Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 6

Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 6
13. júní 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4 50% kvenna hafa verið áreitt kyn- ferðislega við vinnu sína sam- kvæmt nýjum rannsókn- um. Konur eru líklegri til að vera áreittar af yfirmönnum sínum og upplifa meiri öryggis- skort en karlar. Íslenskar konur fá ávísað rúmlega 8hefðu íslenskir neytendur sparað sér á ári frá 2011 til 2013 ef boðið hefði verið upp á innflutning á mjólkurfurðum samkvæmt skýrslu Hagfræði- stofnunar HÍ. MILLJARÐA 30ÞÚSUND dagskömmtum af svefnlyfjum á hverjar þúsund konur á hverju ári á Íslandi í dag. býr starfsfólk við ónæði á vinnu- stað sínum vinni það í opnu rými samkvæmt niðurstöðu alþjóðlegrar rannsóknar. Á 11. hverri mínútu 861 dvalarleyfi var gefið út af Útlendingastofnun á fyrsta fjórðungi ársins. Flest þeirra voru veitt Bandaríkjamönnum. 13,3% landsmanna hafa aldrei lesið bækur og hefur sá hópur næstum tövfaldast á fjórum árum. SPÁNN Filipus Spánarkonungur hefur svipt systur sína, Kristínu prinsessu, titlinum hertogaynja af Palma. Hún, ásamt eiginmanni sínum, Inaki Urdangarin, mætir fyrir dómstóla vegna ásakana um skatt- svik. Þau eiga að hafa svikið út opinbert fé upp á 5,6 milljónir evra eða rúmlega 800 milljónir íslenskra króna í gegnum íþrótta- samtök Urdangarin. Þau hafna bæði ásökunum en ef þau eru sakfelld eiga þau yfir höfði sér fangelsisvist. - srs Svipt hertogaynjutigninni: Prinsessan gæti endað í fangelsi FYRRVERANDI HERTOGAYNJA Kristín á að hafa svikið út opinbert fé. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA SJÁVARÚTVEGUR Árið 2014 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða rúmum 248 millj- örðum króna og dróst saman um 15 prósent frá fyrra ári. Er þar um að ræða samtölu útflutnings og birgðabreytinga sjávarafurða. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Framleiðslan mæld á föstu verði dróst saman um 7,1 prósent. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 272 milljarða króna, sem er um 10,5 prósenta samdráttur milli ára og í magni um 16,7 prósent. - ngy Framleiðsla sjávarafurða: Minna útflutn- ingsverðmæti STJÓRNMÁL Það kom mörgum stjórnarandstæðingum í opna skjöldu á þingfundi í gær að Sig- urður Ingi Jóhannsson, landbúnað- ar- og sjávarútvegsráðherra, mælti fyrir frumvarpinu en ekki Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra. „Við höfum lengi kallað eftir því að fram færi samtal og umræða um þessi mál en við höfum greinilega talað við vitlausa menn,“ sagði Guð- mundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar. „Við gerðum okkur ekki grein fyrir því að hæstvirtur ráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, færi með kjaramál. Því spyr ég nú, hví varð landbúnaðarráðherra ekki við kröfum okkar um að taka kjaramál til umræðu?“ Mikil ólga var á Alþingi í gær undir umræðum um lög á verkfall Bandalags háskólamanna og hjúkr- unarfræðinga. Umræður um frumvarpið stóðu enn á Alþingi þegar Fréttablaðið fór í prentun en að öllum líkind- um verður fjallað um málið í alls- herjar- og menntamálanefnd í dag og málinu lokið í seinni umræðum í kjölfarið. Frumvarpið sem Sigurður Ingi lagði fram bannar allar vinnu- stöðvanir og aðgerðir til að knýja fram kjarabætur. Hafi deiluaðilar ekki skrifað undir kjarasamninga fyrir 1. júlí skal Hæstiréttur skipa þrjá menn í gerðardóm sem ákveð- ur kaup og kjör félagsmanna þeirra stéttarfélaga sem um ræðir. Gerð- ardómur skal taka mið af kjörum þeirra stétta sem teljast sambæri- legar í menntun, störfum, vinnu- tíma og ábyrgð. Auk þess skal gerðardómur gæta að stöðugleika efnahagsmála. Hiti var í þingmönnum en meðal annars voru gerð hróp og köll að Gunnari Braga Sveinssyni utan- ríkisráðherra þegar hann sakaði stjórnarandstöðuna um kjarkleysi og hlaut Jón Þór Ólafsson, þingmað- ur Pírata, lófatak úr áhorfendastúk- um þegar hann hvatti þingheim til að leita annarra lausna en að setja lög á verkfallið. Við upphaf þingfundar voru félagsmenn BHM og Félags hjúkr- unarfræðinga mættir á Austurvöll til að mótmæla frumvarpi ríkis- stjórnarinnar. Hljóðið var þungt í fólki. „Það er bara hörmuleg niður- staða,“ segir Þórunn Sveinbjarn- ardóttir, formaður BHM, um laga- setningu á verkföllin. „Versta mögulega niðurstaða. Við höfum samningsrétt samkvæmt stjórnarskrá og viljum semja um kaup okkar og kjör. Fólk er mjög reitt, það er vonsvikið og finnst það hafa verið niðurlægt í þessu langa ferli. Við höfum ekki fengið alvöru samningaviðræður. Ríkið gerði ekk- ert til að reyna að koma í veg fyrir verkföllin. Staðan er mjög alvar- leg.“ stefanrafn@frettabladid.is snaeros@frettabladid.is Róstusamt í ræðustólnum Athygli vakti að landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra flutti frumvarp um bann á verkföll BHM og hjúkrunar- fræðinga í stað forsætisráðherra. Frumvarpið verður að öllum líkindum samþykkt sem lög í dag. ALVARLEG STAÐA Stjórnarandstaðan segir ráðamenn loka augunum gagnvart vanda heilbrigðiskerfisins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hvernig var það þegar núverandi stjórnarand- staða setti lög á flugvirkja? Hvernig var umræðan hérna þá? Var það hroki og hræsni sem þá var um að ræða? Gunnar Bragi Sveinsson Okkur er boðið upp á það með engum fyrir- vara að þessi ríkisstjórn ætli að leysa þessar vinnudeilur einmitt í þingsölum með lagasetningu. Katrín Júlíusdóttir 07.06.2015 ➜ 12.06.2015
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.