Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 8
13. júní 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
KJARAMÁL Þolinmæði hjúkrunar-
fræðinga fyrir láglaunastefnu
stjórnvalda er að þrotum komin.
Þetta segir hjúkrunarfræðingur
sem staddur var ásamt um tvö
hundruð öðrum að mótmæla á
Austurvelli í gær.
Fjölmargir hjúkrunarfræðingar
voru mættir fyrir framan Alþing-
ishúsið þegar þingfundur átti að
hefjast klukkan tíu í gærmorg-
un. Þrátt fyrir að þingfundi væri
frestað til hálftvö síðdegis létu
hjúkrunarfræðingar engan bilbug
á sér finna.
Fréttablaðið ræddi við fjöl-
marga viðstadda og var hljóðið í
þeim allt á einn veg. Ástandið væri
ekki lengur viðunandi og ef lög
yrðu samþykkt á verkfallið væri
ekkert annað í stöðunni en að segja
starfi sínu lausu.
Margir höfðu þegar útvegað sér
leyfi til að starfa erlendis og voru
farnir að skipuleggja flutninga
með fjölskyldum sínum.
Aðeins einn hjúkrunarfræð-
ingur sem Fréttablaðið ræddi
við sagðist ætla að starfa áfram
á Landspítalanum sama hvað á
dyndi, hún ynni starfið af hugsjón
en ekki vegna launanna sem væru
skammarlega lág.
Verkfall hjúkrunarfræðinga
hófst þann 27. maí síðastliðinn og
hefur því staðið yfir í rúmar tvær
vikur. Um 1.500 hjúkrunarfræð-
ingar hafa lagt niður störf, en um
600 þeirra manna öryggislista sem
eru í gildi.
BHM og Félag íslenskra hjúkr-
unarfræðinga sendu alþingis-
mönnum áskorun um að hafna
lögum ríkisstjórnarinnar. Þór-
unn Sveinbjarnardóttir, formað-
ur BHM, og Ólafur G. Skúlason,
formaður FÍH afhentu Einari K.
Guðfinnssyni, forseta Alþingis
áskorunina. Einar lofaði að gera
þingheimi grein fyrir henni.
snaeros@frettabladid.is
Segja upp og fara
Hjúkrunarfræðingar segja stjórnvöld senda þeim fingurinn með fyrirhugaðri
lagasetningu á verkfall. Mikill fjöldi hyggst segja starfi sínu lausu. Börn og makar
fylgja hjúkrunarfræðingum sem ætla að leita nýrra starfa í nágrannalöndunum.
BARÁTTUANDI Hjúkrunarfræðingar fjölmenntu á Austurvöll og á þingpalla í gær þegar umræða fór fram um lög á verkfall
þeirra og BHM. Þungt hljóð var í fólki, en mikill baráttuandi og samstaða ríkti í hópnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MÆLIRINN
FULLUR
Unnur Guðjónsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur hjá Heilsugæslu
Reykjavíkur, er ákveðin í því að
segja starfi sínu lausu verði lög
samþykkt á verkfall hjúkrunar-
fræðinga. „Það er ekki boðlegt að
vera í þessu starfi. Það er verið
að biðja okkur um að segja upp.“
Hún er ekki einn þeirra hjúkrunarfræðinga sem sögðu
starfi sínu lausu til að knýja fram samninga snemma
árs 2014. „En nú er mælirinn fullur,“ segir Unnur.
ÖLL FJÖLSKYLDAN
FÆRI MEÐ
Árný Daníelsdóttir er sérfræði-
menntaður svæfingar- og bráða-
hjúkrunarfræðingur. Hún segir
að lög á verkfall muni verða þess
valdandi að hún íhugi alvarlega
framtíð sína og segi upp hjá
Landspítalanum. „Ef lögin verða
staðreynd þá mun ég segja upp.
Ég er ákveðin.“ Hún segir að fari svo muni hún, líkt
og margir aðrir hjúkrunarfræðingar, leita sér að vinnu
erlendis. „Ég er með norska hjúkrunarleyfið og mun
sennilega finna mér vinnu úti með mína tvöföldu sér-
menntun,“ segir Árný. „Ég á þrjá unglinga og mann og
við munum öll flytja.“
STJÓRNVÖLD
SENDA FINGURINN
„Ég mun íhuga að flytja verði lög
sett á verkfallið. Maðurinn minn,
sem er sjúkraliði, tók ekki illa í það
í gærkvöldi,“ segir Anna Guðríður
Gunnarsdóttir, verkefnastjóri ung-
og smábarnaverndar hjá Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands. Anna segir að
þrátt fyrir nokkrar meistaragráður
nemi laun hennar fjögur hundruð þúsund krónum á mán-
uði. „Þetta er auðvitað ekki boðlegt. Stjórnvöld eru bara
að senda okkur fingurinn.“
RÁÐAMENN MEÐ
HELGISLEPJU OG HRÆSNI
„Mér finnst þetta til skammar
fyrir þessa þjóð,“ segir Ingibjörg H.
Elíasdóttir, hjúkrunarfræðingur og
heilbrigðisfulltrúi hjá Reykjavíkur-
borg. „Þetta er barátta allra hjúkr-
unarfræðinga. Ég er hér til að sýna
samstöðu með minni stétt og sjálfri
mér.“ Ingibjörg segir kaldhæðnislegt
að hjúkrunarfræðingar, sem kvennastétt, þurfi að mótmæla
lökum kjörum þegar hundrað ár eru síðan konur fengu
kosningarétt. „Maður var búinn að láta sig hlakka til að
halda upp á 19. júní en svo er sparkað í mann liggjandi. Svo
munu ráðamenn vera hér með helgislepjuna og hræsnina,
talandi um hvað konur eru mikilvægar og flottar og hvað
við höfum það gott,“ segir Ingibjörg. „Hér stöndum við á
meðan það er verið að eyðileggja heilbrigðiskerfið.“
Hér stöndum við á meðan heilbrigðiskerfið er eyðilagt
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
68
0
57
Frá kr.
109.900
Maleme
Mare
Frá kr. 131.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr. 131.900 m.v. 2 fullorðna
og 2 börn í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 156.900 m.v. 2 fullorðna
í stúdíó.
Marina
Sands
Frá kr. 115.900
m/morgunmat
Netverð á mann frá
kr. 115.900 m.v. 2 fullorðna
og 1 barn í herbergi.
Netverð á mann frá
kr. 132.900 m.v. 2 fullorðna
í stúdíó.
Omega
Frá kr. 109.900
Netverð á mann frá
kr. 109.900 m.v. 2 fullorðna
og 2 börn í íbúð.
Netverð á mann frá
kr. 126.900 m.v. 2 fullorðna
í stúdíó.
Stökktu
Frá kr. 109.900
m/morgunmat
Netverð á mann frá kr.
109.900 m.v. 2-3 í íbúð/
stúdíó/herbergi.
Frá kr. 139.900
m/allt innifalið
Netverð á mann frá
kr.139.900 m.v. 2-3 í íbúð/
stúdíó/herbergi.
SÉRTILBOÐ
SÉRTILBOÐ
STÖKKTU
SÉRTILBOÐ
m/allt innifalið
Bókaðu sól á
22. júní í 10 nætur
Krít
Krít grípur alla sem þangað koma með sinni einstöku menningu
og sögu, landslagi og ekki síst viðmóti eyjaskeggja sem hafa
sinnt ferðamönnum af sinni alkunnu snilld svo áratugum skiptir
án þess þó að tapa sérkennum sínum. Hér er enn að finna ekta
gríska menningu í þorpunum þar sem menn og konur hittast
undir húsvegg eða á kaffihúsum í lok dags og skrafa saman um
daginn og veginn.
m/morgunmat