Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 32
13. júní 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
Íslenskir NBA-áhugamenn
deila ráðum til að halda
sér vakandi og fræða
lesendur um hvað sé
best að gera í leikhléum.
Áhorf á NBA tekur sinn
toll af fólki daginn eftir.
Hin gríðarlega spennandi úrslit í NBA-deildinni njóta mikillar athygli hér á landi. Á samfélagsmiðlum má gjarnan sjá líflegar umræður á meðan leikirnir eru í gangi og á milli leikja er taktík liðanna krufin og frammistaða leikmanna ýmist
lofuð eða löstuð, eftir því hvernig leikar enduðu.
Vegna tímamismunar á Íslandi og í Bandaríkjun-
um fara leikirnir fram á meðan flestir Íslendingar
eru sofandi. Leikirnir hefjast yfirleitt í kringum mið-
nætti og standa fram eftir nóttu. NBA-áhugamenn
þekkja það vel hversu erfitt getur reynst að halda
sér vakandi yfir einvígi Golden State Warriors og
Cleveland Cavaliers. Fréttablaðið fékk þrjá forfallna
áhugamenn um deildina til þess að deila leyndarmál-
unum við að halda sér vakandi. Einnig voru þremenn-
ingarnir beðnir um að deila með lesendum hvort allar
þessar vökunætur væru farnar að hafa áhrif á heilsu
þeirra.
Kjartan Atli
Kjartansson
kjartanatli@365.is
RÁÐ TIL ÞESS
AÐ VAKA YFIR
NBA-ÚRSLIT Einvígi Golden State Warriors og Cleveland
Cavaliers hefur staðið yfir að undanförnu með tilheyrandi vöku
aðdáenda körfuboltans. NORDICPHOTOS/GETTY
Anna María Ævarsdóttir
flugfreyja, fjölmiðlafræðinemi og
leikmaður KR í Domino’s-deildinni
Hvernig undirbýrð þú þig á leikdegi?
Það er alltaf sterkur leikur að fara á
góða æfingu á kvöldin eftir vinnu eða
skóla og taka smá lúr fyrir leik til að
halda sér vakandi síðar um kvöldið. Svo
má ekki gleyma „mönsinu“ en það er
afar mikilvægur hluti af stemmaranum.
Hvernig er dagurinn eftir leik? Þar sem
ég bý svo vel að vera í vaktavinnu og
er algjör „B-manneskja“ þá finnst mér
nauðsynlegt að fá að sofa út. Vinnufríin
eru því kærkomin þegar NBA er í
gangi. Það er ekki laust við að maður
sé svolítið þreyttur eftir vökunótt í boði
Stöð 2 Sport.
Hvað gerir þú í leikhléum? Ég eyði
langmestum tíma mínum á samfélags-
miðlum þegar leikhlé og hálfleikur er,
þá sérstaklega á Twitter. Það er alltaf
skemmtilegt að lesa hnyttin tíst frá
öðrum körfuboltaáhugamönnum nær
og fjær sem spara oftar en ekki stóru
orðin.
Hversu lengi hefur þú fylgst með NBA-
deildinni? Ætli það séu ekki komnir
góðir tveir áratugir síðan ég byrjaði að
fylgjast með NBA. Ég man að minnsta
kosti vel eftir mér 9-10 ára gamalli
með möppur og pennaveski með öllu
tilheyrandi merkt Chicago Bulls í
skólatöskunni. Enda 3peat champs á
þessu tímabili og Jordan að bæta MVP-
titlum í safnið.
Finnur þú mun á heilsu þinni á vorin
og sumrin, þegar þú vakir lengur fram
eftir? NBA er bara lúxus á sumrin
þegar skólanum og tímabilinu heima
lýkur og „finals“ detta í gang. Þá leyfi
ég mér alveg að vaka fram eftir nóttu
þegar ég er í vaktafríi og sólarhringur-
inn fer í rugl. Heilsan er því bara góð
og ég hressi mig oft við með því að fara
í líkamsrækt.
Er böl að vera NBA-áhugamaður? Það
er böl að vera NBA-áhugamaður… á
Íslandi já! Tímamismunurinn er ekkert
að hjálpa manni og oft þarf maður að
sætta sig við endursýningar á leikjum
þegar maður nær ekki beinu útsend-
ingunni.
Vaktavinnan bjargar vökunóttum
AÐDÁANDI
Í TUTTUGU
ÁR Anna
María hefur
fylgst með
NBA frá því
hún var tíu
ára gömul og
safnaði öllu
merktu Chic-
ago Bulls.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Bragi Páll ljóðskáld
Hvernig undirbýrð þú þig á leik-
degi? Ef ég get þá reyni ég að sofa til
hádegis á leikdegi. Þannig stilli ég
líkamsklukkuna inn á bandarískan
tíma og á auðveldara með að vaka
fram eftir. Einnig eru leikdagar einu
dagarnir þar sem ég leyfi mér að
drekka kaffi eftir klukkan 16, en samt
í stýrðu hófi. Af því ég þarf líka að
geta sofnað stuttu eftir að leiknum
líkur. Svo á ég um 20 NBA-treyjur og
það fer því alltaf einhver tími í það
mikilvæga ferli að velja réttu treyjuna
fyrir hvern og einn leik.
Hvernig er dagurinn eftir leik?
Ég er eiginlega í fæðingarorlofi, þannig
ef ég hef tök á þá sef ég út. Annars tek
ég glaður út körfuboltaþynnkuna ef
mér tekst það ekki. Reyndar hefur þetta
aðeins breyst eftir að ég gerðist áskrif-
andi að NBA-League Pass. Þar get ég
nefnilega horft á leiki daginn eftir án
þess að vita hvernig þeir fóru. Þá þarf
ég bara að forðast alla samfélagsmiðla,
hlusta ekki á fréttir og svara ekki í sím-
ann fyrr en ég er búinn að horfa á leik-
inn, þá er ég í góðum málum.
Hvað gerir þú í leikhléum? Það er
misjafnt. Ég fylgist með því sem
spjátrungarnir eru að segja á Reddit
og Twitter. Stundum tefli ég styttri
eða lengri skákir á netinu. Um þessar
mundir er ég að þýða bók og það er
ágæt að grípa í það inn á milli.
Hversu lengi hefur þú fylgst með
NBA-deildinni? Fyrsta úrslitaserían
sem ég man eftir var þegar Bulls unnu
Pheonix 1993. Fyrsta serían sem ég
man eftir að hafa horft á í heild sinni
voru úrslitin 1996. Síðan þá hef ég
alltaf reynt að fylgjast með úrslit-
unum, en síðustu ár, eftir að hægt var
að kaupa áskrift á netinu, hef ég svo
farið að horfa á alla leiktíðina.
Finnur þú mun á heilsu þinni á vorin
og sumrin, þegar þú vakir lengur
fram eftir? Flestir sem þekkja mig
vita að á þessum árstíma er ég mjög
fölur, með svefnskalla og fæst illa til
að tala um annað en körfubolta.
Er böl að vera NBA-áhugamaður?
Alls ekki. Það að fylgjast með NBA
deildinni er eitt það skemmtileg-
asta sem ég geri, og þó geri ég mjög
mikið af mjög skemmtilegum hlut-
um.
Mikilvægt að velja réttu treyjuna
TEKUR ÚT
KÖRFU-
BOLTA-
ÞYNNKUNA
Bragi Páll
teflir eða
þýðir bók í
leikhléum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Haukur Viðar Alfreðsson
tónlistarmaður og sniðugmenni
hjá Brandenburg
Hvernig undirbýrð þú þig á leikdegi?
Ég tek þetta á samblandi af þrjósku og
heimsku. Og Pepsi Max. Ég get sofið
þegar ég verð gamall. Reyndar fer ég
alltaf úr buxunum rétt áður en flautað
er til leiks. Það er ekki hægt að horfa á
NBA og vera í buxum.
Hvernig er dagurinn eftir leik? Ég fæ
aldrei að sofa út. Hjól atvinnulífsins
snúa sér ekki sjálf. En það má snúa
þeim geispandi.
Hvað gerir þú í leikhléum? Skoða
Facebook og Twitter. Þar eru menn
sem eru mun fróðari um leikinn en ég.
Ég les og læri. Tjái mig lítið sjálfur.
Hversu lengi hefur þú fylgst með
NBA-deildinni? Síðan 1991 en þó með
hléum. Lengi vel var ekki gaman að
vera San Antonio-aðdáandi og þá var
þetta ekkert heilagt fyrir mér. Svo
hefur þetta ágerst með tímanum.
Finnur þú mun á heilsu þinni á vorin
og sumrin, þegar þú vakir lengur fram
eftir? Ég vaki ekki fram eftir meðan á
tímabilinu stendur en úrslitakeppnin
getur tekið á. En heilsan er ágæt. Smá
sjóntruflanir og ör hjartsláttur hefur
aldrei drepið neinn.
Er böl að vera NBA-áhugamaður? Alls
ekki. Það er dásamlegt. Að ídolísera
rúmlega tveggja metra háa, moldríka
krakkaskratta sem myndu ekki einu
sinni heilsa mér úti á götu er kannski
ekki eðlileg hegðun þegar maður er 35
ára en svona er þetta bara.
Sjóntrufl anir og ör hjartsláttur
ÚR
BUXUNUM
Það er
heilagur
siður hjá
Hauki Viðari
að afklæðast
fyrir áhorf á
NBA-leik.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
NBA
Á NÓTTUNNI