Fréttablaðið - 24.02.2016, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 24.02.2016, Blaðsíða 18
Skjóðan markaðurinn Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301 Umsjón Jón Hákon Halldórsson jonhakon@365.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir | Forsíðumynd Stefán Karlsson Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Vikan sem leið miðvikudagur 24. febrúar HagStofa ÍSlandS - Vinnumarkaður í janúar 2016 arion banKi - Ársuppgjör 2015, Hb grandi - Fjórði ársfjórðungur 2015, Vátryggingafélag ÍSlandS - Ársupp- gjör 2015, n1 - Ársreikningur 2015. Fimmtudagur 25. febrúar ÞJóðSKrá ÍSlandS - Fjöldi útgefinna vegabréfa. HagStofa ÍSlandS - Fiskiskipastóllinn í árslok 2015. HagStofa ÍSlandS - Kjötframleiðsla í janúar 2016. HagStofa ÍSlandS - Vísitala neyslu- verðs í febrúar 2016. Hb grandi - Ársreikningur 2015. landSbanKinn - Ársuppgjör 2015, EimSKip- Fjórði ársfjórðungur 2015, Föstudagur 26. febrúar nýHErJi - Aðalfundur ársins 2015. HagStofa ÍSlandS - Nýskráningar og gjaldþrot hlutafélaga og einkahluta- félaga í janúar 2016. Á döfinni dagatal viðskiptalífsins allar markaðsupplýsingar landbÚnaðarráðHErra og fulltrúi bænda eru búnir að skrifa undir búvörusamning til tíu ára. Það er því ekki fyrr en á fjórða kjörtímabili héðan í frá sem hann fellur úr gildi. Samningurinn felur í sér hækkun á beinum greiðslum til bænda sem nema næstum 14 milljörðum á ári til að byrja með en heildargreiðslur á tíu árum eiga að nema 132 milljörðum. Þetta slagar hátt í tvo Landspítala og er þá ekki tekið tillit til verndartolla og inn- flutningshindrana á landbúnaðar- vörum, sem metnar eru á sama. Það fara með öðrum orðum á næstu tíu árum ígildi þriggja til fjögurra Landspítala í að viðhalda úreltu landbúnaðarkerfi, sem viðheldur fátækt meðal bænda og tryggir að Íslendingar greiða eitt- hvert hæsta matarverð í heimi. Enginn fulltrÚi neytenda, verslunarinnar, verkalýðshreyf- ingarinnar eða annarra matvæla- framleiðenda fékk sæti við borðið. Þar sátu aðeins ráðherrann og fulltrúi bænda. Eitt stykki Icesave. Starfslaun handa rúmlega þrjú þúsund listamönnum í tólf mánuði á hverju ári næstu tíu árin. Hvað er það milli vina? og Þarna voru svo sannarlega vinir að útdeila fjármunum úr sam- eiginlegum sjóðum þjóðarinnar. Báðir núverandi stjórnarflokkar eru þekktir fyrir sérstaka hags- munavörslu fyrir landbúnaðar- kerfið á kostnað neytenda. Sjálf- stæðisflokkurinn vildi einhvern tíma láta sem hann væri flokkur frjáls framtaks og neytenda en það er löngu liðin tíð. Nú eru tveir af þremur turnum í stefnu flokksins varðstaða um niðurgreiddan að- gang örfárra að þjóðarauðlindum og ölmusukerfi fyrir bændur á kostnað neytenda. Þriðji turninn er að tryggja mikilsverða hagsmuni fyrir helstu bakhjarla flokksins aðra en útgerðarmenn og bændur. EKKi Var nóg með að 132 milljarða útgjöld ríkisins væru ákveðin því sem næst með tveggja manna tali ráðherra og fulltrúa bænda heldur ríkti fullkomin leynd yfir inni- haldi samningsins þar til búið var að skrifa undir hann. Er það svo sem í takti við annað hjá þessari ríkisstjórn og fyrirtækjum í eigu ríkisins. rEynt HEfur verið að færa þau rök fyrir samningnum að honum sé ætlað að spara gjaldeyri og tryggja matvælaöryggi. Þessi rök eru fá- ránleg. Matvælaframleiðsla í land- búnaði reiðir sig á innflutt fóður, áburð, eldsneyti, tæki og fleira sem kostar meiri gjaldeyri en innfluttar landbúnaðarafurðir. Ef aðföng til landsins bresta brestur íslenskur landbúnaður líka. forSætiSráðHErra segir málið frá þar sem búið sé að skrifa undir samninginn. Fyrst þarf Alþingi þó að leggja blessun sína yfir hann því fjárveitingavaldið er í höndum þess. Nú verður fylgst vel með því hvernig fulltrúar þjóðarinnar greiða atkvæði. Í landinu munu vera innan við þrjú þúsund bændur en neyt- endur eru rúmlega 330 þúsund. Gæluverkefni fortíðar kostar 3-4 Landspítala HSBC, stærsti banki Evrópu, tapaði 858 miljónum dala, um 110 milljörð- um króna, á síðasta fjórðungi 2015. Tekjur bankans hafa dregist saman og þá sérstaklega tekjur af lánum. Bank- inn stóðst ekki væntingar og hefur verið kallað eftir frekari sparnaðarað- gerðum. Tilkynnt var um uppsögn 25 þúsund starfsmanna í fyrra. 110 milljarða tap Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, mun íhuga stöðu sína hjá bankanum nú þegar hann er kominn í ríkiseigu, ef kjör hennar munu breytast. Þetta kom fram á uppgjörsfundi Íslandsbanka í gær. „Það á eftir að koma í ljós þegar hlut- irnir skýrast betur og ég hef því ekki tekið neina ákvörðun. Það á einnig eftir að koma í ljós hvaða áherslur nýr eigandi vill setja í rekstrinum,“ segir Birna. Hún lét þess þó getið á fund- inum að þrátt fyrir launalækkun yrði hún þó með töluvert há laun miðað við aðra starfsmenn. Líkur eru á að laun bankastjórans muni lækka töluvert nú þegar bank- inn er í ríkiseigu og launin ákvörðuð af kjararáði. Laun Birnu heyra ekki undir kjararáð núna og voru 44 millj- ónir, eða um 3,76 milljónir á mánuði í fyrra samkvæmt upplýsingum úr árs- reikningi. Auk þess fékk hún 7,2 millj- ónir króna í árangurstengda greiðslu. Til samanburðar eru núverandi laun Steinþórs Pálssonar, banka- stjóra Landsbankans, 1,64 milljónir á mánuði og fær hann ekki árangurs- tengdar greiðslur. Fram kom einnig á fundinum að framkvæmdastjórn bankans vonar að bankinn verði ekki lengi í eigu ríkisins. Starfsfólk bankans líti á eignarhald ríkisins sem tímabundið. Þetta sé meðal annars vegna þess að bankinn hafi nánast alltaf verið í einkaeigu og þannig hafi menning bankans tekið mið af því. Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta var 20,6 milljarðar á síðasta ári, samanborið við 22,7 milljarða króna árið 2014. Í tilkynningu segir að munurinn liggi að stærstu leyti í einskiptisliðum og styrkingu íslensku krónunnar. Arðsemi eigin fjár var 10,8 prósent samanborið við 12,8 prósent árið 2014. Grunnrekstur hefur haldið áfram að styrkjast, en hagnaður af reglulegri starfsemi var 16,2 milljarðar króna samanborið við 14,8 milljarða króna á sama tíma 2014. Útibúum Íslands- banka hefur fækkað úr tuttugu og sex í sautján milli áranna 2011 og 2015, og stefnt er að því að þau verði fimm- tán í árslok 2016. Íslandsbanki skuldbatt sig til að greiða 378 milljónir króna á síðasta ári, eða 20 milljónum meira en árið áður, vegna bónusa til starfsmanna bankans og dótturfélaga þess. Þau svör fengust frá Íslandsbanka um þetta að Íslandsbanki hefur notast við kaupaukakerfi frá árinu 2013 og fylgir reglum Fjármálaeftirlitsins um kaupaukakerfi fjármálafyrirtækja. saeunn@frettabladid.is Birna íhugar stöðu sína Laun bankastjóra Íslandsbanka gætu orðið rúmlega helmingi lægri eftir ríkis- eign. Framkvæmdastjórn bankans vonar að eignarhald ríkisins vari stutt. Hagnaður Landsvirkjunar nam jafn- virði 10,8 milljarða króna eða 84,2 milljónum dollara, samanborið við 78,4 milljónir dollara árið áður. Nettó skuldir Landsvirkjunar lækkuðu um 26 milljarða króna á síðasta ári. Þrátt fyrir aukinn hagnað drógust rekstrartekjur saman. Það gerði rekstrar- og viðhalds- kostnaður einnig. 11 millJarða Hagnaður 3,67milljónir mánaðarlaun Birnu Einarsdóttur 2015 1,64 milljónir núverandi mánaðarlaun Steinþórs Pálssonar Fram kom á fundinum í gær að útibúum Íslandsbanka hefur fækkað úr tuttugu og sex í sautján milli áranna 2011 og 2015. Mynd/Stöð 2 2 4 . f E b r Ú a r 2 0 1 6 m i ð V i K u d a g u r2 markaðurinn 2 4 -0 2 -2 0 1 6 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 9 1 -B 9 5 C 1 8 9 1 -B 8 2 0 1 8 9 1 -B 6 E 4 1 8 9 1 -B 5 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.