Lögmannablaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 25
25
eða 10 vikur, sem getur verið mjög þýðingarmikið
þegar nauðsynlegt er að fá skjóta úrlausn mála.
Þegar fresturinn er liðinn eiga að liggja fyrir til-
lögur að lausn. Þær tillögur eru þó ekki bindandi
fyrir þann sem kvartar að því leyti að honum er
ekki skylt að fallast á þær og er því heimilt að
hefja formlega málsmeðferð ef honum býður svo
við að horfa.
Hvað greinir SOLVIT
frá öðrum úrræðum?
Frá því að SOLVIT-úr-
lausnarnetið tók til starfa
hefur fjöldi kvartana aukist
jafnt og þétt. Flestar þeirra
hafa varðað frjálsa vöru-
flutninga, almannatrygging-
ar og viðurkenningu starfs-
réttinda og prófskírteina.
Það sem greinir SOLVIT frá
þeim úrræðum, sem ríkis-
borgarar og fyrirtæki EES-
ríkjanna hafa til þess að
koma kvörtunum sínum á
framfæri, er að hægt er að
beina þeim beint til viðkom-
andi ríkis, milliliðalaust. Þannig eru viðkomandi
ríki virkjuð til að leysa þau vandamál sem koma
upp við framkvæmd reglnanna sín á milli og án
aðkomu stofnana Evrópusambandsins og EFTA-
ríkjanna innan EES. SOLVIT er því viðbót við
þær leiðir sem ríkisborgurum aðildarríkja Evrópu-
sambandsins stendur til boða við að koma kvört-
unum sínum á framfæri, en þar nægir að nefna
framkvæmdastjórn ESB, Evrópuþingið og
evrópska umboðsmanninn. Þá er SOLVIT viðbót
við þær leiðir sem ríkisborgurum EFTA-ríkjanna
innan EES stendur til boða en þær eru að vísa
málum til eftirlitsstofnunar EFTA og EFTA-dóm-
stólsins. Munurinn er sá að SOLVIT er net sem
ætlað er að leysa vandamál með óformlegum hætti
og er af þeim sökum aðgengilegra fyrir einstak-
linga og fyrirtæki, auk þess sem það er þeim að
kostnaðarlausu. Þess má geta að eftirlitsstofnun
EFTA er nú að kanna möguleika á og gagnsemi
þess að skrá kvartanir, sem stofnuninni berast, í
SOLVIT.
Árangur byggist á samvinnu
Forsenda fyrir árangri af SOLVIT-úrlausnar-
netinu er að samstarf milli SOLVIT-stöðvanna sé
gott og að starfsmenn þeirra þekkist og vinni ein-
huga að því sameiginlega verkefni að yfirstíga
hindranir í vegi sameiginlegs innri markaðar.
Óhætt er að segja að vel hafi tekist til á þeim stutta
tíma sem liðinn er en yfir eitt hundrað mál hafa
komið til úrlausnar SOLVIT. Dæmi um mál sem
leyst hefur verið með aðstoð SOLVIT er kvörtun
fransks ríkisborgara vegna erfiðleika við að afla
viðurkenningar spænskra yfirvalda á starfsleyfi
sínu sem læknir. Í kjölfar afskipta viðkomandi
SOLVIT-stöðva var starfs-
leyfi hans viðurkennt og
hann gat hafið störf sem
læknir á Spáni.
Evrópusambandið bindur
miklar vonir við þetta nýja
úrlausnarnet og það fyrir-
komulag að ríkin leysi mál
sjálf sín á milli á skjótan og
árangursríkan hátt og hefur
af þeim sökum hvatt EES-
ríkin til að efna til kynning-
arátaks á úrlausnarnetinu
sem nú hefur staðið yfir frá
áramótum. Hvað EFTA-
ríkin innan EES varðar
markar þetta úrlausnarnet
ákveðin tímamót. Með þátttöku sinni í SOLVIT
standa þau jafnfætis aðildarríkjum Evrópusam-
bandsins en eðli málsins samkvæmt þurfa EFTA-
ríkin samkvæmt EES-samningnum að sýna fram á
að sömu réttindi eigi við um þau og önnur aðildar-
ríki Evrópusambandsins. Að auki opnast ríkis-
borgurum EFTA-ríkjanna innan EES ný leið og
óformlegri en áður til að koma kvörtunum sínum
á framfæri vegna reglna sem varða EES-samning-
inn. Það verður því fróðlegt að fylgjast með
hvernig til mun takast með SOLVIT í framtíðinni.
Upplýsingar um SOLVIT á Íslandi:
Viðskiptaskrifstofa utanríkisráðuneytisins,
Rauðarárstíg 25
105 Reykjavík
solvit@utn.stjr.is
Sími: 545 9900 / Símbréf: 562 4878
Heimasíða SOLVIT: http://europa.eu.int/solvit
L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð
Þannig á SOLVIT að
auðvelda fólki og
fyrirtækjum, sem býr
eða starfar í öðru EES-
ríki, að sækja rétt sinn
svo og greiða fyrir
samskiptum við
stjórnvöld í því ríki.