Lögmannablaðið - 01.06.2003, Síða 28
28 2 / 2 0 0 3
Námskeið vorannar
Það verður sífellt algengara að lög-
menn sæki námskeið til að viðhalda
þekkingu sinni og færni. Á tiltölu-
lega stuttum tíma hefur viðhorf til
símenntunar gjörbreyst og nú telja
flestir það hluta af starfi sínu að
sækja námskeið, jafnvel nokkur á
ári. LMFÍ hefur reynt að koma til
móts við þessa þörf en 130 manns
sóttu þau 12 námskeið sem félagið
hélt á nýliðnu vormisseri. Tekin var
upp sú nýbreytni að bjóða félags-
mönnum upp á námskeið sem ekki
eru tengd starfi lögmanna, í golfi, flugukasti og
matreiðslu og mæltist það vel fyrir.
LMFÍ hefur þá stefnu að bjóða upp á stutt og
hnitmiðuð námskeið, vitandi að lögmenn eru
uppteknir við dagleg störf. Það er oft fljótlegra
að skella sér á námskeið og fá þekkinguna
beint í æð ásamt námsgögnum heldur en að
kynna sér efnið á eigin vegum. Eins er mikil-
vægt fyrir lögmenn að hittast og miðla reynslu
sinni en umræður á námskeiðum eru oft mjög
gagnlegar. Félagsdeildin setur nú metnað sinn í
að gera námskeið haustannar áhugaverð. Allar
ábendingar um málefni sem þyrfti að taka fyrir
eru því vel þegnar.
LÖGMANNALISTINN
Gerðar hafa verið smávægilegar breytingar á
upphafssíðu www.lmfi.is þannig að í stað þjón-
ustuskrár í hægra horni er nú LÖGMANNA-
LISTINN, sem á að vísa í að almenningur getur
leitað eftir lögmanni eftir staðsetningu og mála-
flokkum. Lögmenn skrá sérsvið sín og greiða
aðeins kr. 1.200 til kr. 1.600,- á ári fyrir hvert
þeirra eftir því hvort þeir eru í félagsdeild eða
ekki.
Heimsóknum á heimasíðu LMFÍ
hefur fjölgað mikið síðustu mánuði
en þess má geta að í mars sl. leituðu
um 3.300 manns að lögmanni á
heimasíðunni en alls 5.600 heim-
sóttu síðuna sem mun vera met. Það
er ljóst að heimasíða félagsins er
orðin gríðarlega öflugur og ódýr
auglýsingamiðill fyrir lögmenn. Í
mars sl. var þeim lögmönnum sem
ekki hafa ennþá skráð sérsvið sín á
LÖGMANNALISTANUM sent bréf
og nokkuð hefur verið um skrán-
ingar síðan. Þeim lögmönnum sem
ekki hafa kynnt sér þennan kost er bent á að
skoða heimasíðuna. Enginn ætti að láta svo öfl-
ugan auglýsingamiðil fram hjá sér fara.
Bókasafn LMFÍ
Nýjar bækur eru nú komnar í safnið sem varða
hin ýmsu réttarsvið. Áhugasömum er bent á
tengilinn „nýjar bækur“ sem er undir bóka-
safnstengli á heimasíðu félagsins. Að meðaltali
sækja 1-2 félagsmenn bókasafnið dag hvern en
auk bóka eru gagnagrunnarnir Karnov og Ufr
aðgengilegir. Félagsmenn fá aðstoð við að leita
í gagnagrunnunum ef þeir eru óvanir notkun
þeirra.
Félagsmál
Árshátíð LMFÍ var haldin 22. mars sl. og
heppnaðist í alla staði mjög vel. Myndir frá
hátíðinni eru á öðrum stað í blaðinu. Einnig eru
myndir af nýafstöðnu knattspyrnumóti þar sem
átta lið kepptu og upplýsingar um golfmót sum-
arsins.
Að lokum óska ég félagsmönnum gleðilegs
sumars í leik og starfi.
Fréttir frá félagsdeild
Eyrún Ingadóttir