Fréttablaðið - 13.06.2015, Page 40

Fréttablaðið - 13.06.2015, Page 40
13. júní 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38 ara sem kallaðist Konstantín kúkur og þarf ekki að hafa fleiri orð um það. Í Vestur-Evr- ópu voru engin ríki sem náðu máli nema hvað Frankar voru byrjaðir að safna í þokkalegt veldi seinna; Karlamagnús var þá sjö ára. HINN GÓÐI VANAGANGUR Svo allt var lífið ábyggi- lega hið fegursta í augum Kínakeisara, hins sjö- tuga Xuanzong sem sat í hinni glæsilegu höfuð- borg sinni Chang’an þar sem bjó að minnsta kosti milljón manns og jafnvel Mikligarður eða Bagdad komust varla í hálfkvisti við borgina að ríkidæmi og auðugu mannlífi og menningu. Allt gekk sinn góða vanagang eins og þegar best lætur hjá Kínverjum, stjórnsýslan var skilvirk og menn voru farnir að prenta bækur og gera tilraunir með peninga- seðla. Lengra varð ekki komist í þá daga. En … það er alltaf eitthvert „en“. Og nú kom til sögunnar alveg tröllvaxið og akfeitt „en“. Maður hét An Lushan. Faðir hans var líklega úr Mið-Asíu en hann dó snemma og kom lítið við sögu drengsins. Móðir hans var Göktyrki og seiðkona mikil, að því er sagt er. Þegar An Lushan var ungur bjó hann í námunda við Beijing og upp komst að hann hafði gerst sekur um sauðaþjófnað. Kín- verskur herforingi á svæðinu hreifst hins vegar af líkamsburðum piltsins og taldi hann geta komið að gagni í lögregl- unni. An Lushan varð lögga og seinna hermaður. Hann var dugnaðurinn uppmálaður þótt hann yrði snemma svo feitur að athugasemdir þar að lútandi fylgja nærri öllum sögum um hann. Að lokum varð hann æðsti hershöfð- ingi Tang-ættarinnar í stöðugum skærum við Khítana í Mansjúríu og þar gekk á ýmsu. Hann átti til að ögra Khítönum til inn- rásar í ríkið svo hann gæti sótt fram gegn þeim, öðru sinni stóð til að lífláta hann fyrir alltof fífldjarfa árás sem endaði með ósköpum en velgjörðarmaður hans í hernum sendi hann þá til höfuðborgarinnar Chang’an þar sem hann leitaði á náðir Xuan- zong keisara og fékk að halda lífinu. TRÚFASTA HJARTA Nú kom í ljós að An Lushan hafði ekki aðeins hæfileika sem herforingi. Hann var líka smjaðrari svo af bar. Hann jós yfir keis- arann og valdamikla embættismenn lofi og prísi og dýrum gjöfum og var um leið óþreytandi að lýsa yfir vináttu sinni og holl- ustu. Einu sinni spurði keisarinn þegar An Lushan kom í heimsókn: „Hvað geym- irðu eiginlega í þessum villimannlega belg þínum?“ Og An Lushan svaraði að bragði: „Fyrir utan mitt trúfasta hjarta, ekki neitt.“ Og þar fram eftir götunum. En raunar voru ýmsir farnir að efast um trúfesti þess hjarta sem An Lushan geymdi í belg sínum. Á leið sinni á toppinn hafði hann troðið ýmsum um tær og Guifei eftirlætis- kona keisarans hafði til dæmis á honum illan bifur. Náfrændi hennar, Yang Guozhong, var einn af helstu keppinautum An Lushans um æðstu metorð í ríkinu, sá var reyndar gjör- spilltur þrjótur og aumingi, en kannski vel- sældin og átakaleysið í ríki Tang-ættarinnar hafi þá verið orðin slík að makráður keisari eins og Xuanzong hafi ekki lengur áttað sig á þörfinni fyrir hæfileikamenn í stjórnsýsl- unni og því leyft vanhæfum smjaðurskjóð- um að vaða uppi. Nema hvað, Guifei og Yang voru óþreytandi að lepja í keisarann að An Lushan hefði í undirbúningi uppreisn gegn honum, en Xuanzong vildi ekki trúa neinu illu upp á sitt trúfasta hjarta. En raunin var sú að þau höfðu rétt fyrir sér. An Lushan hafði komið krónprinsi keis- arans upp á móti sér og þóttist viss um að þegar prinsinn tæki við að Xuanzong látnum þyrfti hann sjálfur ekki að kemba hærurnar. Hann hafði því undirbúið uppreisn vand- lega og komið sér upp þrautþjálfuðum her- flokki Khítana sem hlýddu hverju hans orði. Hann hugðist notfæra sér að þótt keisarinn hefði öfluga heri á landamærunum var fátt um varnir inni í miðju ríkinu og í desem- ber 755 hóf hann uppreisn sína og sótti frá borginni Yecheng, þar sem aðalbækistöðvar hans voru, og til höfuðborgarinnar. Hann taldi með nokkrum rétti að nú væru síðustu forvöð því Yang og aðrir keppinautar hans væru í þann veginn að skera upp herör gegn honum. HVER KEISARINN AF ÖÐRUM Ég hirði ekki um að rekja gang uppreisnar- innar í smáatriðum. An Lushan lýsti sig nýjan keisara í byrjun árs 756 eftir að hafa hrakið Xuanzong á flótta frá Chang’an og þótt her hans biði ósigur í ægilegri orr- ustu við borgina Yongqiu, þá náði hann hinni fögru höfuðborg fyrr en síðar. Og var nú barist um allt Kína. Keisaratignin nýja varð hinum metorðagjarna manni ekki til neinnar gleði, An Lushan gerðist bitur og tortrygginn og lét pynta og aflífa þjóna sína og aðstoðarmenn af minnsta tilefni, og fór svo í ofanálag að missa heilsuna. Hann varð nærri blindur á skömmum tíma og á hinum ógnarmikla kropp skruppu fram illa lykt- andi svöðusár og vellandi pollar. Í byrjun árs 757 var An Lushan skyndilega drepinn að ráði sonar síns, An Qingxu, sem lýsti sig síðan keisara og hélt uppreisninni áfram af fullum krafti. Hann var hins vegar óhæf- ur ræfill og 759 hafði einn helsti herfor- ingi hans fengið nóg af ruglinu og drap An Qingxu keisara og settist sjálfur í keisara- stólinn. Sá var hæfur herforingi en sam- viskulaus grimmdarseggur og var eftir tvö ár drepinn af syni sínum, sem gerðist þá sjálfur keisari en entist ekki nema í tvö ár. Á ýmsu hafði gengið. Xuanzong hafði sagt af sér og sonur hans tekið við sem keisari Tang-ættarinnar. Þá horfði svo illa í bar- áttunni við An Lushan og menn hans að nýi keisarinn skrifaði kalífa Abbasída og beidd- ist aðstoðar og Almansúr kalífi brást vel við og sendi hraustan herflokk sem átti sinn þátt í að um síðir snerist stríðsgæfan Tang-ætt- inni í hag. Árið 763 biðu uppreisnarmenn endanlegan ósigur og síðasti keisari þeirra hengdi sig á flótta. Tang-ættin var nú aftur óumdeild á keisarastóli Kína og átti eftir að halda velli til ársins 904. HVE MARGIR FÉLLU? Og hvað? Hvað er merkilegt við þetta? Var þetta ekki bara ein blóðug uppreisn af mörg- um í sögu Kína þar sem skiptast á langir velsældartímar og svo grimmileg borgara- stríð? Jú, vissulega, en eitt er það þó sem gerir uppreisn An Lushans makalausa í sög- unni, og ræður því að við ættum ævinlega að muna þessi ósköp. Það er mannfallið. Í sjö og hálft ár fóru herir Tang-ættarinn- ar og An Lushans og arftaka hans um hið blómlega og fjölmenna Mið-Kína þar sem milljónirnar bjuggu. Héruð skiptu um eig- endur hvað eftir annað, miklar fólkorrustur voru háðar þar sem fólk hrundi niður, en enn meira manntjón varð af hungursneyðum og hrakningum sem stríðið rak fólk út í. Hin magnaða höfuðborg Chang’an var rjúkandi rúst þar sem fáeinar hræður sveimuðu um eins og vofur eftir að barist hafði verið um hana mörgum sinnum. Og alls hefur verið reiknað út – með því að rannsaka manntöl bæði fyrir og eftir uppreisnina – að hvorki meira né minna en 36 milljónir manna hafi látið lífið. Það er allt að því brjálæðis- leg tala. Hún þýðir í raun og veru að nærri helmingur íbúa Kína hafi dáið beinlínis af völdum þessa villimannlega borgarastríðs. Þessi eina uppreisn á miðri áttundu öld kost- aði sem sé nærri helming þeirra mannslífa sem síðari heimsstyrjöldin kostaði. Og ekki nóg með það. Hún þýðir líka að nærri einn sjötti hluti alls mannkynsins hafi fallið, en fyrir uppreisnina er talið að mannkynið hafi talið um 220 milljónir sálir. Samsvarandi hlutfall nú á dögum myndi þýða að 1,2 millj- arðar létu lífið beinlínis af völdum þessa borgarastríðs í Kína. MARXÍSK GLERAUGU? Skylt er að geta þess að til eru þeir sem telja mannfallið ekki hafa verið alveg svona mikið. Kannski hafi „ekki nema“ tæpar 20 milljónir fallið í þessari valdaránstilraun An Lushans. En jafnvel það væri auðvitað hryllilegt. Og það allra sorglegasta er, að allt þetta fólk dó bara út af persónulegum metnaði An Lushans. Það er sama hve þykk „marxísk“ gleraugu maður setur upp til að reyna að koma auga á undirliggjandi sam- félagslegar eða pólitískar ástæður fyrir þessu fjöldamorði, þær sjást engar. Uppreisn An Lushans er afgerandi og skelfilegt dæmi um að einstaklingar geta svo sannarlega haft djúp áhrif á söguna. Og við munum líka eftir honum, við munum hvað hann sagði og gerði og hvernig hann dó, en við vitum ekk- ert hver þau voru eða hvað þau hétu, börnin sem dóu í milljónavís, svo stríðsherrarnir mættu fullnægja metnaði sínum. Árið var 755 og austur í Kína var allt í blóma. Í hálfa aðra öld hafði Tang-ættin setið þar á valdastóli og ríkt yfir einhverju mesta friðsemdar- og framfaraskeiði í sögu ríkisins. Kína var langfjölmennasta ríki heimsins um þær mundir, íbúar líklega rúm- lega 70 milljónir þegar þar var komið sögu og lífshættir alþýðu með því besta sem þekkt- ist. Að vísindum, tækni og iðnaði stóð Kína öllum framar, en menning og listir blómstruðu líka. Ég hef það fyrir satt að hvorki fyrr né síðar hafi ljóðlist Kínverja náð svo ljúffögrum hæðum sem um miðja áttundu öldina. Og frek- ari sigurganga virtist blasa við. Landamæri ríkisins voru örugg, hirðingjaþjóðir Khít- ana og fleiri létu að vísu stundum ófriðlega í norðri en herforingjar Tang-manna áttu þó ekki í teljandi erfiðleikum með að halda þeim í skefjum. Í Suðaustur-Asíu voru nær ein- göngu leppríki Kínverja, sama má segja um Kóreu og Japan í austri. Og þótt veldi Tíbeta væri nokkuð öflugt um þær mundir stafaði Kínverjum engin raunveruleg hætta þaðan. Í Mið-Asíu höfðu þeir sótt fram eftir silki- leiðinni svokölluðu og þótt þeir hefðu örfáum árum fyrr beðið ósigur fyrir nýju kalífaveldi Abbasída í námunda við hinn fagra Ferghana- dal, þá var lítill vafi á að ef verulega skærist í odda millum Abbasída og Kínverja myndu hinir síðarnefndu að lokum hafa sigur. Þó var veldi Abbasída hið eina í veröldinni sem gat keppt við Kínverja að styrk og stærð. Indland var um þær mundir klofið í mörg og sundur- þykk ríki. Hið gamla stórveldi Býsansmanna var ekki svipur hjá sjón við austanvert Mið- jarðarhafið, það var árið 755 undir stjórn keis- HIN ÆGILEGASTA UPPREISN RIDDARI Á TANG-TÍMANUM FLÆKJUSAGA Illuga Jökulsson rak í rogastans þegar hann fór að kynna sér furðu lítt þekktan atburð í sögu Kína. Og hvað? Hvað er merkilegt við þetta? Var þetta ekki bara ein blóðug uppreisn af mörgum í sögu Kína þar sem skiptast á langir vel- sældartímar og svo grimmileg borgara- stríð? Jú, vissulega, en eitt er það þó sem gerir uppreisn An Lushans makalausa í sögunni. AN LUSHAN XUANZONG KEISARI DAGUR ÍSLENSKRAR NÁTTÚRU Tilnefningar óskast til viðurkenninga umhverfis- og auðlindaráðuneytis Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru, 16. september næstkomandi. Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlinda- ráðuneytisins verða veitt fjölmiðli, ritstjórn, blaða- eða fréttamanni, dagskrárgerðarfólki eða ljósmyndara sem hafa skarað fram úr með umfjöllun sinni um íslenska náttúru. Til greina koma einstök verkefni eða heildarumfjöllun um íslenska náttúru. Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í Brattholti verður veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar. Tilnefningar ásamt rökstuðningi skal senda í síðasta lagi 16. ágúst 2015 á umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík, eða á netfangið postur@uar.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.