Fréttablaðið - 24.02.2016, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 24.02.2016, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —4 6 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 6 Fréttablaðið í dag MarKaðurinn Ár er liðið frá því að Portúgalinn Carlos Cruz kom til Íslands til að taka við stýrinu hjá Vífilfelli. sKoðun Björn B. Björnsson spyr hvað Ísland þoli marga ferða- menn. 12-13 sport Kvennalandsliðið fær til sín ungverska risann í kvöld. 14 Menning Dómur um Illsku hjá Óskabörnum ógæfunnar í Borgarleikhúsinu. 24-26 lÍfið Leikarinn Albert Hall- dórsson fer með aðalhlutverkið í Gripahúsinu. 30 plús 1 sérblað l fólK *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 dóMsMál Hluti starfsmanna hug- búnaðarfyrirtækisins LS Retail hefur lagt húsnæði sitt að veði til tryggingar kyrrsetningar á hluta söluandvirðis fyrirtækisins. Samkvæmt heimildum blaðsins hafa tæpir tveir milljarðar króna verið kyrrsettir.  Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur er tekist á um lögmæti sölunnar á LS Retail í fyrra, en starfsmennirnir ásamt fyrrverandi stjórnarformanni telja söluandvirðið langt undir því sem eðlilegt getur talist. Heimildir blaðsins herma að starfs- mennirnir hafi lagt fram eigið mat á virði fyrirtækisins, sem endurskoð- andi vann fyrir þá, þegar farið var fram á kyrrsetningu hjá sýslumann- inum á höfuðborgarsvæðinu. LS Retail var selt á 17,6 milljónir evra, eða rúma 2,5 milljarða króna. Sú upphæð er fjórðungurinn af þeim 70 milljónum evra, tæpu 10 milljörðum króna, sem endurskoðandinn segir hafa verið virði fyrirtækisins þegar það var selt. Kaupréttarákvæði í samningum starfsmannanna kveða á um að við sölu hafi þeir átt að fá í sinn hlut 20 prósent af söluandvirðinu. Þeir telja sig því hlunnfarna. Kaupandi LS Retail á síðasta ári var bandaríski fjárfestingasjóðurinn Anchorage Capital Group og  selj- andi eignaumsýslufélagið ALMC, sem fer með eignasafn Straums-Burðaráss. Athygli vakti fyrr á árinu þegar spurð- ist að ALMC hefði fyrir áramót innt af hendi yfir þriggja milljarða króna bónusgreiðslur til fyrrverandi og núverandi starfsmanna félagsins. – óká / sjá síðu 4 Leggja hús sín að veði Sýslumaður hefur kyrrsett fimmtung af því sem lykilstarfsmenn LS Retail telja að hefði verið eðlilegt verð fyrir fyrirtækið. Tekist er á um málið fyrir dómi. 70 milljónir evra telur endur- skoðandi virði LS Retail, sem selt var á 17,6 landbúnaður „Það er alls ekki hægt að segja að þetta sé bull og kjaftæði og engum til góða,“ segir Ragnhildur Helga Jónsdóttir, aðjúnkt við Land- búnaðarháskóla Íslands, um nýja búvörusamninga. Hún segir að gert sé ráð fyrir töluverðri nýsköpun í samningunum. „Það vantar lífrænar vörur á mark- að, sérstaklega mjólk. Það er auka- kostnaður að breyta úr hefðbund- inni framleiðslu yfir í lífræna þannig að það þarf aðlögunarstyrki eins og viðgengst í öllum okkar nágranna- löndum.“ Ragnhildur segir að horft sé til fleiri og fjölbreyttari þátta í landbúnaði í nýjum búvörusamningum en áður var. „Það eru ýmsir angar og ýmsar hliðar sem menn sjá kannski ekki alveg strax, en auðvitað á eftir að útfæra þetta í reglugerðum.“ – snæ/ sjá síðu 6 Nýsköpun studd í samningnum Vetraríþróttaiðkun á Tjörninni Gleðin var við völd hjá stúlkum úr fjórða bekk í Menntaskólanum í Reykjavík þegar þær nýttu kuldatíðina til hins ýtrasta og spiluðu fótbolta á frosinni Tjörninni í íþróttatíma gærdagsins. Íþróttahús skólans er gamalt og lítið og stundum í gamni nefnt „þrælakistan“ af nemendum. Þeir fagna því útivistinni. Fréttablaðið/Vilhelm 2 4 -0 2 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 9 1 -8 3 0 C 1 8 9 1 -8 1 D 0 1 8 9 1 -8 0 9 4 1 8 9 1 -7 F 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.