Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 44

Fréttablaðið - 13.06.2015, Side 44
KYNNING − AUGLÝSINGÍslenski jarðvarmaklasinn LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 20154 Staða Íslands innan jarðvarma-bransans er mjög sterk enda starfa Íslendingar að verk- efnum alls staðar í heiminum. Til dæmis í Asíu, Austur-Afríku, Suður- Ameríku og víðar,“ segir Alexander Richter. Hann stofnaði ThinkGeo- Energy árið 2010 en það er stærsta fréttaveita fyrir jarðhitaiðnaðinn í heiminum. Alþjóðleg samkeppni Jarðvarmabransinn fer stækkandi í heiminum og er þannig orðinn nokkuð stór í löndum á borð við Bandaríkin og Nýja-Sjáland. „Þró- unarverkefni í þessum löndum eru flest búin og því leita fyrirtækin að verkefnum utan landsteinanna líkt og íslensk fyrirtæki. Samkeppnin er því nokkur á markaðnum.“ Samvinna skiptir miklu Alexander segir Íslendinga afar áberandi á alþjóðavettvangi jarð- varmans þar sem þeir koma að afar mörgum verkefnum um allan heim. Hann segir það hins vegar einnig geta stuðlað að veikleika fyrir ís- lensk jarðvarmafyrirtæki að dreifa kröftum sínum of víða. „Hættan er að fyrirtækin verði ekki sam- keppnis hæf,“ segir hann. Íslensk fyrirtæki þurfi þannig jafnvel að vera í samkeppni hvert við annað. Hann telur mikilvægt að fyrir- tæki og stofnanir sameini krafta sína, sérstaklega vegna þess að verk- efnin eru flest í fjarlægum löndum. Alexander segir menn vera að vakna til vitundar um mikilvægi samvinnu og tekur dæmi. „Nýverið var farin ferð til Níkaragva. Þar fóru fjölmörg fyrirtæki saman ásamt ráð- herra til að kynna alls konar jarð- hitaverkefni á borð við Auðlinda- garðinn í Svartsengi og til að sýna hvað Ísland getur boðið upp á. Það var mjög sterkt,“ segir Alexander og bætir við að Íslenski jarðvarmaklas- inn sé einnig mjög gott framtak. Þar vinni allir að sama markmiði, sem sé að kynna fyrir heiminum hvað Ís- land hafi upp á að bjóða. Jarðhitaskólinn mikilvægur Íslendingar koma nú þegar að mörgum verkefnum í Austur- Afríku og Alexander telur að Jarð- hitaskólinn á Íslandi gegni stóru hlutverki í því. „Íslendingar hafa byggt upp þekkingu hjá fjölmörg- um Afríkubúum. Fjöldi Kenýa- búa hefur til dæmis sótt Jarðhita- skólann. Þegar þeir snúa aftur til Kenýa kjósa þeir helst að vinna með Íslendingum,“ segir Alex- ander og telur stöðu Íslands mjög sterka vegna þessa. Mikil tækifæri í Asíu Alexander segir mörg tækifæri fyrir jarðvarmabransann liggja í Austur- Afríku og Suðaustur-Asíu. „Stærsti markaðurinn fyrir verkefni núna er í Indónesíu, á Filippseyjum og í Austur- Afríku, til dæmis í Kenýa, Eþíópíu, Rúanda og Tansaníu. Ís- lensk fyrirtæki eru nú þegar sterk í Afríku en þurfa að sækja meira til Asíu,“ telur Alexander. Hann segir Asíulöndin þó erfiðari viðureign- ar þar sem engin íslensk sendiráð séu í þessum löndum og því þurfi íslensk fyrirtæki að fá aðstoð til að kynna sig þar í landi. Það megi gera með auknu samstarfi fyrirtækja og stofnana á borð við Íslandsstofu. Alexander segir orkuþörf þessara landa mikla og fara stöðugt vaxandi. Því séu mikil tækifæri þar. „Fyrir þessi lönd skiptir ekki máli hvaðan orkan kemur þótt græn orka sé vissu- lega ákjósanlegri. Í Indónesíu og á Filippseyjum er jarðhitavirkni og því liggur beint við að nýta hana til orku- öflunar. Í Kenýa er örlítið erfiðara að nýta jarðhitann en samt er ódýrara fyrir þá að vera með eigin orku en að kaupa hana dýrum dómum annars staðar frá.“ Möguleikar í Evrópu Tækifærin liggja þó ekki aðeins í fjarlægum löndum. „Nú er verið að vinna að því með jarðvarmaklasan- um að þróa samvinnu á milli fyrir- tækja, ráðuneyta og sendiráða til að finna jarðhitaverkefni í Evrópu,“ segir Alexander. Hann segir hita- veitu í Austur-Evrópu afar háða rúss- nesku gasi og að mikil áhersla sé lögð á það innan ESB að breyta því. „Því er mikill áhugi í Ungverjalandi, Rúm- eníu og Búlgaríu þar sem er jarðhiti að láta reyna á jarðvarmavirkjanir.“ Vandi að fjármagna Eitt af þeim stóru vandamálum sem íslensk fyrirtæki eiga við að etja er að afla fjár. „Fyrirtækin fá lítið fé frá íslenska ríkinu. Önnur ríki geta fengið peninga úr þróunar bönkum en Ísland hefur sjaldnast beinan aðgang að peningum úr slíkum bönkum,“ segir Alexander. Því telur hann enn mikilvægara að efla sam- vinnu og samstöðu milli íslenskra fyrirtækja og stofnana í jarðvarma- bransanum. Aukin samvinna er mikilvæg Alexander Richter, framkvæmdastjóri og stofnandi alþjóðlegu fréttaveitunnar ThinkGeoEnergy og markaðsstjóri Green Energy Group, segir stöðu Íslands innan alþjóðlega jarðvarmabransans sterka. Samkeppni hafi þó aukist og mikilvægt að íslensk fyrirtæki og stofnanir standi saman að því að kynna Ísland fyrir löndum sem huga að jarðvarmavirkjunum. Alexander segir Íslendinga afar áberandi á alþjóðavettvangi jarðvarmans þar sem þeir koma að afar mörgum verkefnum um allan heim. MYND/GVA E N N E M M / S ÍA / N M 6 9 4 4 0 islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook Við bjóðum sérþekkingu á orkuiðnaði Endurnýjanleg orka Eitt af sérsviðum Íslandsbanka er endurnýjanleg orka og umhverfisvænir orkugjafar. Hjá okkur starfar teymi sérfræðinga í orkumálum sem einbeitir sér að greiningu á orkuiðnaði og fjármálum fyrirtækja í orkugeiranum. Við tökum virkan þátt í virðiskeðju jarðvarmaverkefna og höfum verið hluti af starfsemi Iceland Geothermal frá upphafi. Þekking sprettur af áhuga. Íslandsbanki er stoltur styrktaraðili alþjóðlegu ráðstefnunnar Iceland Geothermal Conference 2013 og 2016.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.