleg. Doktorsritgerð Oddnýjar er nú komin út í bókinni „Equality and Non-Discrimination under the European Convention on Human Rights“ sem tilheyrir ritröðinni International Studies in Human Rights og gefin er út af Kluwer Law International. Bókin fæst í Bóksölu Stúdenta. Hádegisverðarfundur LMFÍ og LÍ: Jafnrétti og bann við mismunun í Mannréttindasáttmála Evrópu Oddný Mjöll Arnardóttir í ræðustól. Um 70 manns mættu á fundinn og hlustuðu á framsögu Oddnýjar.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.