Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 10
13. júní 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
í tileFni dAgsinS
– alLa dagA
með vaNillubrAgðI með súKkulaðIsósU hneTuís Með karaMellusósU -Toppurinn á ísnum
ÍSinn Með
Gula LokinU
RR
\\\
TB
W
A
TB
W
TB
W
B
W
B
WWW
A
AA
•• S S
ÍAA
ÍAÍA
•• 1
5
0
1
6
4
1
5
0
1
6
4
5
0
1
6
5
0
1
6
BJÖRNSBAKARÍ DALBRAUT
mánudaga - föstudaga 7.30 - 17.30
laugardaga 8.00 - 16.00
sunnudaga 8.00 - 16.00
TILBOÐ Í JÚNÍ
ALLT NÝBAKAÐ BRAUÐ Á 25% AFSLÆTTI
DANMÖRK Fyrst eftir að Helle
Thorning-Schmidt forsætis-
ráðherra tilkynnti í lok maí að
efnt yrði til kosninga núna 18.
júní virtist allt stefna í að hægri
flokkarnir, undir forystu Lars
Løkke Rasmussen, myndu fella
stjórnina.
Þetta nokkurra prósenta for-
skot bláu blokkarinnar svonefndu
er nú horfið. Samkvæmt skoð-
anakönnunum skiptast kjósend-
ur nánast hnífjafnt á milli fylk-
inganna.
Stóru flokkarnir tveir skiptast
á um að kynna ný loforð til að
laða að kjósendur, þar sem áhersl-
urnar hafa meðal annars verið
á atvinnumál, umhverfismál,
skatta og flóttamannastrauminn
til Danmerkur.
Á fimmtudagskvöldið mættust
svo leiðtogar þeirra, þau Thorn-
ing-Schmidt og Løkke, í sjón-
varpseinvígi, því þriðja sem efnt
er til í þessari kosningabaráttu.
Þar þrættu þau um það hvoru
þeirra kjósendur gætu þakkað
hagvöxt síðustu ára.
„Við höfum séð til þess að Dan-
mörk er komin út úr kreppunni,
og nei, Lars Løkke, það ert ekki
þú sem hefur séð til þess. Það
er mín pólitík sem hefur séð til
þess,“ sagði forsætisráðherrann.
„Nú þykir mér, ærlega talað, að
þú sért að skreyta þig með láns-
fjöðrum,“ svaraði Løkke.
Þráttað um
árangurinn
Svo mjótt er á mununum í dönsku kosningabarátt-
unni að engin leið er að spá með neinu öryggi um það
hvor blokkin verður ofan á, sú rauða eða bláa. Kosið
verður til þings á fimmtudaginn í komandi viku.
KOSNINGABARÁTTAN Helle Thorning-Schmidt forsætisráðherra á atkvæðaveiðum.
NORDICPHOTOS/AFP
Kosningar Skoðana-
15. sept. könnun Gallup
2011 12. júní 2015
Rauða blokkin
Sósíaldemókratafl. 24,8 26,5
Róttæki vinstrifl. 9,5 4,8
Sósíalíski þjóðarfl. 9,2 4,7
Einingarlistinn 6,7 9,3
Alternativet – 4,4
Samtals 50,2 49,7
Bláa blokkin
Venstre, Frjálsl. fl. 26,7 20,8
Danski þjóðarfl. 12,3 17,5
Frjálslynda bandal. 5 6,8
Íhaldsflokkurinn 4,9 4,3
Kristilegir demókr. 0,8 0,1
Samtals 49,7 50,1
➜ Flokkarnir í Danmörku
AKUREYRI Heimilislæknar á Akureyri eru
ekki nægilega margir til að allir íbúar bæj-
arins geti fengið sinn heimilislækni. Jón
Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofn-
unar Norðurlands, segist ekki vita hversu
margir Akureyringar eru án heimilislæknis
en þeir séu talsvart margir.
„Þetta er vandamál okkar á Akureyri að
það eru ekki nógu margir fastráðnir læknar
við störf á heilsugæslunni í bænum. Við
þyrftum að vera með um þrettán lækna
en erum einungis með sjö lækna nú. Þetta
vandamál hefur verið viðloðandi í nokkuð
langan tíma en við vonum að við getum
ráðið í stöður til að bæta ástandið.“ segir Jón
Helgi.
Fastráðnum læknum á Akureyri hefur
fækkað á Akureyri að sögn Jóns Helga og
hafa námslæknar verið áberandi á heilsu-
gæslunni. Í lok síðasta árs var heilsugæslan
færð frá sveitarfélagi til ríkisins.
„Það er erfitt að ráða fasta lækna alls stað-
ar, ekki bara á Akureyri,“ segir Jón Helgi.
„Hins vegar vonum við að þeir námslæknar
sem koma til okkar vilji vera áfram og því
bindum við vonir um að snúa þessu við og
höfum góðar vonir um að eitthvað af þeim
læknum fari í fastar stöður hjá okkur.“ - sa
Heilsugæslulæknar á Akureyri eru of fáir að mati forstjóra Heilbrigðisstofnunar Norðurlands:
Ekki hægt að tryggja öllum heimilislækni
VANTAR FIMM Að mati forstjóra Heilbrigðisstofnunar
Norðurlands þarf að ráða fimm heilsugæslulækna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
SAMFÉLAG Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna og Golfklúbb-
urinn Tuddi hafa tekið höndum
saman og halda fyrstu styrktar-
sölu á grilluðum kótelettum á tón-
listar- og grillhátíðinni Kótelett-
unni BBQ Festival sem fram fer á
Selfossi dagana 12. til 14. júní.
Allur ágóði af kótelettusölu
rennur óskiptur til Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna. Mark-
miðið er að selja fimmtán þúsund
kótelettur á hátíðinni sem gefnar
eru af Golfklúbbnum Tudda. - ngy
Halda tónlistar- og grillhátíð:
Kóte lettur grill-
aðar til góðs
„Það ert þú sem ert að skreyta
þig með lánsfjöðrum,“ svaraði þá
Thorning-Schmidt.
Sitt sýndist hverjum um það
hvort þeirra hafði betur í einvíg-
inu.
Samkvæmt skoðanakönnun,
sem birt var í Jótlandspóstinum
í gær, segjast nærri 70 prósent
Dana ekki hafa það á tilfinning-
unni að danskir stjórnmálamenn
taki skoðanir og áhyggjur kjós-
enda alvarlega.
Almennt hefur tiltrú Dana á
stjórnmálamönnum dalað mjög á
síðustu árum.
gudsteinn@frettabladid.is