Fréttablaðið - 24.02.2016, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 24.02.2016, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Kolbeins Tuma Daðasonar Bakþankar KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró. BÓKAÐU NÚNA Á WOWAIR.IS *14.999 kr.f rá KANADA TORONTO MONTRÉAL ma í - jún í & september 2016 Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Ég tilheyri því sem verður vafa-laust innan tíðar þekkt sem vísitölufjölskyldan miðað við skilnaðarvagninn sem sífellt fleiri virðast stökkva á. Krakkarnir eru hjá mér aðra hverja viku og hjá mömmu sinni hina. Við erum svo heppin með samskipti okkar á milli að krakkarnir virðast enn sem komið er ekki sjá neinn ókost við fyrirkomulagið. Þau eru jafn sátt og foreldrarnir. Ástæða þess að við fyrrverandi erum svona sátt tengist því vafa- lítið að bæði eru laus úr sambandi sem var langt í frá að vera fullkom- ið þótt það væri alls ekki slæmt. Í breyttu fyrirkomulagi getur maður slakað á eina vikuna, hugsað vel um sjálfan sig og tekið svo endur- nærður á móti krökkunum og gefið þeim mun meira af sér hina vikuna. Hljómar kannski eigingjarnt en í okkar tilfelli held ég að þetta hafi verið til bóta, fyrir alla. Dóttir mín er farin að spyrja hvort ég ætli ekki að finna mér fallega konu og giftast henni. Sonur minn minnir hana á að ég sé „búinn að giftast mömmu“ og svo ræða þau hve oft maður megi giftast. Allt endar yfirleitt í hlátra- sköllum. Fyrirkomulagið núna er samt svo gott að hugsunin um að fara aftur í samband og sameina fjölskyldur með öllu tilheyrandi er fjarlæg. Það þyrfti í það minnsta að ígrunda vel og lengi áður en stóra skrefið yrði stigið, aftur. Auðvitað eru alls konar praktískir ókostir við núverandi fyrirkomulag. Það er dýrara, kallar á meiri skipulagningu, krakkarnir sakna stundum hins foreldrisins og öfugt. Vika getur verið langur tími fyrir smáfólk. En ef foreldrarnir eru skilningsríkir, í garð hvort annars og barnanna, og ekki á hvínandi kúpunni þá á þetta samt allt að geta gengið upp og hefur sem betur fer gert í á þriðja ár. Skilnaðarbörnin 2 4 -0 2 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 9 1 -8 3 0 C 1 8 9 1 -8 1 D 0 1 8 9 1 -8 0 9 4 1 8 9 1 -7 F 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.