Fréttablaðið - 24.02.2016, Blaðsíða 28
Einar Þór Gústafsson hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri vöruþróunar
hjá Bókun.
Einar hefur frá árinu 2010 gegnt
stöðu framkvæmdastjóra vöruþró-
unar hjá Meniga ehf. Áður starfaði
Einar hjá Íslandsbanka og Glitni m.a.
sem forstöðumaður vefdeildar og
vörustjóri Netbanka. Einar var einnig
meðal stofnanda SVEF, Samtaka vef-
iðnaðarins, og formaður samtakanna
frá 2009 til 2013. – sg
Nýr fram-
kvæmdastjóri
vöruþróunar
einar þór gústafsson
Hildur Eiríksdóttir hefur verið ráðin
til einkabankaþjónustu Kviku. Hild-
ur kemur til Kviku frá Nordea Bank
í Lúxemborg, þar starfaði hún sem
viðskiptastjóri í einkabankaþjón-
ustu frá 2013.
Áður starfaði Hildur um árabil
hjá Íslandsbanka í eignastýringu
og einkabankaþjónustu og síðar
Íslandsbanka í Lúxemborg. Hún
starfaði hjá Kaupþingi í Lúxemborg
frá 2006 til ársins 2010. – sg
Ný í einka-
bankaþjónustu
hildur eiríksdóttir
Örvar Þór Ólafsson hefur verið
ráðinn í áhættu- og fjárstýringu hjá
Lánasjóði sveitarfélaga. Hann tekur
við starfinu af Agli Skúla Þórólfssyni,
sem fór til starfa hjá Íslandsbanka.
Örvar er menntaður viðskiptafræð-
ingur MBA frá Fairfield University í
Connecticut í Bandaríkjunum auk
þess að vera löggiltur verðbréfa-
miðlari. Hann á mjög fjölbreytta
starfsreynslu að baki. Örvar Þór
er kvæntur Guðrúnu Árdísi Öss-
urardóttur fatahönnuði og eiga
þau fjögur börn. Örvar er mikill úti-
vistarmaður en í frístundum rekur
hann Fjallafélagið ásamt Haraldi
Erni bróður sínum. – jhh
Til starfa hjá
Lánasjóðnum
Örvar þór ólafsson
Ef Bretar yfirgæfu Evrópusam-
bandið myndi það stefna atvinnu-
lífi og breskum efnahag í hættu.
Þetta segja leiðtogar nokkurra
af stærstu fyrirtækjum Bret-
lands í bréfi sem þeir skrifuðu í
breska blaðið Times. Þeir segja að
útganga úr Evrópusambandinu
myndi draga úr fjárfestingu í Bret-
landi. Þeir sem aðhyllast útgöngu
segja hins vegar að tveir þriðju af
öllum þeim fyrirtækjum sem skráð
eru í FTSE 100 vísitöluna, þar á
meðal Tesco og Sainsbury, hafi
ekki léð bréfaskrifunum stuðning
sinn. Þjóðaratkvæðagreiðsla um
útgöngu Bretlands verður haldin
23. júní næstkomandi.
David Cameron, forsætisráð-
herra Breta, svaraði í gær spurning-
um frá farsímaframleiðandanum
O2 í höfuðstöðvum fyrirtækisins
í Slough. Þetta var fyrsti dagur
ferðar hans sem farin er til þess að
skýra sjónarmið hans fyrir kjós-
endum.
Skiptar skoðanir eru um mál-
efnið í flokki Camerons, Íhalds-
flokknum. Eins og kunnugt er
hefur borgarstjóri Lundúna og einn
vinsælasti stjórnmálamaðurinn í
landinu, Boris Johnson, hvatt fólk
til þess að einbeita sér að málinu.
Johnson hefur lýst sig fylgjandi
útgöngu Bretlands í andstöðu við
Cameron. Hefur verið litið svo á að
Johnson sækist eftir forystusætið
í Íhaldsflokknum en hann hefur
neitað því og sagt „liðsandann“ í
Íhaldsflokknum mjög góðan. – jhh
Atvinnurekendur í Bretlandi óttast úrsögn úr ESB
David Cameron, forsætisráðherra Breta, situr hér ásamt athafnakonunni Karren Brady
og bíður eftir því að geta flutt ræðu í höfuðstöðvum O2 í Slough. FréttaBlaðið/EPa
svipmynd
Jürgen KudritzKi
„Fyrirtæki sem vill selja skipafé-
lögum vöru þarf að hafa þekkingu
á skipaútgerð. Þetta var ekki til-
fellið þegar ég kom hingað, því hér
var enginn með reynslu af skipa-
rekstri,“ segir Jürgen Kudritzki, sem
nýlega tók við sem forstjóri Marorku.
Hann er Þjóðverji, fæddur í hafnar-
borginni Hamborg og hefur síðasta
aldarfjórðunginn starfað í skipa-
geiranum. Kudritzki segir Ole Skatka
Jensen, fyrrverandi forstjóra, hafa
skort reynslu af skipaútgerð, sem sé
nauðsynleg Marorku.
Marorka hefur hingað til sérhæft
sig í að innleiða orkustjórnunar-
kerfi í stór skip, sem spara, að sögn
Kudritzki, 5-15 prósent af eldsneytis-
notkun skipanna. Fyrirtækið hefur
að undanförnu samið við mörg af
stærstu skipafélögum heims.
Kudritzki vill að Maroka færi sig á
nýjar slóðir og geri viðskiptavinum
kleift að nálgast á landi allar upp-
lýsingar sem gagnist við að hámarka
hagkvæmni við aðra þætti skipa-
reksturs en eldsneytisnotkun. „Orku-
stjórnun er góður grunnur en við
viljum vinna að allri frammistöðu,“
segir hann.
Fyrirtækið vilji til að mynda geta
boðið þeim sem séu á landi að nálgast
upplýsingar sem snúa að öryggismál-
um, umsýslu eigna og frammistöðu
áhafnarinnar á hafi úti. Að reka áhöfn
á stóru flutningaskipi kosti á annað
hundrað milljónir króna á ári. Stærstu
skipafyrirtæki reki tugi eða hundruð
skipa og því sé eftir miklu að slægjast
við að auka hagkvæmni. Hin nýja
vara muni því í grundvallaratriðum
breyta því hvernig skipaiðnaðurinn
sé rekinn.
„Skipaiðnaðurinn byggir ákvarð-
anir, sem teknar eru á landi, á upp-
lýsingum sem fengnar eru með skrif-
legum hætti frá þeim sem eru um
borð í skipunum. Stundum hafa þeir
ákveðnar hugmyndir um frá hverju
eigi að segja og hverju ekki,“ bendir
hann á.
„Þú veist aldrei almennilega hvort
verið sé að reka skipin á hagkvæmasta
hátt,“ segir hann.
Marorka stefni nú að því að vinna
betur úr þeim upplýsingum sem bún-
aður Marorku safni á skipum nú þegar
og bæta við aðferðum til að vinna
nýjar upplýsingar.
Með hinum nýju vörum verði Mar-
orka ekki eins háð sveiflum í olíu-
verði, sem er mjög lágt um þessar
mundir.
Hins vegar sé nú mikil umfram-
afkastageta í skipaflutningum í heim-
inum sem hafi haft í för með sér að
verð á farmflutningum hafi lækkað
hratt. Fyrir ári hafi kostað tæplega 500
þúsund krónur að flytja 20 feta gám
frá Sjanghæ til Rotterdam en það kosti
í dag um 70 þúsund krónur. Þá kosti
í dag 50 dollara, um 6.500 krónur,
að flytja 20 feta gám frá Sjanghæ til
vesturstrandar Bandaríkjanna.
Þetta hafi í för með sér verri
afkomu fyrir skipafyrirtæki sem valdi
því að þau séu ólíklegri til að fjárfesta
í nýjum búnaði, til að mynda þeim
sem Marorka bjóði upp á.
ingvar@frettabladid.is
Skorti þekkingu á skipaútgerð
Nýráðinn forstjóri Marorku segir þekkingu á skipaútgerð hjá fyrirtækinu hafa skort. Hann vill að hægt
verði að nálgast upplýsingar um alla þætti í rekstri skipa frá landi. Verð í farmflutningum hafi hrunið.
Jürgen Kudritzki, nýráðinn forstjóri Marorku, vill að Marorka aðstoði við alla mögulega þætti við rekstur skipa. FréttaBlaðið/antOn BrinK
þú veist aldrei
almennilega hvort
verið sé að reka skipin á
hagkvæmastan hátt.
Jürgen Kudritzki, forstjóri Marorku
6.500
krónur kostar að flytja 20
feta gám frá sjanghæ til
vesturstrandar Bandaríkj-
anna að sögn kudritzki.
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r8 markaðurinn
2
4
-0
2
-2
0
1
6
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
9
1
-A
5
9
C
1
8
9
1
-A
4
6
0
1
8
9
1
-A
3
2
4
1
8
9
1
-A
1
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K