Lögmannablaðið - 01.06.2014, Blaðsíða 6
6 LÖgmannaBLaðið TBL 02/14
Á Lagadaginn 4. apríL síðastliðinn
var boðið uppá málstofu fyrir hádegi
sem bar yfirskriftina „við hvað eiga
lögfræðingar að starfa í framtíðinni?“
Þátttakendur voru þau eyvindur g.
gunnarsson, forseti lagadeildar
Háskóla íslands, Helga kristín
auðuns dóttir, sviðsstjóri lögfræði sviðs
Háskólans á Bifröst, guðmundur
Sigurðsson, forseti lagadeildar
Háskólans í reykjavík og Ágúst Þór
Árnason, formaður lagadeildar
Háskólans á akureyri. í panil sátu
Bergur ebbi Benediktsson, lögfræð
ingur og uppistandari og Fanney Birna
Jónsdóttir, hdl. og blaðamaður hjá
Fréttablaðinu. málstofustjóri var
Finnur Beck, hdl. hjá Landslögum.
Kveikja umræðunnar er mikil fjölgun
í stétt lögfræðinga en á síðustu
fimm árum hafa að meðaltali 154
lögfræðingar útskrifast með meistara-
gráðu úr laga deildunum fjórum á ári.
Atvinnuleysi var áður svo til óþekkt
meðal lögfræð inga en undanfarin
tvö ár hafa að meðaltali 60 - 70 verið
skráðir atvinnulausir. Til að svara
spurningu málstofunnar héldu fulltrúar
lagadeildanna stutta tölu um þeirra
framtíðarsýn í lagakennslu, breytt
starfsumhverfi lögfræðinga og horfur í
atvinnumálum. Fanney Birna Jónsdóttir,
hdl. og Bergur ebbi Benediktsson,
sem fóru bæði óhefðbundnar leiðir að
loknu laganámi, ræddu um ástæður
þess og hvort lögfræðin hefði nýst í
þeim störfum sem þau sinna.
nýsköpun í lögfræði
Helga Kristín Auðunsdóttir kynnti
alþjóðlega samstarfsverkefnið „Law
Without Walls“ sem Bifröst er þátt-
takandi í. markmið verkefnisins er að
bregðast við breyttri stöðu lögfræð-
inga á vinnumarkaði og umbylta
þekktum aðferðum í lagakennslu.
dæmi um verkefni er þróun gervi-
greindarlögfræðings þar sem notast
er við gervigreind til þess að leysa úr
lögfræðilegum álitaefnum. Verkefnið
krefst þess t.d. að lögfræðingar og
tölvunarfræðingar vinni náið saman. Að
mati Helgu er tæknin það sem koma
skal og lögfræðingar þurfi að aðlaga
sig breyttum aðstæðum. Helga telur að
fækkun lagadeilda eða takmörkun á
inngöngu laganema sé ekki svarið við
atvinnuleysi. Það sé hins vegar hlutverk
skólanna að undirbúa nemendur til að
takast á við nýjar áskoranir og aðstæður
vinnumarkaði. Háskólinn á Bifröst
hefur brugðist við með því að skerpa
sérstöðu sína og endurskipuleggja
námið. Helga vill að háskólarnir búi til
sitt eigið „Law Without Walls“ verkefni,
þar sem nemendur úr ólíkum deildum
starfi saman.
mikilvægt að horfa út fyrir
„boxið“
guðmundur Sigurðsson sagði
mikilvægt að lögfræðingar hefðu trú á
menntun sinni og að þeir mættu ekki
tala fagið niður. Lögfræðingar yrðu að
læra horfa út fyrir boxið og það væri í
góðu lagi að þeir yrðu ekki lögmenn
eða dómarar eða ynnu jafnvel ekki
við lögfræðistörf. Það sé röng hugsun
að menntun þeirra aðila sem vinna
ekki við hefðbundin lögfræðistörf hafi
mistekist. guðmundur telur að fækkun
lAGADAGUrinn 2014
„við hvað eiga lögfræðingar að starfa í
framtíðinni?“
F.v. Bergur ebbi Benediktsson, Fanney Birna Jónsdóttir, eyvindur g. gunnarsson, Ágúst Þór Árnason, guðmundur Sigurðsson og
Helga kristín auðunsdóttir.