Fréttablaðið - 04.12.2014, Page 56
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
BÆKUR ★★★★ ★
Þrír sneru aftur
Guðbergur Bergsson
JPV
Titill þessarar nýjustu skáld-
sögu Guðbergs Bergssonar vísar
í að minnsta kosti tvær áttir –
kannski þrjár. Í sögunni birtast
þrír útlending-
ar, tveir Bret-
ar og Þjóðverji,
allir koma þeir
í hei ms ók n
á sög usvið -
ið, afskekkt-
a n í s lensk-
an sveitabæ,
og allir snúa
þeir aftur sem
gamlir menn.
Titillinn vísar
líka til dular-
fullrar skáld-
s ö g u s e m
ekki finnst
í n e i n u m
spjaldskrám
bókasafna
en er lesin
upp til agna
í sögu Guð-
bergs. Bókin
sú heit i r
Þrír sneru aftur og fjallar um
hrakninga skipbrotsmanna. En
þar með eru möguleikar titils-
ins ekki tæmdir. Lesandi gæti
alveg skilið sumar persónur sög-
unnar þannig að þær snúi aftur
(eða gangi aftur) persónur úr
fyrri bókum Guðbergs. Líkt og í
mörgum öðrum bókum sínum er
hann meðal annars að skrifast á
við sjálfan sig, skrifa sig og verk
sín inn í nýjan tíma og tengja
hann við eldri verk. Hlandblautur
afinn í sögunni sem eyðir stærst-
um hluta ævinnar á dívan minnir
t.d. meira en lítið á karlfauskinn
Tómas Jónsson.
Sögusviðið er líka kunnuglegt.
Bærinn sem er í sögumiðju stend-
ur við sjó, stutt frá litlu þorpi.
Þar hefst sagan í kreppunni
miklu og við fylgjum fjölskyld-
unni á bænum allt til samtímans
þegar allur búskapur er fyrir bí
annar en túr-
istaútgerð.
Umfram
allt er það þó
aðferð bókar-
innar sem ber
sterk einkenni
höfundarins.
Mörg merk-
ust u verk a
Guðbergs eru
táknsögur,
allegóríur, þar
sem afmark-
aður og inni-
lokaður heimur
er látinn endur-
spegla stærra
samhengi. Svo
er einnig í þess-
ari sögu. Hér
er sögð saga
aldar eða tæp-
lega það þar sem
fjölskyldan á
bænum stendur sem hluti fyrir
heild íslensku þjóðarinnar. Við
fylgjumst með því hvernig fjöl-
skyldan stækkar en klofnar jafn-
óðum, börn fæðast föðurlaus og
eru yfirgefin af mæðrum sínum,
og ekki síst fylgjumst við með
því hvernig umheimurinn mótar
þetta örsamfélag, allar breyting-
ar koma að utan, frá erlendum
gestum, hermönnum, túristum.
Saman við þessa stóru sögu
fléttast þroskasaga þriggja
barna, fyrst tveggja stúlkna,
systradætra sem alast upp á
bænum og svo stráksins sem
kemur fyrst sem gestur en verð-
ur hluti af fjölskyldunni. Lýsing-
in á þroska þeirra og menntun
er merkileg og margræð. Gamla
konan á bænum kennir þeim
undir próf upp úr kennslubókum
frá Ríkisútgáfu námsbóka sem
fá í sögunni sess menningar sem
ekki verður metin til fjár, á for-
síðu þeirra stendur: „Bók þessa
má ekki selja“. Þessar bækur
og úrvinnsla Guðbergs á sagna-
minninu um hina fróðu gömlu
konu eru meðal þess áhugaverð-
asta í bókinni og ekki einfalt að
skera úr um hvort þar sé bullandi
írónía eða bláeygasta einlægni á
ferð.
Þrír sneru aftur hefur marga
af stærstu kostum Guðbergs
sem skáldsagnahöfundar, en
líka suma af göllunum. Tákn-
sagan eða allegórían býður heim
þeirri hættu að persónurnar í
henni verði einhliða og sögumað-
ur sýnir þeim kulda sem stundum
jaðrar við fyrirlitningu. Hann á
það líka til að þusa, þus og nöldur
getur verið skemmtilegt og Guð-
bergur hefur fyrir löngu gert það
að listgrein en það virkar ekki
alltaf.
Það breytir hins vegar ekki því
að þetta er sterkasta og merkileg-
asta bók Guðbergs í langan tíma,
bók sem kallar á mann aftur til
frekari umhugsunar, íhugunar og
greiningar.
Jón Yngvi Jóhannsson
NIÐURSTAÐA: Táknsaga um íslenska
þjóð á tuttugustu öld sem ber mörg
bestu einkenni höfundarins.
„Þessa bók má ekki selja“
GUÐBERGUR
BERGSSON
„Sterkasta og
merkilegasta bók
Guðbergs í langan
tíma, bók sem kallar
á mann aftur til
frekari umhugs-
unar, íhugunar og
greiningar,“ segir Jón
Yngvi um bókina
Þrír sneru aftur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Gerðu sjónvarpið snjallara
Xtreamer Wonder
Verð: 24.990 kr.
Fartölva
Dell Inspiron 3531
Verð: 54.990 kr.
Merktu hluti - Finndu þá
Chipolo - Margir litir
1 stk - verð: 3.990 kr.
3 stk - verð: 8.990 kr.
Hörðustu pakkarnir
fást hjá Advania
Guðrúnartúni 10, Reykjavík
Mánudaga til föstudaga frá 8 til 17
Tryggvabraut 10, Akureyri
Mánudaga til föstudaga frá 8 til 17
advania.is/jol
Kíktu til okkar í kaffi – við tökum vel á móti þér í verslunum okkar
Far- og spjaldtölva
Dell Inspiron 7347
Verð: 179.990 kr.
Fartölvutaska
Bogart 13V
Verð: 8.990 kr. Leðurtaska
Tiding Vintage
Verð: 26.990 kr.
Heyrnartól - þrír litir
Jabra Revo Stereo
Verð: 29.990 kr.
Heyrnartól
Urbanears Pla
an - margir litir
Verð: 10.490 kr.