Fréttablaðið - 24.02.2016, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 24.02.2016, Blaðsíða 4
náttúra Undirbúningur að friðlýs- ingu Kerlingarfjalla er hafinn. Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlind- aráðherra, hefur sett vinnuna af stað og fundað hefur verið með heima- mönnum í Hrunamannahreppi. Í frétt ráðuneytisins kemur fram að skýr vilji af hálfu heimamanna hafi komið fram á undirbúnings- fundinum og því virðist ekkert til fyrirstöðu að friðlýsingin geti gengið fljótt fyrir sig. Kerlingarfjöll eru vel afmarkaður fjallaklasi á hálendinu þar sem eru jafnframt fjögur svæði í verndarflokki rammaáætlunar. Kerlingarfjallasvæðið nýtur vaxandi vinsælda fyrir hvers konar útivist. Áður var þar vinsælt skíðasvæði en nú heimsækja gestir svæðið fyrst og fremst til útivistar þar sem víðerni og háhitasvæði eru helsta aðdráttarafl svæðisins. Í Kerlingarfjöllum er jafnframt vax- andi ferðaþjónusta. Við undirbúning að friðlýsingu svæðisins er ætlunin að stuðla að því að starfsemi innan þess verði sem mest sjálfbær. Gert er ráð fyrir að ferðamennska á svæðinu haldi áfram að aukast á komandi árum, en með friðlýsingunni er ætlunin að setja tímanlega reglur og skipu- lag fyrir svæðið og byggja upp nauðsynlega innviði til verndar náttúrunni, segir í frétt ráðuneyt- isins. Við undirbúning friðlýsingar- innar verður haft samráð við hagsmunaaðila, m.a. rekstraraðila sem starfa innan þess svæðis sem fyrirhugað er að friðlýsa. Hefur Umhverfisstofnun skipað sam- starfshóp með fulltrúum Hruna- mannahrepps, Skeiða- og Gnúp- verjahrepps og Vina Kerlingarfjalla og hefur verið boðað til fyrsta fund- ar hópsins í vikunni. – shá Friðlýsing Kerlingarfjalla komin á skrið í umhverfisráðuneytinu Fjögur svæði í verndarflokki rammaáætlunar eru á svæðinu. Fréttablaðið/vilhelm Dómsmál Lykilstarfsmenn hugbún- aðarfyrirtækisins LS Retail telja að fyrirtækið hafi á síðasta ári verið selt á um fjórðung af raunverulegu virði. Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur fall- ist á kyrrsetningu fjármuna sem nema fimmtungi af verðmati sem endur- skoðandi vann fyrir starfsmennina. Heimildir blaðsins herma að sam- kvæmt kaupréttarsamningum starfs- mannanna hafi þeir átt að fá tuttugu prósent af söluandvirði fyrirtækisins. Tekist er á um málið fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur, en Viti ehf., félag í eigu Aðalsteins Valdimarssonar, höfð- aði á síðasta ári mál á hendur íslenska eignaumsýslufélaginu ALMC (áður Straumur-Burðarás) vegna sölunnar á fyrirtækinu. Starfsmennirnir, sem eru fimmtán talsins, hafa stefnt sér inn í það mál. Þessa dagana er tekist á um frávísunarkröfu ALMC og úrskurðar að vænta í því eftir um hálfan mánuð. Til að öðlast kaupréttinn skuld- bundu starfsmennirnir sig til að starfa hjá fyrirtækinu og vinna að uppgangi þess og hafa samkvæmt heimildum blaðsins haldið þann samning síðustu fimm ár eða svo. Samkvæmt heimildum blaðsins var fyrirtækið selt á 17,6 milljónir evra (rúma 2,5 milljarða króna), þrátt fyrir að fyrir hafi legið samningur um sölu annað upp á 37,5 milljónir evra (rúma 5,3 milljarða króna). Það verð hafi myndast á fyrri stigum en virði félagsins aukist frá því vegna mikils vaxtar og hagnaðar. Endurskoðandi starfsmannanna metur verðmæti LS Retail hins vegar á 70 milljónir evra (tæpa 10 milljarða króna), á þeim degi sem fyrirtækið var selt. Starfsmennirnir hafa, samkvæmt heimildum blaðsins, sjálfir lagt fram tryggingar vegna kyrrsetningarinnar sem sýslumaður féllst á, svo sem með því að veðsetja heimili sín. Um er að ræða verulegar upphæðir því fimmt- ungur af metnu söluandvirði fyrir- tækisins, 70 milljónir evra, er 14 millj- ónir evra, eða sem svarar um 1.994 milljónum króna. Tryggingin á að standa undir hugsanlegu tjóni sem hlotist getur vegna kyrrsetningarinnar tapi þeir málinu. Sýslumaður féllst hins vegar á að veruleg hætta væri á því að fjár- munum sem til hefðu orðið vegna sölunnar yrði komið í burtu þannig að endurheimtur yrðu þeim torveldar. Salan á LS Retail gekk í gegn á síðasta ári, en fyrirtækið mun hafa verið selt, ásamt fleiri innlendum og erlendum eignum ALMC, til banda- ríska fjárfestingasjóðsins Anchorage Capital Group. LS Retail komst í eigu Straums- Burðaráss eftir að bankinn gekk að veðum vegna láns til Baugs Group, sem keypti fyrirtækið fyrir hrun. LS Retail framleiðir hugbúnaðarlausnir fyrir þjónustufyrirtæki, en það varð til eftir samruna Strengs og Landsteina árið 2007. olikr@frettabladid.is höfuðstöðvar lS retail í reykjavík eru á höfðatorgi við Katrínartún. Fréttablaðið/Gva Tæpir tveir milljarðar kyrrsettir Lykilstarfsmenn með kauprétt í LS Retail telja sig hlunnfarna við söluna á fyrirtækinu. Sýslumaður hefur fallist á kyrrsetningu 14 milljóna evra vegna sölu ALMC á fyrirtækinu til bandarísks fjárfestingarsjóðs. Fimm hundruð milljónir króna renna í hlut lykilstarfs- manna LS Retail miðað við söluandvirði fyrirtækisins í fyrra. Þeir telja sig hins vegar hlunnfarna um einn og hálfan milljarð. Upphæðin hefði að þeirra mati átt að vera tæpir tveir milljarðar. Vegna þurrka í Eþíópíu eru 10 milljónir manns á barmi hungursneyðar. Bregðumst við NÚNA! Söfnunarsími 907 2003 (2500 krónur) Söfnunarreikningur 0334-26-886 kt. 450670-0499 leiðrétt Rangt var farið með númer styrktarreiknings í auglýsingu um andlát Kára Arnar Hinrikssonar blaðamanns í Fréttablaðinu í gær. Rétt númer er 0549-14-401696, kt. 220991-2539. Kjaramál Félagsdómur úrskurð- aði í gærkvöldi að útflutningsbann starfsmanna í álveri Rio  Tinto Alcan í Straumsvík væri löglegt og hófst það því á miðnætti. Mun því ekkert ál verða flutt út frá Straums- víkurhöfn á næstunni. Dómurinn kom saman í kjölfar þess að Sam- tök atvinnulífsins kærðu bannið fyrir hönd álversins. Gylfi Ingvarsson, formaður samninganefndar starfsmanna, var ánægður með úrskurðinn í gær- kvöldi. „Við hefðum þó viljað sjá þau eyða þessum tíma í að ræða við okkur í staðinn. Markmiðið með aðgerðunum er að fá þau að samningsborðinu en þegar við höfnuðum því að fresta verkfallinu ákváðu þau að fara í þessa vegferð,“ sagði Gylfi. Gylfi sagði verkfallsverði mæta á svæðið á miðnætti þar sem stjórn álversins gæti hugsanlega farið að setja aðra til starfa þá. „Það er alveg ljóst að það verða menn á staðnum til að fylgjast með því að ekki verði framið verkfallsbrot.“ Kjaradeilan hefur nú staðið yfir í hátt í ár og er næsti samninga- fundur settur klukkan eitt í dag hjá ríkissáttasemjara. – þea Verkfall hófst á miðnætti Gylfi ingvarsson, formaður samninganefndar starfsmanna iSal 2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 6 m i ð V i K U D a G U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 2 4 -0 2 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 9 1 -9 B B C 1 8 9 1 -9 A 8 0 1 8 9 1 -9 9 4 4 1 8 9 1 -9 8 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.