Fréttablaðið - 13.06.2015, Síða 34
13. júní 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
Halla er önnum kafin þessa dagana. Hún skipuleggur alþjóð-lega ráðstefnu þar sem háskólafólk og leið togar alþjóðlegra
fyrir tækja munu ræða hennar hjart-
ans mál: Hvernig hægt sé að virkja
kvenauðinn í samfélaginu og fjölga
kvenkyns frumkvöðlum, leið togum,
stjórnarmönnum og fjárfestum.
En kynjajafnrétti hefur ekki
alltaf verið Höllu efst í huga og
áður fyrr leit hún alls ekki á sig
sem femín ista. Það fór að breyt-
ast þegar hún flutti heim eftir tíu
ára nám og störf í Bandaríkjunum.
Verkefnin sem hún tók að sér hér á
landi beindu sjónum hennar sífellt
meira að vannýttum hæfileikum
kvenna. Hún stýrði stjórnendaskóla
HR og Auði í krafti kvenna, var
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Íslands, sat í stjórnum fjölmargra
fyrirtækja, stofnaði Auði Capital og
hefur undanfarin ár starfað erlendis
við að virkja kvenauðinn. Í dag seg-
ist hún svo sannarlega vera femín-
isti sem lítur á jafnréttismál sem
efnahagsmál, enda séu efnahags-
legir hagsmunir af aukinni þátt-
töku kvenna í viðskiptalífinu aug-
ljósir. En hvað breyttist?
„Þegar ég var á þrítugsaldri trúði
ég því ekki að kynið skipti máli,
taldi þetta einfaldlega snúast um
hæfni einstaklingsins. Á þessum
tíma var orðið femínismi líklega
heldur neikvætt orð í mínum huga
og þegar ég lít til baka þá féll ég
örugglega oft í þann pytt að haga
mér eins og karlmaður á vinnu-
staðnum til að falla í hópinn. Ég
gerði það algjörlega ómeðvitað. Ég
er með mikla aðlögunarhæfni og
horfði bara á hvernig leikurinn var
spilaður og hermdi eftir.“
„Æðra“ að vera í strákahópnum
Halla segist hafa verið með hlaðnar
hugmyndir um jafnréttismál. Hún
var alltaf mjög jafnréttissinnuð en
lærði í námi og starfi að það væri
vænlegra til árangurs að vekja ekki
of mikla athygli á að vera öðruvísi.
„Það var betra að vera ein af
hópnum – og í viðskiptum og fjár-
málum er hópurinn oftast karl-
lægur. En svo steig ég út fyrir
þægindahringinn og tók fyrsta
„kvennaverkefnið“ þegar ég tók að
mér að leiða Auði í krafti kvenna
því ég var sammála því að það væri
efnahagslegur ávinningur af því.
Ég man að góður vinur minn spurði
mig af hverju í ósköpunum ég vildi
vera í svona konudæmi, þegar karl-
arnir fíluðu mig svo vel. Hann var
svo einlægt hissa á mér. Hann gaf
klárlega í skyn að ég væri að velja
það „síðra“ þegar ég gæti verið að
velja það „æðra“ – það er að segja
strákahópinn.“
Hleypti manneskjunni út
Halla hefur oft verið eina konan í
þeim stjórnum sem hún hefur setið
í. Hún segist hafa vel getað haldið
áfram að starfa í Bandaríkjunum
með tilheyrandi starfsframa og vel-
gengni. En það kom að þeim tíma-
punkti að hún fór að spyrja sjálfa
sig æ oftar hvað væri í raun og veru
velgengni. Þær vangaveltur breyttu
hugarfarinu smám saman og hefur
hún í seinni tíð hiklaust valið að
starfa við hluti sem samræmast sem
best hennar gildismati.
„Velgengni hlýtur að vera þegar
maður getur verið besta útgáfan af
sjálfum sér í lífi og starfi. En ekki
þegar maður þarf að leika eitthvað
hlutverk. Þegar ég hóf störf í HR þá
var ég næstum í fyrsta skipti ekki
eina konan í stjórnendateyminu. Ég
upplifði oftar en nokkru sinni áður
að vera „ein af stelpunum“ og það
kom mér skemmtilega á óvart hvað
ég upplifði mikinn kraft – sérstak-
lega í því að sameinast í kringum
þann skýra tilgang sem uppbygg-
ing háskóla hefur og þann sam-
félagslega ávinning sem slíkt starf
getur skilað. Á sama tíma varð ég
móðir og við það tengdist ég lík-
lega betur sjálfri mér. Þetta var
mjög annasamur tími, það skap-
HAGAÐI SÉR EINS
OG KARLMAÐUR TIL
AÐ FALLA Í HÓPINN
Halla Tómasdóttir segist aldrei hafa ætlað að snerta á konumálum en
með auknum þroska fann hún að kvenlægir eiginleikar hennar gerðu
hana að sterkari stjórnanda. Í dag segist hún vera femínisti og velur sér
verkefni sem hafa það að markmiði að virkja ónýttan kvenauð.
VILL VIRKJA KVENAUÐINN Halla er ráðstefnustjóri WE 2015 sem er í anda verkefna hennar á undanförnum árum. Á ráðstefn-
unni tekur til máls háskólafólk og leiðtogar alþjóðlegra fyrirtækja til að skapa samtal um efnahagslegan ávinning þess að virkja
konur í viðskipta- og fjármálaheiminum. Hægt verður að fylgjast með samtalinu á vefsvæði RÚV og Inspiral.ly. FRÉTTBLAÐIÐ/STEFÁN
Erla Björg
Gunnarsdóttir
erlabjorg@frettabladid.is
aðist oft togstreita á milli heimil-
is og starfs. Alveg brjálað að gera
hjá báðum foreldrum og stundum
þurfti einfaldlega þriðja foreldrið
til svo dæmið gengi upp. Ég áttaði
mig á þessum tíma á því að ég bjó
yfir hæfileikum sem ég nýtti ekki
alltaf til fulls í starfi. Ég fann að ég
varð einfaldlega betri og kröftugri
stjórnandi þegar ég hleypti sjálfri
mér út og leyfði mér að vera ég sjálf
í vinnunni. Ég lærði í námi og starfi
að það yrði alltaf að beita rökhugs-
un. Þannig að ég reyndi alltaf að
klæða tilfinningar mínar í rökræn-
ar umbúðir. En ég hef með árunum
lært að treysta á innsæið og þori að
fylgja því.“
Missti trú á fjármálaheiminum
Halla lítur enn svo á að jafnréttis-
mál séu í grunninn efnahagsmál en
markmið hennar er þó ekki síður að
leggja sitt af mörkum til að skapa
mannlegt samfélag þar sem allir
fá að njóta sín. Á þeim forsendum
hefur hún unnið verkefni sín á síð-
ustu árum.
„Það er ekkert leyndarmál að
Auður Capital varð til því ég missti
að ákveðnu leyti trú á fjármála-
markaðinn eins og hann var. Þannig
að við Kristín Pétursdóttir, sem
stofnaði fyrirtækið með mér, vild-
um koma kvenlægari gildum inn í
fjármálaheiminn því hvoruga okkar
langaði að taka þátt í þessum heimi
eins og hann rúllaði þá. Okkur lang-
aði að vera í viðskiptum og hagnast
en vildum vinna út frá grunngildum
sem hugnuðust okkur. Við vildum
hagnað með hugsjón, þar sem fólk,
samfélag og umhverfi skipta líka
máli. Við lifðum af hrunið og okkar
traust óx í öfugu samhengi við það
sem gerðist annars staðar. Ég held
það hafi gerst fyrir konur almennt
á þessum tíma og orðræðan jókst
um mikilvægi þátttöku kvenna í
stjórnum og áhrifastöðum almennt,
bæði hér á landi og annars staðar.
En ég fæ stundum á tilfinninguna
núna, sjö árum seinna, að það sé
ekki langt í að okkur langi aftur í
ójafnvægið. Einstein kallaði það
geðveiki að gera alltaf sama hlut-
inn en vonast eftir nýrri útkomu.
Ég vona að við náum að komast hjá
þeirri sturlun.“
Vont að raða já-fólki í kringum sig
Halla segir svarið vera samfélag
sem er ekki í ójafnvægi heldur nýti
hæfileika beggja kynja – við öll
ákvörðunartökuborð. Hún bendir á
að of karllæg gildi í fjármálaheim-
inum hafi brugðist okkur árið 2008
– og oft áður í sögunni. Hún er fylgj-
andi kynjakvóta í stjórnum því hún
telur að konur komi inn í stjórnir
með breyttar áherslur og þá verði
öll umræða tekin frá fleiri sjónar-
hornum og ákvarðanataka og stjórn-
arhættir batni fyrir alla.
„Í grunninn snýst þetta ekki um
karla og konur heldur um kvenlæga
og karllæga eiginleika og nálgun –
þetta snýst meira um gildismat
eða kvarða og ég trúi því að okkur
farnist best ef við tileinkum okkur
hvorutveggja. Í viðskiptalífinu hafa
áherslurnar verið of mikið öðrum
megin og kvenlæg gildi – sem geta
sannarlega komið frá bæði konum
og körlum – hafa átt á brattann að
sækja.
Kvenlægir eiginleikar leiðtoga
eiga sérstaklega vel við á umbreyt-
ingartímum eins og við erum að
fara í gegnum núna. Kvenlægur
leiðtogi les í umhverfið og fær fólk
með sér. Hann reynir ekki að vera
hetja með öll svörin. Það er búið
og löngu úrelt módel. Góður leið-
togi nær að láta ólíka starfsmenn
blómstra og getur stýrt hópi sem er
í eðli sínu ólíkur innbyrðis. Það má
segja að allir sem hafa átt fleira en
eitt barn vita hvað við fáum mikla
þjálfun í því að láta ólíkan hóp
búa saman. Vondur leiðtogi ræður
þá sem eru alveg eins og hann og
haga sér eins og hann. Hann raðar í
kringum sig já-fólki og á þar af leið-
andi á hættu að keyra fram af brún-
inni þar sem enginn er til staðar til
að spyrja gagnrýnna spurninga á
leiðinni.
Ég er bara almennt fylgjandi
jafnvægi og blöndun. Það þarf að
taka áhættu en líka spyrja spurn-
inga um áhættuna. Það þarf ein-
hvern með sterka siðferðiskennd en
líka þann sem þorir að storka við-
teknum venjum og er djarfari. Jafn-
vægið og krafturinn sem myndast
þegar fólk á samtöl um málefni frá
ólíkum sjónarmiðum býr til árang-
ursrík teymi og árangursrík sam-
félög.“
Í þágu allra að virkja mannauðinn
WE 2015 er vettvangur fyrir sam-
tal milli karla og kvenna um það
efnahagslega tækifæri sem felst í
því að virkja kvenauðinn til jafns á
við karlauðinn – ekki bara á Íslandi
heldur um heim allan. Ísland
stendur fremst í að brúa kynja-
bilið, samkvæmt World Economic
Forum, og tilfellið er að margir
horfa til okkar sem forystuþjóðar
í þessum málum.
„Ein af ástæðunum fyrir því að
ég vildi að ráðstefnan héti WE er
að konur hafa mikið verið að tala
við konur um þessi mál, en ég taldi
gríðarlega mikilvægt að virkja karl-
ana með í þetta mikilvæga samtal.
Ef við skoðum tölurnar, þá eru ein-
faldlega fleiri karlar í áhrifastöð-
um í viðskipta- og efnahagslífi og
því eru frekari framfarir ólíkleg-
ar án þeirra þátttöku. En tölurnar
sýna líka svart á hvítu að viðskipta-
legur og efnahagslegur ávinning-
ur af jafnrétti er verulegur og það
er mikilvægt fyrir forystufólk í
atvinnulífi að skilja það.
Við trúum því að allir sem munu
fara í gegnum þetta samtal muni
læra margt og gera sér grein fyrir
því að það sé í þágu okkar allra að
virkja allan okkar mannauð til að
snúa hjólum hagkerfisins, til að
skapa jafnvægi í okkar viðskipta-
lífi og til að skapa samfélag sem
er mannlegt og gjöfult fyrir alla.
Hver gæti verið á móti því? Stund-
um verð ég hissa á því að við þurf-
um að vera að ræða þetta – þetta er
svo augljóst!“