Lögmannablaðið - 01.06.2014, Blaðsíða 19
LÖgmannaBLaðið TBL 02/14 19
lAGADAGUrinn 2014
haft kælingaáhrif á fjölmiðla sem gætu
veigrað sér við að fara fram með mál,
sem vissulega ættu erindi í fjölmiðla,
af þeirri ástæðu einni að fréttaefnið,
eða sá sem því tengist, væri líklegur til
að höfða mál gegn þeim og reyna að
knésetja. með þessum hætti væri unnt
að nota ærumeiðingamál sem tæki til
að þagga niður í fjölmiðlum.
Stefnumótun skortir
elfa ýr benti á að þrátt fyrir vaxandi
fjölda ærumeiðingamála hjá dómstól-
um hefði málum hjá siðanefnd Blaða-
mannafélags Íslands ekki fjölgað.
elfa velti upp spurningum um það
hvort unnt væri að vernda friðhelgi
einkalífsins með öðrum hætti en með
rekstri meiðyrðamála fyrir dómstólum.
elfa ýr benti á ákvæði fjölmiðlalaga
sem nýst gætu í ærumeiðingamálum,
þ.e. 39. gr. um andsvararétt og 26. gr.
um lýðræðislegar grundvallarreglur
auk siðareglna Blaðamannafélags
Íslands. elfa ýr fór yfir þau úrræði
sem notuð eru á norðurlöndum
og Bretlandi en þar eru starfandi
siðanefndir, sem eru sjálfstæðar
stjórnsýslunefndir, í mismunandi
formum þó. Taldi elfa ýr að á Íslandi
skorti stefnumótun um hvernig eigi
að haga þessum málaflokki, t.d. hvort
setja ætti á stofn siðanefnd og hvort
hún væri þá tengd stjórnsýslunni, en
þar með væri kominn vettvangur til
að leysa úr ærumeiðingamálum án
þess að þau hefðu neikvæð áhrif eða
kælingaáhrif á fjölmiðla auk þess að
tryggja að þeir sem telji á sér brotið
geti leitað réttar síns.
í lokin
Skemmtilegar umræður sköpuðust
undir styrkri stjórn Ásu, sem gaf
áheyrendum umhugsunar- og álitaefni
til íhugunar í hlé. margar fyrirspurnir
bárust úr sal auk fróðlegra innleggja
þar sem m.a. var rætt um að fjölmiðlar
mættu margir hverjir vanda umfjöllun
sína betur og biðjast afsökunar hafi
þeir brotið gegn ærumeiðingalöggjöf
og mikilvægi þess að dómstólar
rökstyðji niðurstöður dóma sinna í
takt við vandaðar vinnu aðferðir mann-
réttindadómstóls evrópu. mál stofa
þessi var mjög vel heppnuð, frum-
mælendur voru fróðir og skemmti legt
að heyra þeirra skoðanir sem lituðust
af ólíkum sjónarhornum þeirra.
Auður Björg Jónsdóttir hdl.
Lagaþýðingar í öruggum höndum
Sérhæfðir þýðendur með víðtæka reynslu af öllum sviðum lagatexta.
Öll helstu tungumál. Traust og fagleg þjónusta.
Sendu okkur fyrirspurn á skjal@skjal.is og við komum þinni þýðingu í öruggar hendur.
Skjal þjónusta ehf. - Síðumúla 28 - 108 Reykjavík
Sími: 530 7300 - www.skjal.is
F.v. elfa Ýr gylfadóttir, Þórður Snær Júlíusson, vilhjálmur H. vilhjálmsson, gunnar ingi Jóhannsson og Ása ólafsdóttir.