Gerðir kirkjuþings - 1972, Blaðsíða 12

Gerðir kirkjuþings - 1972, Blaðsíða 12
1972 8. Kirkjuþing 9 ♦ mál Ef samþykkt er, að kjör fari fram, ákveður prófastur kjörfund kjörmanna þá þegar eða næsta dag hið síðasta. Kjörfundur er lokaður og stýrir prófastur honum. Fer þar fram leynilegj skrifleg atkvæðagreiðsla um umsækjendur. Prófastur afhendir hverjum kjörmanna einn atkvæðaseðil og setur kjörmaður kross framan við nafn þess, er hann kýs. Prófastur skilar atkvæði á sama hátt. Að lokinni atkvæðagreiðslu eru atkvæði innsigluð og send biskupi í póstábyrgð, ásamt afriti af gjörðabók kjörfundar. Verði ágrein- ingur um undirbúning eða framk\7samd kosningar eða hún kærð, fellir kjörstjórn úrskurð um málið. Kjörstjórn skipa, auk biskups, 2 menn, er kirkjumálaráðuneytið skipar til 5 ára í senn. 5. gr. Þegar kjörstjórn hefur kynnt sér niðurstöðu kjörfundar, sendir biskup afrit af bókun hennar til kirkjumálaráðherra, ásamt rök- studdri tillögu sinni um veitingu. Biskup styður með tillögu sinni þann umsækjanda, er hlotið hefur 2/3 atkvæða kjörmanna. Skal veita honum embættið, enda telst hann hafa hlotið lögmæta kosningu. Nái umsækjandi ekki 2/3 atkvæða kjörmanna, telst kosningin ólögmæt, og mælir biskup þá með þeim tveimur umsækjendum, ef um fleiri en einn er að ræða, er hann telur, þegar tillit er tekið til allra aðstæðna, standa næst því að hljóta embættið, og í þeirri röð, sem næst liggur að hans dómi. Veitir ráðherra því næst embættið öðrum hvorum þessara tveggja. 6. gr. Heimilt er kjörmönnum að kalla prest. Ef 3/^ kjörmanna prestakallsins eru einhuga um að kalla tiltekinn prest eða guðfræðikandidat án umsóknar, gera þeir prófasti viðvart um það í tæka tíð, en hann tilkynnir biskupi, sem felur þá prófasti að boða kjörmenn prestakallsins á sameiginlegan fund innan viku og er þá embættið eigi auglýst. Samþykki ~5/k kjörmanna að kalla tiltekinn mann til embættisins, sem lögum samkveant á rétt til prestsembættis í íslenzku þjóðkirkjunni, skal biskup birta köllunina þeim presti eða kandidat, sem í hlut á. Taki hann köllun, skal veita honum embættið. 7-gr. Nánari ákvæði um framkvæmd þessara laga skulu sett í reglugerð.

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.